Innlent

Kampa­kát Krist­rún og Trump í New York

Samúel Karl Ólason skrifar
Donald Trump og Kristrún Frostadóttir í New York í síðasta mánuði.
Donald Trump og Kristrún Frostadóttir í New York í síðasta mánuði.

Ráðamenn vestanhafs hafa sýnt skýran vilja til að efla samstarf Bandaríkjanna og Íslands enn frekar. Þetta segist Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra hafa fundið vel eftir fundi hennar með Donald Trump, forseta, og Marco Rubio, utanríkisráðherra.

Kristrún fundaði með Trump í New York í síðasta mánuði, þegar hún var þar stödd vegna allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna. Hún ræddi síðan við Rubio í Reykjavík í dag.

Í færslu sem hún skrifaði á Facebook segir Kristrún að um þessar mundir sé margt jákvætt í gangi hvað varði samskiptin við Bandaríkin. Nefnir hún til að mynda nýjan samning Grænlands, Danmerkur og Bandaríkjanna og að hann skipti hann miklu máli fyrir Ísland.

„[E]nda byggjum við öryggi okkar á öflugum, sameiginlegum vörnum hér á svæðinu,“ skrifar Kristrún.

Þá segir hún að á fundinum með Rubio í dag hafi þau rætt spennandi tækifæri á sviði viðskipta og fjárfestinga milli Íslands og Bandaríkjanna. Þeirri umræðu verði fylgt eftir í samráði við íslenskt atvinnulíf.

„Á morgun á ég svo von á fleiri góðum gestum frá útlöndum. Leiðtogar Grænlands og Færeyja eru væntanlegir, báðir í sína fyrstu heimsókn til Íslands frá því þeir tóku við embætti. Ég hlakka til að ræða við þessa nánustu vini okkar og nágranna um sameiginlega hagsmuni og tækifæri ☺️ Fylgist með!“


Tengdar fréttir

Engar leyni­skyttur gættu Ru­bio

Um hundrað lögreglumenn komu að öryggisgæslu í tengslum við komu utanríkisráðherra Bandaríkjanna hingað til lands að sögn yfirlögregluþjóns alþjóðasviðs Ríkislögreglustjóra. Hann segir ákvörðun um vopnaborð liggja hjá íslenskum yfirvöldum og byggi á áhættumati hverju sinni.

Barnaspítalabindi Billy stal senunni

William „Billy“ Long, sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi, var meðal þeirra sem tóku á móti Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, þegar hann lenti á Íslandi í gær og fylgdu honum af landi brott síðdegis í dag. Athygli vakti að sendiherrann klæddist enn einu sinni óvenjulegu og litríku bindi sem virðist vera í sérlegu uppáhaldi hjá honum og á sér fallega sögu.

„Viljum ekki að það sé verið að leika sér að full­veldi Ís­lands“

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra sagðist hafa fengið skýr svör á fundi sínum í morgun með Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, varðandi kortið sem Donald Trump Bandaríkjaforseti birti sem sýndi Ísland sveipað bandaríska fánanum. Hún sagði metnað Rubio liggja í að ýta undir viðveru NATO á norðurslóðum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×