Körfubolti

„Þetta er alltaf eitt­hvað limbó“

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Baldur Þór Ragnarsson fer yfir málin með sínum mönnum í síðasta leik.
Baldur Þór Ragnarsson fer yfir málin með sínum mönnum í síðasta leik. Vísir/Diego

Baldur Þór Ragnarsson, þjálfari Álftnesinga, var ánægður með sína menn eftir annan stórsigur liðsins í jafn mörgum umferðum á tímabilinu.

Álftanes vann 31 stigs sigur gegn ÍR í kvöld, í leik þar sem gestirnir frá Álftanesi stungu algjörlega af í upphafi seinni hálfleiks.

„Ég er bara mjög ánægður með sigurinn. Manni líður náttúrulega bara allskonar á meðan leikurinn er í gangi en ég var ánægður með sigurinn,“ sagði Baldur í leikslok.

Álftnesingar spiluðu af mikilli ákefði í kvöld og náðu snemma góðu forskoti. Það var þó ekki fyrr en eftir hálfleikshlé að liðið náði að slíta sig almennilega frá heimamönnum.

„Það er auðvitað að vinna með að við getum rúllað á mönnum og haldið ákefð í 40 mínútur. Það hjálpar klárlega.“

Hann tekur þó fyrir það að hafa verið með einhverskonar eldræðu í hálfleik til að koma mönnum aftur í gang, en segir þó að stundum þurfi slíkt.

„Þetta er alltaf bara eitthvað limbó. Stundum þarf að mótivera og stundum ekki. Varnarleikurinn var ekki nægilega góður í fyrri, en var mikið betri í seinni. Það er það sem gerir muninn í endann.“

Þrátt fyrir þennan örugga sigur viðurkennir Baldur að liðið þurfi að bæta ýmislegt fyrir næsta leik, sem er gegn Keflvíkingum í næstu viku.

„Það er alltaf eitthvað sem sem hægt er að bæta. Við viljum vera betri varnarlega en við vorum í dag. Þú getur alltaf potað í eitthvað og það þarf bara að halda áfram að gera það. Þú þarft alltaf að halda áfram að bæta þig og vinna í þér,“ sagði Baldur að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×