Leyfi Trump að líða eins og sigurvegara þó hann hafi ekkert unnið Bjarki Sigurðsson skrifar 19. september 2026 13:16 Jesper Zølck, fréttaritari TV2 (t.v.) telur Dani hafa fengið það sem þeir vildu úr samkomulaginu. Donald Trump Bandaríkjaforseti (f.m.) sé þó algjört ólíkindatól. Vilborg Ása Guðjónsdóttir alþjóðastjórnmálafræðingur bíður spennt eftir því að sjá samkomulagið í heild sinni. TV2/AP/Jacquelyn Martin Bandaríkin og Danmörk hafa komist að samkomulagi um framtíð varnarmála á Grænlandi. Blaðamaður telur dönsk stjórnvöld hafa náð sínum markmiðum og alþjóðastjórnmálafræðingur segir Grænlendinga rólega yfir tíðindunum.
Donald Trump Bandaríkjaforseti greindi frá samkomulaginu í færslu á samfélagsmiðlum í gær og staðfestu stjórnvöld í Danmörku og Grænlandi það í kjölfarið. Í færslu Trumps segir að Danir hafi veitt Bandaríkjunum varanleg yfirráð yfir öryggismálum á Grænlandi að eilífu en Danir hafa ekki staðfest það. Búist er við því að samkomulagið verði undirritað á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna eftir helgi eftir þinglega meðferð á danska þinginu. Bíður spennt eftir því að sjá textann Vilborg Ása Guðjónsdóttir alþjóðastjórnmálafræðingur segir ýmislegt í færslu Trumps koma á óvart þótt samkomulagið sjálft geri það ekki beint. „Vonir stóðu til að þetta yrði raunin og mögulega er þetta þá besta sviðsmyndin að raungerast. En það eru ákveðnir óvissuþættir varðandi uppsagnarákvæði og mögulegt neitunarvald Bandaríkjaforseta um fjárfestingar á Grænlandi. Þetta eru tvö atriði sem er ekki hægt að líta á sem eitthvað sem Grænlendingar og Danir vildu og eru því eitthvað nýtt í stöðunni,“ segir Vilborg. Leyfa Trump að upplifa sigur Þeir Grænlendingar sem hún hefur rætt við taka hlutunum rólega. „Það vill fá að sjá textann og samninginn. Eru þá á sama tíma að halda inni í sér andanum og leyfa Bandaríkjaforseta að upplifa eitthvað sem sigur fyrir sig og ná þá í gegn einhverjum friði hvað þessi mál varðar. Þannig fólk er varkárt og ætlar aðeins að bíða og sjá hvernig þessi samningur lítur út,“ segir Vilborg. Hverjum á að trúa? Jesper Zølck, fréttaritari danska TV2 á Norðurlöndunum, bendir á að yfirlýsingar Trump séu mun stóryrtari en stuttar yfirlýsingar danskra og grænlenskra stjórnvalda. „Það sem er áhugavert er hvort er nær sannleikanum? Frá Danmörku séð þá vitum við hverjum við treystum betur núna, og það er ekki maðurinn sem situr í Hvíta húsinu í Bandaríkjunum. En við vitum auðvitað ekki nákvæmlega hvað er í gangi núna. Þannig að við verðum auðvitað að bíða og sjá hvað allt samkomulagið segir og hvernig það er orðað,“ segir Zølck. Danir jákvæðir Samningurinn verði að öllum líkindum mjög nálægt markmiðum Dana þrátt fyrir að Trump lýsi yfir stórsigri. Danir átti sig þó á því að Trump sé ólíkindatól. „Þannig að þangað til samkomulag er í höfn, búið er að skrifa undir pappíra og við höfum séð öll smáatriðin, er allt svolítið óöruggt. Það er í hans pólitíska eðli að spila inn á þetta óöryggi. Þannig að það er líka hluti af viðbrögðunum í Danmörku,“ segir Zølck. „En að því sögðu eru viðbrögðin mjög jákvæð og fólk er líka svolítið undrandi á því að Danmörk og Grænland virðast í mörgum skilningi vera að fá nákvæmlega það sem þau hafa alltaf verið tilbúin að gefa og hafa líka skýra sérhagsmuni af, án þess að gefa neitt eftir. Grænland er grænlenskt yfirráðasvæði sem Grænlendingar ráða yfir, framtíð þeirra er grænlensk, ekki bandarísk. Og án þess að danska ríkisstjórnin gefi eftir fullveldi eða neitt annað til Bandaríkjanna, þá eru þau í rauninni að gefa þeim nákvæmlega það sem þau hafa alltaf verið tilbúin að gera.“
Danmörk Bandaríkin Hótanir Bandaríkjanna vegna Grænlands Grænland Donald Trump Mest lesið Biður Jón afsökunar Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Innlent Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Erlent Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Innlent Fleiri fréttir Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sjá meira