Evrópa Henry Alexander Henrysson skrifar 22. september 2026 11:01 Íslendingar eru þessa dagana uppteknir við að gera upp niðurstöðu nýafstaðinnar þjóðaratkvæðagreiðslu. Greinar eru skrifaðar og viðtöl birt. Sitt sýnist hverjum, eins og gengur. Ég held að það sé mikilvægt að draga ekki lærdóma of snemma. Kosningabarátta er aldrei fullkomlega heiðarleg og fólk sem tekur þátt í slíkri baráttu reynir að beita þeim brögðum sem tiltæk eru. Þjóðaratkvæðagreiðslur um eitt mál eru sérstaklega viðkvæmar, eins og kom í ljós. Mikilvægast er að gefa sér tíma og vinna að lokum úr niðurstöðunni þannig að heilindi nái aftur yfirhöndinni og leiði næstu skref. Persónulega fannst mér kosningabaráttan fara ágætlega af stað. Báðar helstu hreyfingarnar birtu mikið af greinum og pistlum til stuðnings eigin málstað. Flest það sem birtist var fyrirsjáanlegt og ekki mjög innblásið, en margt var málefnalegt. Auðvitað mátti finna full mikla kappsemi báðum megin borðsins og sumir þátttakendur stimpluðu sig út úr vitiborinni umræðu. Maður hafði á tilfinningunni að það væru undantekningar. Og áhyggjur um einhvers konar stórkostlega íhlutun – hvort sem það var innanlands eða erlendis frá – virðast ekki hafa átt við rök að styðjast. Að lokum má nefna að góð kjörsókn hlífði okkur við að fram kæmu sjálfskipaðir umboðsmenn ógreiddra atkvæða. Við getum, með öðrum orðum, verið sæmilega sátt við hvernig til tókst. Hagfræðingurinn Gauti Eggertsson, sem var áberandi í umræðu sumarsins, tjáði sig á kosninganótt um þá eðlilegu kröfu að fólk sem tók af krafti þátt í henni myndi bera ábyrgð á þeim ummælum sem það lét falla í hita leiksins. Þessi sjálfsagða siðferðilega krafa um pólitískt fyrirsvar fór þó fyrir brjóstið á sumum, sem er einkennilegt. Eitt það mikilvægasta sem kemur upp í huga minn til að endurvekja heilindi í kjölfar þjóðaratkvæðagreiðslu er að fólk gangist við orðum sínum. Umræðan má ekki stöðvast daginn eftir kjördag. Auðvitað er það svo að margir verða að gangast við því að kappið hafi borið þá ofurliði, en það er einnig mikilvægt að erfa slíkt ekki um of. Og alls ekki ef fólk biðst afsökunar. Staðhæfingar kosningabaráttunnar voru mismunandi afdrifaríkar og alvarlegar. Og það mun taka mismunandi mikinn tíma að vinda ofan af þeim. Persónulega er ég þeirrar skoðunar að umræða sumarsins hafi farið út af sporinu í sumar á stofnfundi hreyfingar sem kenndi sig við stuðningshróp áhorfenda íslenskra íþróttalandsliða. Á fundinum þótti sniðugt að ná athygli viðstaddra með því að nota líkingamál úr íþróttaheiminum: Ísland væri í meistaradeild en Evrópulönd væru í annarri deild. Á fundinum var ekki farið nánar út í hvaða lönd þetta væri sem væru svo heppin að spila með okkur í efstu deild. Áðurnefndi Gauti benti á að líklega væri þar átt við hagtölur sem settu okkur í hóp með löndum eins og Gvæjana í Suður-Ameríku. Um fá lönd þykir mér reyndar vænna en Gvæjana enda áttum við fjölskyldan heimili þar um tíma. En mér finnst engu að síður fremur óspennandi að skilgreina Ísland og framtíð þess með þessum hætti. Hugmyndin um að Íslendingar hafi ekkert til Evrópu að sækja og standi löndum þar framar varð að sorglegu og hvimleiðu leiðarstefi í sumar. Þetta stef varð það sem hægt er að kalla „stóra lygin“ í kosningabaráttunni. Staðreyndin er sú að Evrópa hefur sjaldan verið eins augljóslega það svæði í veröldinni sem mikilvægustu samfélagslegu verðmætin fá vægi og athygli. Í mörgum öðrum heimshlutum á fólk sífellt erfiðara með að njóta vináttu og ástar með þeim sem það kýs, umhverfismál komast ekki lengur á blað, jafn aðgangur að heilbrigðisþjónustu er meira í orði en á borði, algjör uppgjöf hefur átt sér stað gagnvart þeim sem farnir eru að einoka upplýsingagjöf, og öll – tjáning – hvort sem hún er fræðileg eða listræn – á undir högg að sækja. Þótt vissulega séu til lönd sem blessunarlega hafa enn hafa ekki gefist upp fyrir áróðrinum um að vestræn gildi eigi undir högg að sækja vegna þess að þau hafa raungerst, þá er Evrópa eina heimsálfan sem skipulega reynir að vernda og styrkja þessi gildi. Þessi skilaboð um að Evrópa sé í andarslitunum, stöðnuð og ekki á vetur setjandi eru sérstaklega hættuleg ungu fólki. Okkar allra býður töluvert verkefni að endurreisa traust á Evrópu eftir lygavaðal sumarsins. Sem betur fer hefur ungt fólk – í krafti evrópskrar samvinnu – aldrei ferðast meira til álfunnar og mun sjá á komandi misserum að allt tal um að ferðalagið sé niður í aðra deild á ekki við rök að styðjast. Verkefnið framundan er að útskýra fyrir ungu fólk að þessi ferðalög og sú veröld sem býður þeirra sé ekki sjálfsögð tilvera. Það er ákveðin hugmyndafræði sem hefur tryggt frelsi, frið og farsæld í álfunni og það er alvörumál að gera lítið úr þessari hugmyndafræði. Það er vissulega málefnalegt viðhorf að segja sem svo að það sé nóg fyrir Ísland að vera hluti af Evrópska efnahagssvæðinu og í Schengen-samstarfinu. Og að evrópskt samstarf birtist á mörgum öðrum vettvangi heldur en innan Evrópusambandsins; öflug þátttaka innan Evrópuráðsins sé til dæmis ljómandi leið til að styrkja sameiginleg evrópsk gildi innan álfunnar (og raunar út fyrir hana). Og svo megum við öll þakka fyrir að þurfa að taka tilliti til úrskurða Mannréttindadómstóls Evrópu sem hefur reynst þjóðinni betri en enginn. Ísland sé með öðrum orðum þegar eins evrópsk og hún þarf að vera. Vandamálið er hins vegar að það viðhorf sem hér er lýst fékk ekki að hljóma meðal þeirra sem hvöttu til þess að svarið yrði nei í nýafstaðinni þjóðaratkvæðagreiðslu. Þeir geta heldur ekki falið sig bakvið það að þeir hafi alltaf „einungis“ verið að tala um hnignun Evrópu í efnahagslegu tilliti því það gerðu þeir ekki. Vonandi sjá þeir aðilar sem helst héldu fram stóru lyginni í sumar sóma sinn í að draga orð sín til baka og leggjast á árarnar með okkur hinum í að fræða ungt fólk um hina raunverulegu Evrópu. Höfundur er heimspekingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Henry Alexander Henrysson Mest lesið 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir Skoðun Af morðingjum og mannkostum Svala Magnea Ásdísardóttir Skoðun Að nota börn til að næra sitt eigið egó Helga Snædal Skoðun Hvar er karlmannadagurinn? Íris Erlingsdóttir Skoðun Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Skoðun Ekki orð um heimsins lengstu biðlista… Vilhjálmur Hjálmarsson Skoðun Virkari eigandi og ný nálgun í stjórn Norðurorku Berglind Ósk Guðmundsdóttir Skoðun Sniglar á götunni Kristján Logason Skoðun Gott bú stendur undir sér Róbert Ragnarsson Skoðun Skoðun Skoðun Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar skrifar Skoðun Af morðingjum og mannkostum Svala Magnea Ásdísardóttir skrifar Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvar er karlmannadagurinn? Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Ekki orð um heimsins lengstu biðlista… Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson skrifar Skoðun Virkari eigandi og ný nálgun í stjórn Norðurorku Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hækkun matarverðs lífeyrisþega á undan innri úttekt Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Tengslarof ríkistjórnarinna við atvinnulíf og samfélög á landsbyggðinni Sonja Lind E. Eyglóardóttir skrifar Skoðun Hver pantaði börn með þessu ADHD? Jóna Kristín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Sniglar á götunni Kristján Logason skrifar Skoðun Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir skrifar Skoðun Skipulagið grefur undan séreignarstefnunni – brött brekka fyrir fyrstu kaupendur Sigurður Stefánsson skrifar Skoðun Myrkraverk í Afríku Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Skaðabætur frá síðustu öld Hópur lögmanna skrifar Skoðun Að nota börn til að næra sitt eigið egó Helga Snædal skrifar Skoðun Veitingageiranum var hent undir vagninn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir skrifar Skoðun Úr öskunni í eldinn Ingveldur Anna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hamfarir í hversdagslegum kringumstæðum Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Heimilin eiga ekki alltaf að borga brúsann Alexander M. Árnason skrifar Skoðun Fleiri krónur taldar – fáar nýjar Daði Freyr Ólafsson skrifar Skoðun „The Concert of Three“. Samráð stórveldanna þriggja – ný leið til heimsfriðar? Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og fisks Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar Skoðun Orkan í ólgusjó efnahagsmála Tinna Traustadóttir skrifar Skoðun Fæðingarorlof fyrir ömmu og afa? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Gott bú stendur undir sér Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Loksins get ég notið þess að vera heima Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar Sjá meira
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Skoðun 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson skrifar
Skoðun Tengslarof ríkistjórnarinna við atvinnulíf og samfélög á landsbyggðinni Sonja Lind E. Eyglóardóttir skrifar
Skoðun Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir skrifar
Skoðun Skipulagið grefur undan séreignarstefnunni – brött brekka fyrir fyrstu kaupendur Sigurður Stefánsson skrifar
Skoðun Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir skrifar
Skoðun „The Concert of Three“. Samráð stórveldanna þriggja – ný leið til heimsfriðar? Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar
Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun