Liðið eins og glæpamanni á þriðjudag Eiður Þór Árnason skrifar 30. október 2026 22:44 Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar er til húsa í Borgartúni. Vísir/Ívar Fannar „Ég er ein af þessum útvöldu starfsmönnum Reykjavíkurborgar sem var sagt upp á þriðjudaginn. Og ég lenti í aðferð sem er beitt á fólk sem hefur framið glæp eða framið gróf brot í starfi.“
Þetta segir Hrafnhildur Sverrisdóttir, sem starfaði sem verkefnastjóri á umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar. Alls fengu fimmtíu starfsmenn borgarinnar beina uppsögn á þriðjudag en stöðugildum var fækkað um 74. Hrafnhildur rekur atburðarás dagsins og segist hafa verið boðuð í samtal með einungis fjórtán mínútna fyrirvara. Hún hafi gert sér grein fyrir því hvað væri að eiga sér stað og leitað að trúnaðarmanni sem gæti verið viðstaddur samtalið. Þegar ljóst var að trúnaðarmenn hennar stéttarfélags voru ekki á svæðinu hafi hún tekið með trúnaðarmann annars félags. „Það var byrjað á að gera athugasemd við viðveru trúnaðarmanns en eftir ég sagði að mínir trúnaðarmenn væru ekki í húsi fékk hann að sitja með mér. Og þá hófst lestur á handritinu og mér rétt uppsagnarbréf og sagt að skrifa undir, sem ég neitaði,“ skrifar Hrafnhildur í Facebook-færslu en hún vildi ekki tjá sig nánar um málið í samtali við fréttastofu þegar eftir því var leitað. Sagt að yfirgefa svæðið án tafar „Í lok samtals var mér tjáð að ég fengi ekki að fara aftur inn í vinnurýmið og fengi ekki tölvuna mína aftur og að deildarstjóri skipulags væri á leiðinni með bakpokann minn og úlpu. Starfsferli mínum hjá Reykjavíkurborg væri nú lokið og ég ætti að fara strax úr húsi. Ég mátti heldur ekki kveðja samstarfsfólkið mitt.“ Ekki hafi verið óskað eftir vinnuframlagi hennar á uppsagnarfresti og gerir Hrafnhildur athugasemd við að mannauðsstjórinn og sviðsstjóri skipulags- og byggingarmála borgarinnar sem sátu fundinn hafi ekki á neinum tímapunkti þakkað henni fyrir samstarfið eða tjáð henni að þeim þætti þetta leitt. „Það var bið á að deildarstjóri skipulags kæmi með dótið mitt og andrúmsloftið inni í fundarherberginu var það erfitt að ég kaus frekar að fara fram á gang þar sem allir sem þar fóru um, sáu útgrátna og brotna manneskju,“ segir Hrafnhildur. „Þegar deildarstjóri skipulags kom svo, rétti hún mér orðlaust dótið mitt. Engin orð heldur frá henni bara kaldur svipur. Eftir of langa og erfiða þögn get ég ekki meira og tilkynnti henni að nú væri hún laus við mig. Engin viðbrögð við því heldur. Trúnaðarmaðurinn varð vitni að þessu öllu.“ Áfall og niðurlæging Hrafnhildur segir það áfall að missa vinnuna og sömuleiðis áfall að upplifa framkomu yfirmanna sem gefi til kynna að hún hafi gert eitthvað af sér í starfi. „Það er niðurlæging að fá að vita að ég sem hóf störf í apríl 2018 og er í þjónustustarfi við borgarbúa sem er lögbundið og gríðarlega flókið, sé minna metin en starfsfólk með miklu minni reynslu.“ Hrafnhildur ítrekar að hún hafi ekki fengið tækifæri til að kveðja samstarfsfólk sitt á þriðjudag en það sama hafi ekki átt við um alla sem var sagt upp þennan dag. Þá hafi einungis hún og einn annar starfsmaður á skrifstofu skipulags- og byggingamála ekki fengið vinnutölvurnar sínar eftir að þeim var tilkynnt um uppsögn. Þær hafi því ekki náð að sækja sín persónulegu gögn eða senda samstarfsfólki kveðju til að þakka fyrir samstarfið og vináttuna í gegnum tíðina. Upplifi mikinn kulda Hrafnhildi sárnar að hafa ekki fengið nein skilaboð frá stjórnendum á skrifstofu skipulags- og byggingasviðs borgarinnar eftir uppsögnina á þriðjudag og segist upplifa þögnina sem mikinn kulda í sinn garð. Hún ber öðru samstarfsfólki sínu þó góða söguna. „Elsku bestasta og yndislega samstarfsfólk og ráðgjafar í gegnum tíðina. Takk fyrir samstarfið, takk fyrir vináttuna, takk fyrir fagmennskuna, takk fyrir lærdóminn, takk fyrir ævintýrið að leggja okkur fram við að bæta borgina okkar og byggja hana upp. Ég sakna ykkar og á vonandi eftir að hitta ykkur fljótlega annars staðar. Farið varlega með ykkur.“ Formaður stéttarfélagsins Sameykis gagnrýndi vinnubrögð borgarinnar harðlega í vikunni.
Reykjavík Vinnumarkaður Borgarstjórn Tengdar fréttir „Fyrst og fremst erfitt“ Hildur Björnsdóttir borgarstjóri segir að uppsögnum í miðlægri stjórnsýslu borgarinnar sé lokið, eftir að stöðugildum þar var fækkað um 74 í dag. Mikið verk sé þó áfram fyrir höndum við hagræðingar í rekstri borgarinnar. 27. október 2026 15:46 Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Stöðugildum hjá Reykjavíkurborg var fækkað um 74 í dag. Fimmtíu starfsmenn fá beina uppsögn. Um sé að ræða síðasta áfanga við fækkun stöðugilda. 27. október 2026 14:41 Mest lesið Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent „Burt með bölvað ofstækið“ Innlent Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent Wolt kærir hótanir til lögreglu Innlent „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Innlent Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Fleiri fréttir Liðið eins og glæpamanni á þriðjudag Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Sjá meira
„Fyrst og fremst erfitt“ Hildur Björnsdóttir borgarstjóri segir að uppsögnum í miðlægri stjórnsýslu borgarinnar sé lokið, eftir að stöðugildum þar var fækkað um 74 í dag. Mikið verk sé þó áfram fyrir höndum við hagræðingar í rekstri borgarinnar. 27. október 2026 15:46
Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Stöðugildum hjá Reykjavíkurborg var fækkað um 74 í dag. Fimmtíu starfsmenn fá beina uppsögn. Um sé að ræða síðasta áfanga við fækkun stöðugilda. 27. október 2026 14:41