Körfubolti

Baulað á LeBron og fé­laga en snéru taflinu við

Andri Broddason skrifar
LeBron James virðist vera að finna taktinm hjá nýja félaginu sínu.
LeBron James virðist vera að finna taktinm hjá nýja félaginu sínu. Sarah Stier/Getty Images

LeBron James byrjar vel hjá nýjum félögum í Philadelphia 76ers. Í nótt var annar leikurinn hans með nýja liðinu og unnu 76ers frábæran endurkomusigur gegn gamla félaginu hans James, Cleveland Cavaliers, og unnu leikinn 114-106.

Á löngum ferli LeBron James hefur hann aldrei áður unnið eftir að hafa verið jafn mikið undir og í nótt. Í hálfleik voru Cavaliers að vinna með 24 stigum en mestur var munurinn 29 stig í leiknum. Þegar leikmenn 76ers voru að ganga til búningsherbergja bauluðu stuðningsmenn liðsins á leikmennina.

Þegar um sjö mínútur voru eftir af leiknum komst 76ers yfir í fyrsta skipti í leiknum og urðu lokamínúturnar spennandi. James náði þó að halda forskotinu á sínum gömlu félögum og er því búinn að vinna fyrstu tvo leikina sína með nýja félaginu.

LeBron James náði að skora 17 stig í leiknum og var með tíu fráköst. Liðsfélagi hans, Jaylen Brown, sem einnig kom til liðsins í sumar, skoraði aðeins fjögur stig í fyrri hálfleik leiksins. Hann bætti þó upp fyrir það með því að skjóta 17 stig í seinni hálfleik og því samtals 21 stig. Tyrese Maxey var stigahæstur í liðinu með 32 stig.

„Það var baulað á okkur. Það var frábært og við áttum það skilið. Svo fengum við fagnaðarlæti og rifum næstum þakið af höllinni, á góðan hátt. Þetta var rosalegt kvöld, sagði James eftir fyrsta heimaleikinn sinn í Fíladelfíu.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×