Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Lovísa Arnardóttir skrifar 30. október 2026 08:41 Búi Bjarmar hafði unnið hjá borginni í fimm ár. Aðsend og Vísir/Vilhelm Búi Bjarmar Aðalsteinsson fyrrverandi starfsmaður borgarinnar telur að íbúar Reykjavíkur muni í kjölfar uppsagna upplifa lakari og dýrari þjónustu. Hann segir ekki hægt að útvista öllu og hans eina markmið hafi ávallt verið að bæta þjónustu og auka gæði hennar.
Búi missti sjálfur vinnuna á þriðjudag í uppsögnunum en hafði starfað hjá borginni í fimm ár, fyrst sem þjónustuhönnuður og síðan sem stafrænn leiðtogi á Þjónustu- og nýsköpunarsviði. Hann fjallar um uppsögn sína og það sem hann getur verið afleiðingar uppsagna í færslu á Facebook. Eins og kom fram fyrr í vikunni var stöðugildum hjá Reykjavíkurborg fækkað um 74 í dag. Fimmtíu starfsmenn fengu beina uppsögn. Frá því að nýr meirihluti tók við eftir kosningar í vor hefur stöðugildum fækkað um 130. Lækkun launakostnaðar er því 2,3 milljarðar króna á ársgrundvelli. Hildur Björnsdóttir borgarstjóri sagði að um væri að ræða síðustu hagræðingaraðgerðirnar þegar kemur að starfsfólki á miðlægri skrifstofu. Hún sagði að ekki væri um að ræða starfsfólk sem væri í beinni þjónustu við fólkið í borginni. Borgarfulltrúar minnihlutans í Reykjavík gagnrýna harðlega hagræðingaraðgerðir og uppsagnir meirihlutans. Þeir saka meirihlutann um vanþekkingu, óvönduð vinnubrögð, skort á pólitískri forystu og að blekkja borgarbúa. Niðurskurðurinn sé til þess eins að haka við verkefni á verkefnalista. Búi útskýrir að í starfi sínu hafi honum verið falið að „bæta þjónustu og auka skilvirkni hjá borginni í gegnum fjárfestingarverkefni sem ég ýmist mótaði eða aðstoðaði aðra við að móta. Meðal þeirra voru: rafrænar undirritanir, veiting rafrænna skilríkja, vöru- og þjónustuframboð sviðsins, gervigreindaraðstoð á vef, innri þjónustugátt, viðbragðshópur vegna gervigreindar og sjálfvirkni, uppsetning á rekstrarráði UT, fyrstu tilmæli varðandi gervigreind og stafrænt vinnuafl,“ segir hann. Hann hafi aldrei viljað vera áskrifandi að launum sínum og hafi ekki hikað við að stöðva verkefni sem ekki voru gagnleg. Hann sé þakklátur fyrir tækifærin sem hann fékk og sérstaklega að fá að horfa á stóru myndina. Hann segir sitt stærsta afrek í starfi hafa verið að móta ábatamat fyrir sitt svið sem hafi síðar verið tekið upp víðar í borgarkerfinu. „Flest verkefni sem ég vann fyrir borgina voru samstarfsverkefni, en ábatamatið á ég skuldlaust. Vissulega fékk ég umboð til að móta það og fólk fékk áhuga um leið og tölurnar fóru að skila sér. Þetta var algjört fokkin vesen og í grunninn hugarfarsbreyting sem fólst í því að: vera vakandi fyrir mælanlegum eiginleikum verkefna, að gera mælingar ekki að verkefni í sjálfu sér og að það sé bæði betra og ábyrgara að áætla umfang og ábata en að skila auðu þar sem gögn eru ófullnægjandi, eða bera fyrir sig að þetta sé „bara of flókið til að meta“. Ábatamatið er nú orðið hluti af verklagi og ein af lykilforsendum í vali fjárfestingaverkefna hjá sviðinu,“ segir hann. Grátbroslegt að fá reisupassann Það sé „grátbroslegt að hafa fengið reisupassann og staðan lögð niður í ljósi þess að helsta leiðarljós hans og annarra stafrænna leiðtoga hjá borginni hafi verið að bæta þjónustu, passa að hún sé í takt við þarfir fólksins og gera það eins billega og mögulegt er.“ Hann segist ekkert hafa á móti útvistun verkefna og hann hafi unnið að góðum verkefnum með til dæmis Evolv og Dokobit. Kári Sigurðsson, formaður Sameykis, hefur sagt eftir uppsagnirnar að hann óttist að útvistun verkefna muni aukast og kostnaður við það aukast. Ekki hægt að útvista öllu Búi Bjarmar segir í færslu sinni að þó svo að mörgu sé hægt að útvista sé ekki hægt að útvista öllu. „En þó að hægt sé að útvista mörgu, þá útvistarðu ekki því að hugsa hlutina á forsendum Reykjavíkur. Þú útvistar ekki því að brenna fyrir borgarbúa. Það þarf klárt fólk beggja vegna borðsins. Þú verður að eiga þekkingu til að: fatta hvað þig vantar, semja um kjör, veita aðhald, meta gæði þess sem er afhent, halda á lofti þörfum notenda,“ segir hann. Breytingarnar feli meðal annars í sér að leggja niður störf fólks sem hafi „umbylt þjónustu borgarinnar undanfarin ár með því að (a) skilja þarfir notenda með því að spyrja þá og (b) smíða og þróa lausnir í takt við það.“ „Mig langar helst að segja „verði þeim að því“, en það er fólkið í borginni sem mun fá verri og dýrari þjónustu í framtíðinni, það er leiðinlegt,“ segir hann að lokum.
Reykjavík Kjaramál Vinnumarkaður Stafræn þróun Borgarstjórn Mest lesið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Erlent Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Erlent Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Erlent Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Innlent Fleiri fréttir Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Sonur þingmannsins ákærður Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ „Akkilesarhæll á vinnu gagnvart þessum hópum“ Feginn að verðbólga stendur í stað og meirihluti mótfallinn þátttöku í Eurovision Til Ilulissat á Airbus með nýjum flugvelli Biðin á Landspítalanum styttist til muna Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Rukka erlenda nemendur um milljónir Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Frumvarp kynnt um afnám æviráðningar Bein útsending: Kynnir aðgerðaáætlun gegn fátækt barna Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Sjá meira