Handbolti

Ómar Ingi og Gísli Þor­geir áttu báðir stór­leik í Meistara­deildinni

Andri Broddason skrifar
Ómar Ingi Magnússon skoraði ellefu mörk í kvöld ásamt Gísla Þorgeiri Kristjánssyni.
Ómar Ingi Magnússon skoraði ellefu mörk í kvöld ásamt Gísla Þorgeiri Kristjánssyni. Ronny Hartmann/Getty Images

Íslendingaliðið Magdeburg fór í heimsókn til pólska liðsins Industria Kielce í Meistaradeild Evrópu karla í handbolta. Magdeburg vann þar sem Íslensku leikmenn Magdeburg áttu stórleik í 35-30 sigri.

Fyrri hálfleikurinn var kaflaskiptur þar sem gestirnir í Magdeburg náðu oft að koma sér í góða stöðu en svo var Kielce fljótt að ná gestunum aftur. Aðeins voru tvö mörk sem skildu liðin að í hálfleik en Magdeburg var yfir 19-17.

Í seinni hálfleik virtust heimamenn ætla að ná að gera leikinn spennandi en Magdeburg var númeri of stórt og náði að lokum að tryggja góðan sigur.

Íslendingarnir Gísli Þorgeir Kristjánsson og Ómar Ingi Magnússon áttu báðir stórleik og báru lið Magdeburg á herðunum. Bæði Ómar Ingi og Gísli Þorgeir náðu að skora 11 mörk hvor og voru því mikilvægir hlekkir í sókn Magdeburg.

Magdeburg er í frábærum málum í Meistaradeildinni þar sem liðið er búið að vinna alla þrjá leikina sína í riðlinum. Kielce, sem liðið var að keppa á móti, var búið að vinna alla sína leiki fyrir kvöldið í kvöld. Ómar Ingi og Gísli Þorgeir sýndu pólska liðinu í tvo heimana með eintómum gæðum á vellinum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×