Noregur og Kanada auka samstarf í varnarmálum Kjartan Kjartansson skrifar 21. september 2026 08:43 Mark Carney, forsætisráðherra Kanada, (t.v.) með Jonas Gahr Støre, forsætisráðherra Noregs, (t.h.) þegar þeir hittust í mars. Vísir/EPA Forsætisráðherra Noregs segist vinna að því að efla samstarf við Kanada í varnar- og norðurslóðamálum. Hann sér fyrir sér að Norðmenn, Kanadamenn og Íslendingar vinni nánar með Evrópusambandinu að málefnum norðurslóða.
Jonas Gahr Støre, norski forsætisráðherrann, hitti Mark Carney, forsætisráðherra Kanada, í Ottawa í gær. Að fundinum loknum sagði Støre meðal annars að ríkin tvö ætluðu að standa fyrir fleiri sameiginlegum æfingum á norðurslóðum. „Kanada er náinn bandamaður Noregs og mikilvægur NATO-bandamaður. Við deilum mörgum grunngildum og höfum sameiginlega hagsmuni á norðurslóðum. Á umrótatímum þarf Noregur að standa á traustari undirstöðu. Við eflum nú samstarf okkar við Kanada,“ sagði Støre. Ríkin tvö ætla að auka samstarf sitt í landhelgisgæslu, rannsóknum á heimskautasvæðinu og í kortlagningu fágætra jarðefna. Þá ætla þau að vinna nánar saman að geimtækni og gervigreind, að því er segir í frétt norska ríkisútvarpsins. Benti Støre á að Kanadamenn hefðu ákveðið að fjárfesta í þýsk-norskum kafbátum og því ættu ríkin eftir að eiga í nánum tengslum um fyrirsjáanlega framtíð. Kanadamenn, Norðmenn og Þjóðverjar munu því allir nota sömu tegund kafbáta. „Þetta mun efla getu okkar og Atlantshafsbandalagsins til þess að fylgjast með hafsvæðum í norðri. Það er lykilatriði fyrir öryggi bæði Kanada og Noregs,“ sagði norski forsætisráðherrann. Kanada, Noregur og Ísland taki þátt í norðurslóðastefnu ESB Kanadísk stjórnvöld hafa ræktað tengslin við Evrópu að undanförnu. Bæði Kanada og Evrópusambandið hafa orðið fyrir barðinu á refsitollum Bandaríkjastjórnar. Þá hefur núverandi forseti Bandaríkjanna ítrekað krafist þess að Kanada verði innlimað í Bandaríkin. Carney tók vel í tillögu Ursulu von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, í síðustu viku um að þau ynnu að því að Kanada yrði fyrsta aukaaðildarríki sambandsins. Støre sagði að ræða þyrfti á vettvangi Evrópusambandsins hvernig hægt væri að auka samstarf þess, Noregs og Kanada um geimtækni, jarðefni, varnarmál og norðurslóðir. Þó að þrjú norðurslóðaríki væru í Evrópusambandinu þyrfti einnig að ræða við Noreg, Ísland og Kanada. „Ég held að við sjáum meira af því,“ sagði Støre.
Noregur Kanada Utanríkismál Norðurslóðir Öryggis- og varnarmál Mest lesið Samninganefnd Reykjavíkurborgar leyst undan störfum Innlent Fyrirgefur Lindsay fyrir að myrða börnin Erlent Rýma húsið: „Draumurinn er að Reykjavíkurborg geti hjálpað okkur“ Innlent Barn á rafmagnskrossara sótt af foreldrum sínum Innlent Skattadrottning þurfti að borga álag eftir allt saman Innlent Sigurboginn verður leyniskyttuhreiður Erlent Skipuleggur eigin jarðarför Innlent Mótmæli í Texas vegna ICE-liða Erlent Opið bréf til Ingu: „Þetta er „lausn“ á einhverju sem var aldrei vandamál“ Innlent Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Veður Fleiri fréttir Fá metfjölda þingsæta í Dúmunni Sigurboginn verður leyniskyttuhreiður Maður á níræðisaldri lést í átökum um sólbekk Noregur og Kanada auka samstarf í varnarmálum Fyrirgefur Lindsay fyrir að myrða börnin Mótmæli í Texas vegna ICE-liða Kallar kosningarnar „hörmung“ en heitir því að fara ekki fet Senda Trump pillu vegna Ameríkukorts „Myndi ekki skrifa undir samkomulag ef það væri ekki gott“ Framtíð kanslarans í húfi Ætlar sér að skipa „gervigreindarkeisara“ Sérstakt veiðileyfi gefið út eftir að hákarl banaði sundmanni á sjötugsaldri Utanríkisráðherra Úkraínu lýsir yfir gríðarlegu þakklæti Vissi að viðræðum miðaði fram „þrátt fyrir skrítin kort“ Glæpahópurinn 764: Átján ára í tíu ára fangelsi fyrir tilraunir til manndráps og nauðgun á netinu Løkke um samninginn: „Næsta vika getur orðið góð vika“ Bandaríkin hafi samið við Danmörku um Grænland Íhuga að fara nýja leið og bjóða Rússum viðskiptasamninga Trump rekur CNN og fleiri fjölmiðla úr Hvíta húsinu Andersson fær stjórnarmyndunarumboðið Hákarl banaði sundmanni Segir „íslamista“ skýra velgengni vinstrimanna Danskar F-35 lentu á Grænlandi í fyrsta sinn Kínverjar leituðu til Írana fyrir hönd Sáda Norðmenn kynna „stærstu breytingarnar frá upphafi“ á EES samstarfinu Segir Karl hafa hljómað himinlifandi eftir dauða Díönu Slapp við fangelsisvist eftir að hafa notað maura í matargerð Rússar kjósa sér 450 skoðanabræður Rússar hafi skipulagt fjölþáttaárás gegn Póllandi Vill fara með Svíþjóð í nýja átt Sjá meira