Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar 22. ágúst 2026 12:14 Bára Eyfjörð Heimisdóttir er formaður Félags Dýralækna. aðsend Grafalvarleg staða er á Suðausturlandi þar sem enginn dýralæknir er starfandi á stórum hluta svæðisins og fá bændur því enga heilbrigðisþjónustu fyrir veik og slösuð dýr. Þetta segir formaður Dýralæknafélags Íslands sem segir bændur órólega og stjórnvöld engu svara.
Svæðið sem um ræðir nær frá Djúpavogi suður að Gígjukvísl og hefur enginn dýralæknir verið starfandi á svæðinu frá því í síðustu viku þegar dýralæknir sem starfaði á Höfn lét af störfum. Bára Eyfjörð Heimisdóttir, formaður Dýralæknafélags Íslands segir stöðuna alvarlega. „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði. Á Höfn og nágrannasveitum Hafnar þar sem að það er enginn dýralæknir frá Kirkjubæjarklaustri að Breiðdalsvík og enga þjónustu að fá frá dýralækni á þessu svæði, þannig að það er grafalvarlegt.“ Rúmlega þriggja klukkutíma aksturskafli Aðspurð hvernig standi á því segir Bára að í fyrsta lagi séð svæðið allt of stórt sem valdi því að vakthafandi dýralæknir þurfi að aka langar vegalengdir. „Matvælastofnun er ítrekað búin að senda út auglýsingar til að reyna að fá dýralækna til að taka þetta að sér. En starfsskilyrði eru bara ekki nógu aðlaðandi þar sem að svæðið er svo stórt og það er svo erfitt að vera alltaf á vakt og hafa engan til að skipta vaktinni með eða láta bara fjölskyldulíf og starfið ganga upp saman.“ Endurskoða þurfi greiðslur og bakvaktakerfi Nauðsynlegt sé að minnka svæðin en áður fyrr voru svæðin mun fleiri og minni, auk þess sem endurskoða þurfi bakvaktakerfi dýralækna um allt land. Þá segir Bára að endurskoða þurfi greiðslur til dýralækna sem í dag séu allt of lágar og gera starfsvettvanginn aðlaðandi fyrir unga dýralækna. „Fólk tekur þetta ekki að sér á þessum launum eins og þau gefa í dag kannski í vasann á bilinu 15.000 upp í 25.000 fyrir 16 tíma vakt.“ Stjórnvöld engu svarað Bára segir félagið hafa reynt að ná eyrum stjórnvalda en engin svör fengið. Bændur og aðrir sem haldi dýr á svæðinu séu órólegir. „Það er svo skiljanlegt að þeim lítist ekki á blikuna af því að það er náttúrulega bara ömurlegt að vera í þeirri stöðu að þurfa að horfa upp á veik og jafnvel slösuð dýr og enga hjálp að fá og eina leiðin eins og jafnvel fyrir bændur að skjóta dýrið. Það er náttúrulega bara ömurlegt.“ Málið snúist um dýravelferð. „Ég vil bara fyrst og fremst ná eyrum stjórnvalda og þeirra sem að fara með þessi mál, af því að það eru ekki dýralæknar, það eru ekki bændur eða Matvælastofnun sem leysa þetta, það eru stjórnvöld. Og þetta samtal þurfum við að fá hratt og fljótt.“
Dýr Heilbrigðismál Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Fleiri fréttir Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Sjá meira