Báðir aðstoðarmennirnir horfnir á stuttum tíma Eiður Þór Árnason skrifar 16. september 2026 19:24 Þórólfur Heiðar Þorsteinsson starfar ekki lengur við hlið Þorbjargar Sigríðar Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra. Aðsend - Vísir Þórólfur Heiðar Þorsteinsson hefur kvatt Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra og lét formlega af störfum sem aðstoðarmaður hennar í ágúst. Hann er annar aðstoðarmaðurinn sem yfirgefur hana á stuttu tímabili en Jakob Birgisson hætti fyrr á þessu ári. „
Þetta var mín ákvörðun og gert í samráði og sátt við ráðherrann. Ég er mjög ánægður með minn tíma og við fengum mörg góð mál í gegn, sérstaklega á vorþingi. Mér fannst þetta vera fínn tímapunktur til að staldra við, skipta um starfsvettvang og er að leita mér að næsta starfstækifæri,“ segir Þórólfur við Vísi. Hann og Jakob urðu aðstoðarmenn dómsmálaráðherra fljótlega eftir að hún tók við embættinu í lok ársins 2024. Jakob gekkst við kynferðislegri áreitni Þórdís Valsdóttir tók við af Jakobi fyrr á þessu ári en hún starfaði áður sem upplýsingafulltrúi dómsmálaráðuneytisins. Ekki er búið að ráða í staðinn fyrir Þórólf en ráðherrar ríkisstjórnarinnar eru alla jafna með tvo aðstoðarmenn hver. Þegar greint var frá því í mars að Jakob væri að yfirgefa ráðuneytið eftir rúmt ár í starfi sagðist hann vilja einbeita sér meira að uppistandi og öðrum hliðargreinum sem hafi togað í hann. Í ágúst gekkst hann svo við því að hafa snert samstarfskonu sína í dómsmálaráðuneytinu á ósæmilegan hátt þegar hann starfaði enn sem aðstoðarmaður ráðherra. Hann hafi látið af störfum hjá ráðuneytinu í kjölfarið og hætt allri áfengisneyslu. Atvikið hafi átt sér stað á skemmtun á vegum ráðuneytisins síðasta vetur. „Þar átti ég í samskiptum við samstarfskonu mína og snerti hana á ósæmilegan hátt. Ég bað hana innilega afsökunar á þessu atviki og taldi málinu lokið,“ sagði Jakob í yfirlýsingu í ágúst. Fréttin hefur verið uppfærð.
Vistaskipti Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Tengdar fréttir Snerti samstarfskonu á ósæmilegan hátt Jakob Birgisson uppistandari og fyrrverandi aðstoðarmaður dómsmálaráðherra gengst við því að hafa snert samstarfskonu sína í ráðuneytinu á ósæmilegan hátt. Hann lét af störfum hjá ráðuneytinu í kjölfarið og hætti allri áfengisneyslu. 21. ágúst 2026 10:07 Jakob Birgisson og Þórólfur Heiðar aðstoðarmenn Þorbjargar Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra, hefur ráðið Jakob Birgisson, uppistandara og Þórólf Heiðar Þorsteinsson, lögfræðing, sem aðstoðarmenn sína. 2. janúar 2025 13:47 Mest lesið Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Erlent Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Héldu námskeið um heiðursofbeldi Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Fleiri fréttir Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Sonur þingmannsins ákærður Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ „Akkilesarhæll á vinnu gagnvart þessum hópum“ Feginn að verðbólga stendur í stað og meirihluti mótfallinn þátttöku í Eurovision Til Ilulissat á Airbus með nýjum flugvelli Biðin á Landspítalanum styttist til muna Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Rukka erlenda nemendur um milljónir Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Frumvarp kynnt um afnám æviráðningar Bein útsending: Kynnir aðgerðaáætlun gegn fátækt barna Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Sjá meira
Snerti samstarfskonu á ósæmilegan hátt Jakob Birgisson uppistandari og fyrrverandi aðstoðarmaður dómsmálaráðherra gengst við því að hafa snert samstarfskonu sína í ráðuneytinu á ósæmilegan hátt. Hann lét af störfum hjá ráðuneytinu í kjölfarið og hætti allri áfengisneyslu. 21. ágúst 2026 10:07
Jakob Birgisson og Þórólfur Heiðar aðstoðarmenn Þorbjargar Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra, hefur ráðið Jakob Birgisson, uppistandara og Þórólf Heiðar Þorsteinsson, lögfræðing, sem aðstoðarmenn sína. 2. janúar 2025 13:47