Erlent

Hinn grunaði í sverðaárásinni í Fagersta í Sví­þjóð nafn­greindur

Freyja Þórisdóttir skrifar
Ulf Kristersson, forsætisráðherra Svíþjóðar, til vinstri, og Magdalena Andersson, leiðtogi Jafnaðarmannaflokksins, heimsækja minningarreit fyrir utan skóla í Fagersta í Svíþjóð,
Ulf Kristersson, forsætisráðherra Svíþjóðar, til vinstri, og Magdalena Andersson, leiðtogi Jafnaðarmannaflokksins, heimsækja minningarreit fyrir utan skóla í Fagersta í Svíþjóð, ap

Hinn átján ára gamli Liam Nebel hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald en hann er grunaður um morð og tilraun til manndráps eftir að 17 ára stúlka lést og þrír drengir særðust í skólaárás í Fagersta í Svíþjóð. Hann var sjálfur nemandi við skólann þar sem hann gekk berserksgang vopnaður sverði föstudaginn 22. ágúst.

Rétt eftir klukkan 14:00 á föstudaginn síðasta barst lögreglu í nágrenni Brinnel-skóla í Fagersta í Vestmannalandi í Svíþjóð tilkynning um að maður vopnaður sverði hefði ráðist á nemendur, er fram kemur í umfjöllun Aftonbladet um málið.

Tíu mínútum síðar hafi lögreglan verið komin á vettvang árásarinnar og skotið í átt að árásarmanninum en ekki hæft hann.

Mótmælti ekki

Þá er einnig greint frá því í umfjölluninni að árásarmaðurinn, Liam Nebel, hafi verið klæddur á sama hátt og Anton Lundin Pettersson, sem myrti þrjá í skólaárásinni í Trollhättan í Svíþjóð árið 2015.

17 ára stúlka lést og þrír drengir særðust í skólaárásinni en Nebel hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald og á hann ekki að hafa mótmælt handtökunni. Rannsóknin sé á frumstigi.

Meðal þess sem er vitað um Nebel er að uppeldi hans einkenndist af ofbeldi og hótunum en hann hafi verið vistaður á fósturheimili um tíma. Hann hafi á tímabili verið neyddur til að æfa bardagaíþróttir gegn vilja sínum og neitað um að nota gleraugu þegar hann þurfti á þeim að halda.

Minni óneitanlega á árásina 2015

Karl Gústaf Svíakonungur hefur tjáð sig um árásina á vefsíðu sænsku konungsfjölskyldunnar og segir:

„Það er með harmi og sorg sem við höfum fengið þær fréttir að Svíþjóð hafi enn og aftur orðið fyrir skólaárás. Hugur minn er hjá þeim sem urðu fyrir árásinni, fjölskyldum þeirra og aðstandendum.“

Þá hefur forsætisráðherra Svíþjóðar, Ulf Kristersson, heimsótt bæinn um helgina en haft er eftir honum í umfjöllun Aftonbladet að „það sem ekki átti að gerast hefur gerst aftur. Hugur okkar er fyrst og fremst hjá fjölskyldunum sem hafa orðið fyrir ótrúlega miklu áfalli.“

Auðvitað leiti hugurinn aftur til þess sem gerðist í Trollhättan árið 2015, í Risbergska fyrir rúmu ári síðan. Þess vegna segi hann að „það sem ekki átti að gerast hafi gerst aftur“. Þá lést kennari og ellefu ára drengur en líkt og fyrr segir var Nebel klæddur svipuðum fötum og Anton Lundin Pettersson sem var einnig vopnaður sverði.

Sveitarfélagið Fagersta hefur opnað áfallamiðstöð til stuðnings samfélaginu sem er harmi slegið vegna árásarinnar. Í bænum búa um tólf þúsund manns.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×