Hlakkarðu til að fara í skólann? Hulda Dögg Proppé skrifar 24. ágúst 2026 07:30 Þessi spurning heyrist oft þegar líða tekur að hausti og að sjálfsögðu viljum við að börnin okkar geti svarað henni játandi. Við viljum að þau hlakki til að mæta aftur, hitta vini sína, læra eitthvað nýtt og takast á við allt við það fjölbreytta sem skólaárið færir þeim. Eitt er víst: Kennarar þessa lands hlakka til að hitta nemendur sína. Töfrarnir í skólastarfinu verða nefnilega fyrst til þegar börnin ganga inn um dyrnar að hausti. Um þau snýst allur leikurinn. Þau eru aðalatriðið. Þau eru ástæðan fyrir því að starfsfólk skólanna mætir til vinnu á hverjum degi. Eyrun á veggjunum Hvert sem svarið er þá litast það af því hvernig börnunum raunverulega líður í skólanum. Veggir skólans eru líklega þeir sem vita hvað mest um hvernig börnunum okkar líður. Innan þeirra fer fram svo miklu meira en það sem mælt verður með prófum, einkunnum eða stöðluðum mælikvörðum. Þar vaxa börn og þroskast í samfélagi sem á að skapast af virðingu fyrir náunganum og fjölbreytileikanum sem skapar heildina. Við erum öll ólík og þar ber helst að hlusta á hvernig Páll Óskar og Benni Hemm Hemm blása byr í hvert eitt brjóst í laginu Eitt af blómunum. Hvert og eitt blóm skiptir máli og saman mynda þau akurinn sem við dáumst að – framtíðina okkar. Kennarar eru óþreytandi við að skapa tækifæri til þess að öllum nemendum geti liðið vel og geti tekist á við verkefni við hæfi. Þeir samþætta verkefni, byggja á styrkleikum nemenda og leiða þá áfram á vegi aukinnar hæfni og færni, ekki aðeins í bóknámi heldur í öllu því fjölbreytta starfi sem fram fer innan skólans, ekki síst í félagslegum aðstæðum. Nám er nefnilega miklu meira og dýpra en það sem stendur í námsbókunum. Skóli sem stendur í stað er ekki góður skóli Skólaþróun er fastur liður í starfi kennara og ein mikilvægasta rót faglegs skólastarfs. Starfið snýst um að leita stöðugt nýrra leiða, dýpka nám og feta ólíka stíga til þess að ná til allra nemenda. Í þróuninni kristallast starf kennara og hún er í reynd hluti af skilgreiningu starfsins. Af þessu leiðir óhjákvæmilega að kennarar skorast ekki undan þeirri ábyrgð að rýna í niðurstöður, endurmeta starfshætti og skipuleggja nám með það að markmiði að framþróun eigi sér stað í síbreytilegum heimi, nemendum til heilla. Það þýðir líka að prófa þarf nýjar leiðir. Sumar þeirra heppnast frábærlega. Aðrar þarf að þróa áfram, breyta eða jafnvel leggja til hliðar. Það er einmitt eðli þróunarstarfs og samofið degi hverjum í veröldinni innan veggja skólans. Fólk ræðir saman, les fræði, deilir leiðum og leitar saman að rétta steininum sem gæti hjálpað hverjum og einum nemanda að komast yfir lækinn. Orðum fylgir ábyrgð Ein mikilvægasta forsenda þess að nám geti átt sér stað er að börnum líði vel. Í títtnefndum PISA-niðurstöðum kemur skýrt fram að nemendur á Íslandi eru yfir meðaltali OECD þegar það kemur að þeirri tilfinningu að tilheyra skólanum og skólasamfélaginu. Þar spilar mögulega sterkan undirtón sú umhyggja sem rannsóknir sýna að skipar stóran sess í starfi íslenskra kennara. Það er þó ekki eina stóra breytan. Heimilin og nærumhverfið eru nefnilega stærstu áhrifavaldarnir, foreldrar, systkini, ömmur, afar og annað fólk í nærumhverfi barnsins. Þess vegna skiptir máli hvernig við tölum um skólann. Orðum fylgir einfaldlega mikil ábyrgð. Sú orðræða sem hefur verið viðhöfð um kennarastarfið á ákveðnum vígstöðvum undanfarin misseri hefur haft afleiðingar. Þegar stöðugt er dregið úr fagmennsku fólks, störf þess tortryggð og tilraunir til þróunar skotnar niður með sláandi fyrirsögnum á ólíkum miðlum og umræðu sem virðist stundum eiga sér lítil sem engin takmörk, þá hefur það áhrif. Fólk þreytist. Fólk brennur út. Ljósið getur dofnað og þá geta skapast þær aðstæður að hvorki neistinn né kærleikurinn verða ofan á. Vanmáttur tekur yfir og þá víkur öll þróun. Í þessari neikvæðu orðræðu um kennara landsins og skólamál birtist ákveðin þversögn. Reyndin er sú að innan veggja skólans myndum við aldrei láta slíka orðræðu um einstakling eða hóp nemenda óáreitta. Við myndum grípa inn í enda bæri okkur skylda til. Við myndum ræða virðingu, ábyrgð og áhrif orða. Ef sama manneskjan eða sami hópurinn sætti ítrekað niðrandi og neikvæðri umræðu myndum við staldra við og spyrja okkur krefjandi spurninga. Kennarar myndu einfaldlega ekki láta það viðgangast að talað væri um eða við nemendur þeirra með þeim hætti sem notaður hefur verið í umræðu um störf þeirra sjálfra. Sömu ábyrgð ættum við að gera kröfu um í samfélaginu okkar. Hlakkar barnið þitt til að fara í skólann? Nú er skólinn að hefjast og búið að dusta rykið af skólatöskunum. Við berum öll ábyrgð á því að sem flest börn geti svarað spurningunni „Hlakkarðu til að fara í skólann?“ með einlægu ,,já”. Skólinn ber mikla ábyrgð. Kennarar bera ábyrgð. Stjórnendur bera ábyrgð. En heimilin og samfélagið allt bera hana ekki síður. Gætum því tungu okkar. Styðjum við nám barnanna okkar með jákvæðu hugarfari. Spyrjum spurninga þegar við erum ósammála. Gagnrýnum það sem þarf að gagnrýna, en gerum það af sanngirni, virðingu og á málefnalegan hátt. Temjum okkur að tala vel um skólann og fólkið sem þar starfar þegar börnin okkar hlusta því foreldrar og aðrir í nærumhverfi barns eru mikilvægustu áhrifavaldarnir í lífi þeirra. Verum þau sem stuðla að jákvæðri þróun í samfélaginu án sleggjudóma. Stuðlum að vellíðan og öryggi svo það sé raunverulega hægt að rýna til gagns. Ef þú vilt að barnið þitt hlakki til að fara í skólann, hugsaðu þá um orð þín; hvaða sögu þú segir um fólkið sem þar tekur brosandi á móti því hvern morgun. Það fólk hlakkar nefnilega til að brosa á móti börnunum og segja: Velkomin í skólann. Höfundur er starfandi aðstoðarskólastjóri Sæmundarskóla. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Börn og uppeldi Grunnskólar Skóla- og menntamál Mest lesið Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun Tíu ár af skattfrjálsri ráðstöfun Daði Már Kristófersson Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson skrifar Skoðun Gerast enn kraftaverk á Íslandi? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðey – perla í dvala Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Er öryggi barna sökkvandi skip? Alfa Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar Skoðun Það sem allir vilja hafa – en enginn vill sjá S. Hjörtur Guðjónsson skrifar Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson skrifar Skoðun Tíu ár af skattfrjálsri ráðstöfun Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og villts fisks Ingvi Örn Þorsteinsson skrifar Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir skrifar Skoðun Afföll í laxeldi Kristján Ingimarsson skrifar Skoðun Peptíð og íþróttir Birgir Sverrisson skrifar Skoðun Stórsókn eða stór orð? Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir skrifar Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Tímamót fyrir notendur – samningur SÍ og SÁÁ Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Ólafur, gæsin og gulleggin Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Eftirlit, útvistun og ábyrgð í velferðarþjónustu Þórhallur Guðmundsson skrifar Skoðun Það hefðu allir gott af því að greiða sín eigin laun Geir Kristinsson skrifar Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson skrifar Skoðun Nokkur orð um röflritun Kristján Logason skrifar Skoðun Alnetið er dautt! Lengi tóri lýðræðið! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Til hvers ætlum við að virkja? Andrés Kristjánsson skrifar Skoðun Ríkið ákveður – sveitarfélögin borga – skólarnir framkvæma Sævar Helgason skrifar Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir skrifar Skoðun Ábyrg sýn í málefnum útlendinga Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Sjá meira
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar
Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun