Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag Agnar Már Másson skrifar 2. október 2026 00:05 Hjörtur Erlendsson, forstjóri Hampiðjunnar, hjá Kauphallarbjöllunni. Nasdaq Iceland Hampiðjan hefur greitt viðbótarkaupgreiðslu til seljenda indverska kaðlaframleiðandans Kohinoor Ropes upp á 4,14 milljónir evra, eða um 569 milljónir króna, þar sem að reksturinn fór fram úr væntingum.
Frá þessu er greint í kauphallartilkynningu, en þegar Hampiðjan keypti 75,1 prósenta hlut í Kohinoor í byrjun árs 2025 var samið um að seljendur gætu fengið aukagreiðslu ef reksturinn gengi vel á fyrstu tveimur árunum. Upprunalega kaupverðið nam um 3,15 milljörðum króna og byggðist það meðal annars á hagnaði fyrir afskriftir og fjármagnsliði (EBITDA) rekstrarársins 2024, en þar er miðað við tímabilið 1. apríl 2023 til 31. mars 2024, þar sem rekstrarár á Indlandi fylgir ekki almanaksárinu. Í samningnum kom einnig fram að ef samanlögð EBITDA fyrir 2025 og 2026 færi yfir 9,97 milljónir evra myndi Hampiðjan greiða seljendum viðbótargreiðslu. Það rættist, samkvæmt tilkynningunni, og hefur félagið því greitt 4,14 milljónir evra til viðbótar sem nemur því um 569 milljónum íslenskra króna. Þar af nam EBIDTA rekstrarársins 2026 um 6,2 milljónum evra (850 m.kr.) sem er tæplega 70 prósent meira en lagt var upp með við kaupin. Í tilkynningunni segir að Kahoor hafi styrkt stöðu sína á lykilmörkuðum og sé orðið mikilvæg framleiðslueining fyrir önnur fyrirtæki í samstæðu Hampiðjunnar. Í tilkynningu Hampiðjunnar er einnig greint frá uppbyggingarverkefnum sem félagið hyggst ráðast í á Indlandi. Á næstu vikum verður fyrsta stóra framleiðsluhúsið tekið í notkun á iðnaðarsvæðinu Auric, austan við Aurangabad, en þar á að hefjast framleiðsla á fiskeldiskvíum. Á næsta ári standi til að byggja upp starfsemina í Auric og flytja hluta framleiðslu Hampiðjunnar frá Litháen til Indlands. Stefnt er að því að sú framleiðsla verði komin í fullan rekstur árið 2028.
Hampiðjan Kauphöllin Indland Mest lesið Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira