Körfubolti

KR vann erkifjendurna sann­færandi

Andri Broddason skrifar
KR-ingar höfðu yfirhöndina í kvöld á Hlíðarenda.
KR-ingar höfðu yfirhöndina í kvöld á Hlíðarenda. Pawel/Vísir

Valur tók á móti KR í sannkölluðum Reykjavíkurslag í Bónus-deild kvenna í körfubolta. KR náði að vinna erkifjendurna á útivelli og endaði leikurinn 84-68.

KR-ingar byrjuðu sterkt strax í fyrsta leikhluta og skoraði liðið 27 stig gegn aðeins 22 stigum Vals en Valur náði að svara í öðrum leikhluta og í hálfleik var staðan jöfn 41-41.

Í seinni hálfleik náði KR þó að halda áfram kraftinum sínum en Valur byrjaði að gefa eftir og í síðasta leikhluta náði KR að skora tíu stigum meira en heimakonur. Leikurinn endaði því með góðum sigri KR eftir frábæran seinni hálfleik og virtist liðið vera með meira úthald heldur en Valur undir lokin.

Alyssa Cerino í liði Vals var markahæsti leikmaður leiksins með 27 stig og var liðsfélagi hennar, Re’Shawna Stone, með 22 stig. Stigaskorun KR var dreifðari þar sem Rebekka Steingrímsdóttir var stigahæst með 25 stig, Sara Hinriksdóttir var með 22 stig og Dazia Lawrance var með 21 stig.

Aaliyah Pitts átti líka frábæran leik fyrir KR þar sem hún skoraði ellefu stig og gaf bæði sjö stoðsendingar og tók sjö fráköst. KR-ingar eiga flotta byrjun á deildinni og líta vel út í byrjun Bónus-deildar kvenna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×