Körfubolti

Út­lendinga­stofnun gefur KR-ingum höfuð­verk

Valur Páll Eiríksson skrifar
Jakob Örn Sigurðarson, þjálfari KR, fékk Lanaras til liðsins og sendi Davis heim eftir að hafa beðið heillengi eftir svörum frá Útlendingastofnun. KR-ingar bíða enn.
Jakob Örn Sigurðarson, þjálfari KR, fékk Lanaras til liðsins og sendi Davis heim eftir að hafa beðið heillengi eftir svörum frá Útlendingastofnun. KR-ingar bíða enn. Vísir/Guðmundur

Framtíð Bandaríkjamannsins Rashun Davis með liði KR er í lausu lofti sökum seinagangs á skrifstofu Útlendingastofnunar. Davis er farinn aftur til Bandaríkjanna og KR-ingar hafa beðið svara um landvistar- og atvinnuleyfi í rúma tvo mánuði.

Davis, sem er 32 ára gamall bakvörður, æfði með KR stóran hluta sumars og tók þátt með liðinu í æfingamótum í aðdraganda Íslandsmótsins.

Umsókn um landvistarleyfi var skilað inn til Útlendingastofnunar í ágúst en rúmum tveimur mánuðum síðar liggur enn ekki fyrir hvort hann megi spila með liðinu í vetur.

Samkvæmt heimildum Vísis hefur málið dregist hjá Útlendingastofnun sökum lítilvægs máls viðkomandi vestanhafs og enn á eftir að greiða úr því hvort Davis verði veitt eða synjað um landvistarleyfi sökum þess.

Hann er farinn heim en Jakob Örn Sigurðarson, þjálfari KR, útilokar ekki að hann spili með KR í vetur þrátt fyrir það.

„Staðan er bara sú að hann er ekki með leyfi. Það er enn í vinnslu hjá Útlendingastofnun,“ sagði Jakob í samtali við íþróttadeild Sýnar eftir leik KR við Njarðvík í gær.

Þannig að hann er farinn?

„Hann er ekki á Íslandi, hann er farinn. Við erum ennþá með umsóknina í ferli og við vitum bara ekkert hvað það tekur langan tíma og hvaða svar við fáum þegar hún er unnin. Það gæti tekið eina eða tvær vikur, eða jafnvel tvo eða þrjá mánuði,“ segir Jakob og málið því enn í lausu lofti.

„Þannig að niðurstaðan var að hann er farinn frá okkur. Svo bara tökum við stöðuna. Við erum rólegir eins og er. Við erum með fjóra útlendinga og mér líður vel með liðið eins og er, en það er alveg klárt að við erum án Bandaríkjamanns og erum með augun opin þar.“

Líkt og Jakob nefnir þá er KR með fjóra erlenda leikmenn, sem er hámarkið í hverjum leik í Bónus-deildinni samkvæmt reglum KKÍ.

Hverju liði er heimilt að hafa einn Bandaríkjamann á meðal þeirra fjögurra erlendu leikmanna. KR samdi við Rafail Lanaras eftir að þeir sendu Davis heim en auk hans leika Roberts Berzins, Linards Jaunzems og Adam Ramstedt með liðinu.

Jakob segir óvissuna vegna stöðu Davis vissulega valda ákveðnum höfuðverk.

„Það er svolítið óþægilegt að maður viti ekki alveg hvaða framboð verður af leikmönnum áður en glugginn lokar.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×