Wolt kærir hótanir sendlanna til lögreglu Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 30. október 2026 15:10 Hótanirnar koma einungis frá nokkrum af þeim sex hundruð sem starfa hjá heimsendingarþjónustunni hér á landi. MIKA BAUMEISTER Samskiptastjóri Wolt á Íslandi segir starfsfólk heimsendingarþjónustunnar hafa orðið fyrir „ágengum ummælum“ af hálfu nokkurra Wolt-sendla. Sendlarnir hafa verið tilkynntir til lögreglu. Fundur sendla og forsvarsmanna var haldinn í vikunni. „
Við líðum það ekki og verður tekið á hótunum og áreitni í gegnum regluvörsluferli okkar, auk þess sem þær hafa verið tilkynntar til lögreglu.“ Þetta kemur fram í svari Christian Kamhaug, samskiptastjóra Wolt á Íslandi og í Noregi, við fyrirspurn fréttastofu um fund Wolt-senda og forsvarsmanna fyrirtækjanna í vikunni. Hann tekur fram að langflestir af þeim rúmlega sex hundruð sendlum á Íslandi séu kurteisir og duglegir. Christian Kamhaug, samskiptastjóri Wolt á Íslandi og í Noregi.Wolt „Við munum gera allt sem í okkar valdi stendur til að tryggja þeim gott starfsumhverfi og góðar tekjur.“ Um það bil þrjátíu af sex hundruð mættir Tilefni fyrirspurnarinnar var fundur forsvarsmanna Wolt frá Finnlandi og Danmörku sem komu til Íslands í vikunni til þess að funda með Wolt-sendlum á Íslandi. Gheorghe Mihai Cacaliceanu, sem kallar sig talsmann Wolt-sendla, sagði við fréttastofu að flestir hefðu gengið út af fundinum þegar 45 mínútur voru liðnar og vildi hann meina að stjórnendur hefðu ekki hlustað á kröfur sendla á fundinum. „Fundurinn var krefjandi en mikilvægur og við munum halda samtalinu áfram. Við höldum slíka fundi með sendlum á öllum Evrópumörkuðum okkar ársfjórðungslega til að upplýsa sendla um breytingar og safna ábendingum frá þeim,“ segir Kamhaug aðspurður um hvernig fundurinn gekk. Þar sem enginn starfsmaður sé á Íslandi sem sinnir þessum málum hafi starfsmenn frá Danmörku og Finnlandi setið fundinn. Um það bil þrjátíu sendlar hafi mætt að þessu sinni að sögn Kamhaug, sem samsvarar frásögn Gheorghe sem sagði að um 25 hefðu mætt. Biðjast afsökunar „Um helmingur hópsins fór eftir 45 mínútur en hinn helmingurinn varð eftir til að ræða málin nánar í einkasamtölum, sem voru mjög uppbyggileg og gagnleg. Við erum nú með lista yfir þau mál sem komu upp á fundinum og munum skoða þau nánar,“ segir Kamhaug. Helsta vandamálið hérlendis sé ójafnvægi í framboði sendlanna og fjölda verkefna en það hafi fyrst komið upp í sumar. Þar af leiðandi séu færri verkefni á hvern og einn þar sem starfsemin hafi ekki vaxið jafnhratt og áætlað var. „Okkur einfaldlega mistókst í þetta sinn og við biðjumst afsökunar á því. Þetta getur haft áhrif á tekjur, einkum utan annatíma. Á annatímum vantar okkur enn sendla og tekjurnar eru góðar. Það er það sem við reyndum að útskýra á fundinum.“ Til að koma til móts við þetta er Wolt hætt að taka inn nýja sendla en fjarlægir þó ekki sendla úr kerfum sínum þar sem það fari gegn kjarna líkansins þeirra. Þá vonast forsvarsmenn fyrirtækisins eftir því að eftirspurnin aukist með eðlilegum hætti yfir vetrarmánuðina. „Við munum einnig auka eftirspurn með ýmsum markaðsaðgerðum á næstu vikum og mánuðum. Sendlar sem starfa með Wolt eru frjálsir að vinna hvenær sem þeir vilja og ef einhverjir kjósa að taka ekki að sér verkefni í mótmælaskyni er þeim það frjálst. Við vonum þó að hægt verði að leysa málið með samtali.“
Heimsendingarþjónusta Lögreglumál Kjaramál Mest lesið „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent „Burt með bölvað ofstækið“ Innlent Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Innlent „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Innlent Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Innlent Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Innlent Wolt kærir hótanir til lögreglu Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent Fleiri fréttir Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Sonur þingmannsins ákærður Sjá meira