Bíó og sjónvarp

Bautista hleypur í skarðið

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Bautista munu leika saman í God of War.
Bautista munu leika saman í God of War.

Leikarinn Dave Bautista hefur verið ráðinn til að leika stríðsguðinn Kratos í sjónvarpsþáttum byggðum á tölvuleiknum God of War eftir að Ryan Hurst, sem átti upphaflega að fara með hlutverkið, slasaðist alvarlega í tökum. Bautista mun þar leika á móti Ólafi Darra Ólafssyni í hlutverki þrumuguðsins Þórs.

Bransamiðillinn Deadline greinir frá tíðindunum en þar kemur fram að kvikmyndaverin Amazon MGM Studios og Sony Pictures Television hafi hafið viðræður við Bautista skömmu eftir að ákveðið var að endurráða í hlutverkið í júlí.

Bandaríski leikarinn Ryan Hurst, þekktastur fyrir mótorklíkuþættina Sons of Anarchy (2008-14), var upphaflega ráðinn í hlutverkið en reif tvíhöfða við tökur á áhættuatriði seint í júnímánuði, þegar fjórir mánuðir voru liðnir af tökum. 

Dave Bautista, sem er þekktastur fyrir leik sinn í Guardians of the Galaxy (2014) og Blade Runner 2049 (2017), tekur við rullunni af samlanda sínum og mun væntanlega setja sitt mark á karakterinn með sínum mikla vöðvamassa og áralöngu reynslu úr fjölbragðaglímu.

Undirbúningur fyrir tökurnar hefst í þessum mánuði og hefjast þær svo um miðjan október í Vancouver í Kanada. Byrja þær tökurnar algjörlega að nýju þar sem ekkert gamalt myndefni verður notað. Bautista fær því ekki mikinn tíma til að undirbúa sig en er í góðu líkamlegu standi eftir að hafa tekið upp kvikmyndina Highlander fyrr á árinu.

Sjónvarpsþættirnir God of War byggja á samnefndri tölvuleikjaseríu sem hefur notið mikilla vinsælda á síðustu leikjatölvum Playstation frá 2005 til ársins í ár. Serían byggir aðallega á grískri og norrænni goðafræði en einnig koma við sögu guðir úr egypskri, babýlónskri og japanskri goðafræði.

Þættirnir fjallaa um feðgana Kratos (Bautista) og Atreus (Callum Vinson) sem halda í ferðalag til að dreifa ösku Faye, konu Kratosar og móður Atreusar, og lenda þar í ýmsum hremmingum og ævintýrum. Til stendur að taka upp tvær seríur sem munu svo koma út á Amazon Prime.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.