Hótelin fá ný nöfn Atli Ísleifsson skrifar 25. ágúst 2026 08:36 Hótel Natura verður Hótel Reykjavík Askja. Íslandshótel Frá 1. september 2026 verða tvö hótel í Reykjavík hluti af hótelrekstri Íslandshótela undir nýjum nöfnum. Hilton Reykjavík Nordica verður Hilton Reykjavík og Reykjavík Natura fær nafnið Hótel Reykjavík Askja.
Í tilkynningu segir að Hilton Reykjavík muni áfram starfa undir alþjóðlega Hilton-vörumerkinu og verði jafnframt hluti af hótelsafni Íslandshótela. „Hótel Reykjavík Askja verður hluti af Hótel Reykjavík vörumerkinu, sem fyrir eru Hótel Reykjavík Centrum, Hótel Reykjavík Grand og Hótel Reykjavík Saga. Nöfnin marka nýjan kafla fyrir þessi rótgrónu hótel við upphaf rekstrar Íslandshótela. Rekstur hótelanna heldur áfram óslitinn og fyrirhugaðar endurbætur verða framkvæmdar í áföngum. Hilton Reykjavík er með 251 herbergi og Hótel Reykjavík Askja 220 herbergi. Reitir og Íslandshótel munu í samstarfi ráðast í endurbætur á hótelunum með það að markmiði að auka gæði og aðdráttarafl þeirra, þar á meðal með endurnýjun stórs hluta hótelherbergjanna. Hilton Reykjavík við Suðurlandsbraut.Íslandshótel Veitingastaður, ráðstefnuþjónusta, veislusalir, heilsulindir og spa aðstaða verður áfram starfrækt á báðum hótelum. Reykjavík Spa Hilton verður á Hilton Reykjavík og Reykjavík Spa Askja á Hótel Reykjavík Öskju. Starfsemi heilsulinda Íslandshótela verður sameinuð undir heitinu Reykjavík Spa og nýr sameiginlegur vefur mun þjóna þeim. Nöfn veitingastaða beggja hótela verða kynnt síðar,“ segir í tilkynningunni. Um Íslandshótel segir að það reki nítján hótel með um 2.400 herbergjum víðs vegar um landið undir vörumerkjunum Fosshótel og Hótel Reykjavík. Kjarnastarfsemi félagsins er hótel- og veitingarekstur. Félagið á jafnframt stóran hluta þeirra fasteigna sem hýsa starfsemina.
Hótel á Íslandi Reykjavík Ferðaþjónusta Mest lesið Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira