Frank Beard er látinn 77 ára að aldri Freyja Þórisdóttir skrifar 18. ágúst 2026 20:14 Frank Beard hefur verið kallaður akkeri hljómsveitarinnar ZZ top í smellum á borð við „La Grange“, „Tush“ og „Legs“ á fimm áratuga ferli hennar. Getty Frank Beard, trommari bandarísku rokkhljómsveitarinnar ZZ Top til fimmtíu og sex ára, er látinn, sjötíu og sjö ára að aldri. Hann lést á líknardeild á búgarði sínum í Richmond í Texas-fylki í Bandaríkjunum umvafinn fjölskyldu sinni og ástvinum. Þrátt fyrir að hafa ekki verið í hljómsveitinni frá því að hún var stofnuð spilaði Beard inn á allar fimmtán plötur hennar.
Kemur þetta fram í fjöldamörgum erlendum miðlum en bandaríski miðillinn Variety greinir frá því að í yfirlýsingu hafi Billy Gibbons, einn stofnmeðlimur hljómsveitarinnar ZZ top, tilkynnt um andlátið. Frank Beard, trommari ZZ top, kom víða fram og lengst af var það með þeim Billy Gibbons og Dusty Hill.Getty „Í dag höfum við Elwood [gítarleikari hljómsveitarinnar frá árinu 2021 og vinur Beard] misst góðan vin og samstarfsmann og heimurinn einn af frumlegustu trommurum sem uppi hafa verið og sannan son Texas. Einkennandi taktur hans var lykillinn að því að halda ZZ á toppnum. Hljómsveitin, sem hann var hluti af í sex áratugi, mun halda áfram eins og hann hefði óskað.“ Í síðustu viku aflýsti ZZ Top skyndilega tónleikum sínum í Hollywood Bowl vegna heilsubrests Beards en á síðasta ári hafi hann sömuleiðis Beard sér tímabundið hlé frá tónleikaferðalögum af svipuðum ástæðum. Tók við trommukjuðunum ´69 Þrátt fyrir að vera ekki stofnmeðlimur ZZ Top hafði Beard spilað með hljómsveitinni frá árinu 1971 þegar fyrsta plata hljómsveitarinnar, „First Album“, var gefin út og þar til sú nýlegasta leit dagsins ljós árið 2012. Sú ber heitið „La Futura“. Frank Beard fæddist þann 11. júní árið 1949 í Frankston í Texas og ólst upp í Irving í Texas. Áður en hann gekk til liðs við ZZ Top spilaði hann í ýmsum hljómsveitum, þar á meðal American Blues, the Warlocks, Hustlers og Cellar Dwellers. Beard tók við trommukjuðunum af Dan Mitchell í ZZ Top árið 1969 og hjálpaði til við að fá bassaleikarann Dusty Hill yfir í hljómsveitina en hann spilaði áður með American Blues. Hann spilaði með hljómsveitinni út ævina og fór í ótal tónleikaferðalög sem halda áfram enn í dag. Hér fyrir neðan má sjá flutning sveitarinnar á laginu „La Grange“ árið 1982 í Þýskalandi.
Tónlist Andlát Bandaríkin Mest lesið Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Lífið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Keppast um að minnast Stewarts Lífið Skemmtileg leið til að halda minningunni á lífi Menning Stundum gott að fara öruggu leiðina Tíska og hönnun Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið „Ég hef þurft að læra að lifa með því sem ekki verður breytt“ Lífið samstarf Spesíur Elenoru: Jólaklassík sem tekur aðeins 30 mínútur Lífið samstarf Patrick Stewart látinn Lífið Erna Mist og Þorleifur selja Lífið Fleiri fréttir Keppast um að minnast Stewarts Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Sjá meira