Íslenski boltinn

Bein út­sending: Púlsinn tekinn í KR-heimilinu

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Stuðningsmaður KR númer eitt, Bóas, verður örugglega á svæðinu.
Stuðningsmaður KR númer eitt, Bóas, verður örugglega á svæðinu. vísir/guðmundur

Stærsti leikur tímabilsins í Bestu deild karla til þessa fer fram að Meistaravöllum í Vesturbæ Reykjavíkur klukkan 17.30. Vísir tekur púlsinn á stemningunni fyrir leik.

Búast má við um þrjú þúsund manns að Meistaravöllum í kvöld og mikilli stemningu á þessum leik sem beðið er með mikilli eftirvæntingu.

Þá er spurning hversu mikil áhrif skemmdarverk sem unnin voru á vellinum í nótt hafi á nálgun liða í kvöld. Hvort það kveiki í mönnum, en þau verða vafalaust til umræðu.

Valur Páll Eiríksson er í Vesturbænum og ætlar að spjalla við hressa stuðningsmenn.

Beina útsendingu frá stemningunni í Vesturbænum má sjá í spilaranum en hún hefst um klukkan 16.30.

Leikur KR og Víkings hefst klukkan 17.30 og verður sýndur beint á Sýn Sport Ísland. Bein útsending hefst klukkan 17.10.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×