Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Freyja Þórisdóttir skrifar 23. ágúst 2026 22:18 Heildarvirði vef- og útvarpsmiðla Sýnar er sagt um 5,2 milljarðar króna. Vísir Kaup Ása hf. á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar hf. verða ekki að veruleika. Frestur til að ganga frá endanlegum kaupsamningi er liðinn án þess að samningur hafi verið undirritaður en ákveðið var að falla frá viðskiptum eftir viðræður í kjölfar áreiðanleikakönnunar.
Er þetta meðal þess sem fram kemur í tilkynningu Sýnar til Kauphallar en Sýn og Ásar, móðurfélag Símans, undirrituðu skilmálaskjal um fyrirhuguð kaup 12. mars síðastliðinn. Samkvæmt tilkynningunni er frestur samkvæmt skilmálaskjalinu nú liðinn og samningaviðræðum félaganna þar með lokið. Einkaréttur Ása til samningaviðræðna er jafnframt fallinn niður. Vefmiðlar og útvarpsstöðvar Sýnar verða því áfram innan félagsins. Í tilkynningunni segir að um sé að ræða öflugar einingar í góðum rekstri sem muni áfram styðja við kjarnastarfsemi Sýnar. Niðurstaðan hafi ekki áhrif á útgefna afkomuspá Sýnar fyrir árið 2026. Náðu ekki saman um viðskiptin Óljóst er hvers vegna viðskiptin gengu ekki eftir en þau voru háð niðurstöðu áreiðanleikakönnunar og samþykki beggja stjórna. Í tilkynningu Ása hf. til kauphallar segir að þessi niðurstaða hafi orðið ljós eftir „viðræður í kjölfar áreiðanleikakönnunar“ en Sýn segist hafa uppfyllt forsendur skilmálaskjalsins, þar á meðal forsendur fyrir umsömdu kaupverði er lúta að tekjum og rekstrarafkomu fjölmiðlaeiningarinnar. Rekstrareiningin sem um ræddi inniheldur vefmiðlana Vísi, Já.is, Innherja og Bland.is ásamt útvarpsmiðlum Bylgjunnar, Léttbylgjunnar, Gullbylgjunnar, FM957, X977 og hlaðvarpsveitunni Tal. Vísir er í eigu Sýnar.
Sýn Síminn Kaup og sala fyrirtækja Kauphöllin Fjarskipti Fjölmiðlar Tengdar fréttir Síminn og Sýn semja um kaup á Vísi og útvarpsstöðvum Síminn og Sýn hafa náð samkomulagi um að Síminn kaupi alla vef- og útvarpsmiðla Sýnar. Heildarvirði miðlanna er sagt um 5,2 milljarðar króna. Viðskiptin eru sögð háð niðurstöðum áreiðanaleikakönnunar og samþykki samkeppnisyfirvalda. 12. mars 2026 09:05 Mest lesið Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira
Síminn og Sýn semja um kaup á Vísi og útvarpsstöðvum Síminn og Sýn hafa náð samkomulagi um að Síminn kaupi alla vef- og útvarpsmiðla Sýnar. Heildarvirði miðlanna er sagt um 5,2 milljarðar króna. Viðskiptin eru sögð háð niðurstöðum áreiðanaleikakönnunar og samþykki samkeppnisyfirvalda. 12. mars 2026 09:05