Sport

„Þetta er svo lúðalegt“

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
1septBesta

Það er nú eða aldrei fyrir KR sem tekur á móti Víkingi í stórleik sumarsins í Bestu deild karla.

Ef KR ætlar að eiga möguleika í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn verður liðið að vinna. Ef Víkingur fer heim með þrjú stig er baráttunni svo gott sem lokið.

Henry Birgir, Stefán Árni og Valur Páll hita rækilega upp fyrir leikinn og ræða auðvitað skemmdarverkin á Meistaravöllum sem hafa tröllriðið umræðunni það sem af er degi.

Verknaður sem hefur verið fordæmdur af öllum og þar á meðal Víkingum og stuðningsmönnum þeirra.

Málning verður leikmönnum þó örugglega ekki ofarlega í huga er leikurinn verður flautaður á. Leikir þessara liða í Vesturbænum síðustu ár hafa verið magnaðir og það verður örugglega engin breyting á að þessu sinni.

Svo er komið inn á umræðu um leikmannamarkaðinn og enska boltann.

Besta sætið er aðgengilegt á öllum helstu hlaðvarpsveitum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×