Fá rúman hálfan milljarð í vasann við söluna Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 22. september 2026 14:24 Alva fasteignafélag greiddi 850 milljónir fyrir húsið. Vísir/vilhelm Alva fasteignir greiddi 850 milljónir fyrir Valhöll sem áður voru höfuðstöðvar Sjálfstæðisflokksins. Kaupsamningur þess efnis var undirritaður í byrjun septembermánaðar.
Valhöll var auglýst til sölu í nóvember 2025 en húsið var byggt árið 1975 fyrir starfsemi Sjálfstæðisflokksins. Í fasteignaauglýsingunni stóð að um væri að ræða eitt af þekktari kennileitum Reykjavíkur. Byggingin var hönnuð af arkitektunum Halldóri H. Jónssyni og Garðari Halldórssyni. Alva fasteignir, félag Skorra Rafns Rafnssonar, fékk staðfest kauptilboð og greiddi 850 milljónir króna fyrir húsið. Fasteignamatið var 839 milljónir en brunabótamatið 1,182 milljarðar króna. Þetta segir í kaupsamningi sem fréttastofa hefur undir höndum. Með þessu fá Sjálfstæðismenn um 552 milljónir í vasann en 298 milljóna króna lán var áhvílandi á húsinu í byrjun árs. Lánið var tekið árið 2015 og var upp á 360 milljónir króna. Enn á félagið eftir að greiða fimmtíu milljónir króna en það verður gert við undirritun afsals þann 27. nóvember 2026. Félagið tók þá lán upp á 640 milljónir króna til að greiða fyrir bygginguna en ætlar sér að greiða lánið með einni afborgun. Í desember 2025 tók skipulagsfulltrúi Reykjavíkur fyrirspurn Alva fasteigna um Valhöll en félagið óskaði eftir afstöðu skipulagsfulltrúa til þess hvort mögulegt væri að fá leyfi til að breyta notkun hússins í gistiheimili eða hótel. Niðurstaðan var að hótelstarfsemi á lóðinni samræmdist aðalskipulagi en hins vegar þyrfti að breyta deiliskipulagi svo hægt væri að nýta bygginguna í hótelrekstur. Sjálfstæðisflokkurinn flutti höfuðstöðvar sínar í Kringluna við söluna og eru því nágrannar tryggingafélagsins Sjóvá.
Fasteignamarkaður Sjálfstæðisflokkurinn Reykjavík Hótel á Íslandi Tengdar fréttir Valhöll seld en óvíst með framhaldið Alva capital og Sjálfstæðisflokkurinn hafa undirritað kaupsamning um fasteignina að Háaleitisbraut 1, betur þekkt sem Valhöll. Að svo stöddu liggur endanleg ákvörðun um hvaða starfsemi verður rekin í Valhöll ekki fyrir. 13. febrúar 2026 11:15 Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Miðstjórn Sjálfstæðisflokksins samþykkti á fundi sínum föstudaginn 10. apríl að flytja höfuðstöðvar flokksins í Kringluna 5, 103 Reykjavík, í húsnæði tryggingarfélagsins Sjóvá. Flokkurinn leigir húsnæðið en leitar enn að varanlegu húsnæði til að kaupa. Stefnt er að flutningum fljótlega eftir sveitarstjórnarkosningar þann 16. maí. 17. apríl 2026 08:29 Áhugi á Valhöll Sjálfstæðismenn hafa fengið góð viðbrögð frá áhugasömum kaupendum vegna sölunnar á Valhöll. Ekki er hægt að upplýsa um stöðuna á söluferlinu að öðru leyti. 18. nóvember 2025 06:47 Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Sjá meira
Valhöll seld en óvíst með framhaldið Alva capital og Sjálfstæðisflokkurinn hafa undirritað kaupsamning um fasteignina að Háaleitisbraut 1, betur þekkt sem Valhöll. Að svo stöddu liggur endanleg ákvörðun um hvaða starfsemi verður rekin í Valhöll ekki fyrir. 13. febrúar 2026 11:15
Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Miðstjórn Sjálfstæðisflokksins samþykkti á fundi sínum föstudaginn 10. apríl að flytja höfuðstöðvar flokksins í Kringluna 5, 103 Reykjavík, í húsnæði tryggingarfélagsins Sjóvá. Flokkurinn leigir húsnæðið en leitar enn að varanlegu húsnæði til að kaupa. Stefnt er að flutningum fljótlega eftir sveitarstjórnarkosningar þann 16. maí. 17. apríl 2026 08:29
Áhugi á Valhöll Sjálfstæðismenn hafa fengið góð viðbrögð frá áhugasömum kaupendum vegna sölunnar á Valhöll. Ekki er hægt að upplýsa um stöðuna á söluferlinu að öðru leyti. 18. nóvember 2025 06:47