„Þetta er þorpið manns“ Valur Páll Eiríksson skrifar 27. september 2026 08:51 Myndin minnir óneitanlega á fræga mynd af Michael Jordan. Jóhann Helgi Sveinsson „Þetta er bara ég með allar mínar tilfinningar utan á mér,“ segir María Edwardsdóttir, fjármálastjóri Þróttar, um ljósmynd af henni með bikarnum sem karlalið Þróttar vann sér inn á Laugardalsvelli síðustu helgi. Kvennalið Þróttar vann fyrsta titilinn í sögu félagsins viku fyrr á sama velli.
Fótboltalið Þróttar hafa skrifað nýja kafla í sögubækur félagsins undanfarnar vikur og átt tvær glimrandi fínar heimsóknir á Laugardalsvöll. Kvennalið félagsins varð bikarmeistari eftir sigur á Grindavík/Njarðvík þann 12. september og sléttri viku síðar vann karlaliðið úrslitaleik umspils Lengjudeildar gegn Fylki og lyfti öðrum bikar. Stjórn knattspyrnudeildar ásamt starfsmönnum Þróttar og Sigurvini Ólafssyni, þjálfara karlaliðsins.Geir Guðfinnsson „Ég labba þarna niður á það sem hét hlaupabrautin á Laugardalsvelli og er bara grenjandi,“ segir María um tilfinninguna þegar stelpurnar unnu titilinn. Hún segist þó hafa haft á tilfinningunni að svona vel myndi fara hjá liðunum tveimur. „Það var svo merkilegt að ég hef aldrei verið jafn viss um hvernig tveir leikir myndu fara. Það var góð tilfinning að fara inn í það svoleiðis, þó að maður hafi auðvitað verið aðeins svona nervös að horfa á þetta,“ segir María í samtali við Vísi. Margra ára uppbygging að baki „Ég er bara ótrúlega stolt af árangrinum og fólkinu og öllu sem hefur bara verið gert til þess að komast þarna,“ segir María um árangurinn. Ekki amalegt að vera Þróttari í september. María EdwardsdóttirGeir Guðfinnsson „Félagið er náttúrulega meira en bara það sem gerist á vellinum hjá meistaraflokkunum. Þetta er fólkið hérna í klúbbnum sem er búið að vera að vinna baki brotnu við að búa til þetta samfélag sem þarf til þess að vera með klúbb þar sem er hægt að gera ráð fyrir velgengni og þetta risasamfélag,“ segir hún og bætir við: „Það eru margir sem hafa lagt mikið á sig, foreldrar, iðkendur og þeir eldri sem voru áður. Þetta er búið að vera mörg ár í uppbyggingu.“ Stelpurnar fögnuðu bikartitlinum, fyrsta titli í sögu félagsins.Hulda/Vísir Sjálf hefur María verið hjá félaginu frá barnæsku, fyrst sem iðkandi og síðar í hinum ýmsu störfum. Hún hefur verið í stjórnum deilda, í aðalstjórn félagsins, varð svo framkvæmdastjóri og er í dag fjármálastjóri Þróttar. Samfélag Þróttara kom saman tvær helgar í röð og gleðin mikil.Vísir/Anton Brink „Þannig að maður er búinn að koma að þessu frá mörgum hliðum í gegnum árin, þó með smá rólegheitakafla þegar maður var að eiga öll börnin en jú, þetta hefur alltaf verið stór hluti af manni,“ segir María. „Þetta er þorpið manns. Maður þarf þetta samfélag.“ Spenna fyrir framhaldinu Miklar breytingar hafa þá orðið í 48 ára sögu Þróttar og sérlega miklar síðustu ár og misseri. Fjölgun iðkenda hefur verið hröð og þá er einnig að skila sér hjá meistaraflokkum framtíðarsýn sem grunnur var lagður að fyrir þó nokkrum árum. „Þetta er cherry on top. Þetta gefur manni mikið. En það sem heldur manni í starfinu er samfélagið, fólkið hérna og fjöldi sjálfboðaliðanna. Þetta eru vinir manns og fólk er til í að leggja alveg ótrúlega mikið á sig,“ segir María. Ungir iðkendur Þróttar fengu að njóta sín en uppbyggingarstarfið í fótboltanum undanfarin ár er að skila miklum árangri.Geir Guðfinnsson Til marks um uppbyggingarstarfið í fótboltanum þá vann Þróttur bæði N1-mótið í 5. flokki karla og TM-mótið í 5. flokki kvenna í sumar Eftir tvær ótrúlegar gleðihelgar er þá spurning hvort einhver tómleikatilfinning taki við. Það er hreint ekki svo. „Nei, ég hef enga tómleikatilfinningu. Það er bara ótrúleg tilhlökkun fyrir því sem er að koma. Maður bara upplifir að okkur séu allir vegir færir enda er frábært fólk hér; starfsfólk, stjórnir, sjálfboðaliðarnir, leikmenn. Þetta fólk er að fara að gera eitthvað meira.“
Þróttur Reykjavík Lengjudeild karla Mjólkurbikar kvenna Besta deild kvenna Besta deild karla Fótbolti Íslenski boltinn Mest lesið Umfjöllun: Ísland – Eistland 1-1 Svekkjandi jafntefli á Laugardalsvelli Fótbolti Mæta til leiks gegn Ísrael: „Líður engum vel með að spila þennan leik“ Fótbolti Kane klúðraði víti og heimsmeistararnir voru fljótir að refsa Fótbolti Vill að mótherji hans fari í bann eftir árekstur Formúla 1 Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Enski boltinn Leikmaður Írlands dregur sig úr leikmannahóp gegn Ísrael Fótbolti Einkunnir Íslands: Vonbrigðarbyrjun í Þjóðardeildinni Sport Lúxemborg á toppi íslenska riðilsins Fótbolti „Þetta er þorpið manns“ Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Ná FH-ingar að halda í við Blika? Sport Fleiri fréttir „Þetta er þorpið manns“ Uppgjörið: ÍBV - Breiðablik 1-2 | Blikar verma toppinn Þrjú lið berjast um eitt öruggt sæti en Fram bjargaði sér „Enginn annar sem hafði trú á okkur en við sjálf“ Valur - Víkingur R. 1-1 | Valur enn á lífi Umfjöllun: Þór/KA - Fram 1-2 | Fram áfram í Bestu Valur í hættu á að falla í fyrsta skipti í sögunni Kanónur og ungstirni í ótrúlegri baráttu um Íslandsmeistaratitil Mattías Kjeld valdi KR Uppgjörið: Breiðablik - Czarni 2-6 | Blikar flengdir á pólskan máta Sigurður Egill og Aron Snær framlengja við Þrótt Owen farinn frá Val og fleiri breytingar boðaðar Uppgjörið: FH - Frankfurt 0-1| Eins marks tap gegn stórliðinu Ætla að refsa sigursælasta liði Póllands Draumur strákanna brostinn og stelpunum skipað í ójafna leiki Byrjaðar að spila sem Breiðablik í EA FC: „Þetta er risa heimur“ Vill hverfa frá núverandi fyrirkomulagi í Bestu deildinni „Þrjátíu og sjö ára andsetinn karlmaður í Vesturbænum“ Rúnar Már að hætta: „Hugurinn er tilbúinn að halda áfram en líkaminn segir stopp“ Aron hafi reitt Víkinga til reiði: „Ætla ekki að gefa upp hvað fór okkar á milli“ Sowe til KR ef hann stenst læknisskoðun Sjáðu öll mörk gærdagsins úr Bestu deildinni Skotið á Aron sem sér ekki eftir neinu Gaui Þórðar opnar sig um veikindi: „Erfiðir dagar, mánuðir og vikur“ „Hugsa að ég geri bara ekki rassgat“ Uppgjörið: Keflavík - Fram 2-2 | Stig sem gerir ekki mikið fyrir bæði lið Uppgjörið: ÍA - Breiðablik 4-1 | Skítlétt á Skaganum Uppgjörið: FH - Stjarnan 5-2 | Heimamenn kláruðu dæmið í fyrri hálfleik Uppgjörið: ÍBV - Valur 1-1 | Grátlegt jafntefli hjá Eyjamönnum Blikakonur með í tölvuleik og brjóta blað Sjá meira