„Ef Óman þvælist fyrir, sprengjum við þá í tætlur" Samúel Karl Ólason skrifar 17. ágúst 2026 13:01 Donald Trump er enn vígreifur í garð Írana. AP/Mark Schiefelbein Donald Trump segir að sér liggi ekkert á þegar kemur að því að binda enda á stríðið gegn Íran. Hann hvetur ráðamenn þar þó til að gefast upp hið snarasta. Um Óman, sem hefur átt í viðræðum við Íran um framtíðarstjórn á Hormússundi, segir forsetinn ráðamönnum þar að standa ekki í vegi sínum. „
Ef Óman þvælist fyrir, sprengjum við þá í tætlur." Þetta er meðal þess sem Trump sagði í viðtali við Trey Ingst, fréttamann Fox News. Sextíu daga vopnahlé Bandaríkjanna og Íran rennur út í dag. Framhaldið þykir mjög óljóst. Bandaríkjamenn og Íranir virðast fjarri því að ná saman um það hvernig hægt sé að binda enda á stríðið. Sjá einnig: Dregur enn frekar úr líkum á samningi með skaðabótakröfu Ráðamenn í Óman hafa átt í viðræðum við erindreka klerkastjórnarinnar í Íran um mögulega lausn á því hvernig stjórna á umferð um Hormússund í framtíðinni. Erindrekar frá Óman fóru í síðasta mánuði til Íran og kynntu þar tillögu að samkomulagi sem studd var af leiðtogum annarra ríkja við Persaflóa. Sú tillaga fól meðal annars í sér valfrjáls gjöld fyrir siglingar um sundið. Þeirri tillögu höfnuðu Íranir en viðræður hafa haldið áfram. Harðlínumenn innan ríkisstjórnarinnar hafa haldið árásum á skip á Hormússundi áfram á meðan aðrir segja viðræður ganga vel. Sjá einnig: Íranir segja viðræður á lokametrunum Verulega hefur dregið úr siglingum um sundið á undanförnum mánuðum vegna stríðs Bandaríkjamanna og Ísraela gegn Írönum. Þegar stríðið hófst gerðu Íranir árásir á skip á sundinu, komu þar fyrir tundurtuflum og lýstu því yfir að sundinu væri lokað. Hins vegar væri hægt að komast þar í gegn ef klerkastjórnin fengi toll. Þetta hefur haft gífurleg áhrif á olíumarkaði um heiminn allan, þar sem um fimmtungur allrar olíu heimsins og gífurlega mikið jarðgas var flutt um Hormússund fyrir stríðið. Trump hefur ítrekað haldið því fram að þegar stríðinu ljúki muni hann lýsa því yfir að sundið verði bandarískt hafsvæði og að Bandaríkjamenn muni stjórna því til frambúðar. Sjá einnig: Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Þetta sagði Trump síðast núna um helgina. Trump: After we finish defeating Iran, I will be declaring the Hormuz Strait a territory of the United States. pic.twitter.com/8cu9gem82b— Acyn (@Acyn) August 14, 2026 Áður hefur hann gefið í skyn að Bandaríkin gætu reynt að rukka toll um siglingar um sundið. Bara búnir að nota „tittlingaskít“ Í viðtalinu við Yngst sagði Trump einnig að erindrekar sínir ættu í viðræðum við Írani á bak við tjöldin og þá sérstaklega við leiðtoga íranska byltingarvarðarins. Það er langöflugasta deild herafla Íran og Byltingarvörðurinn spilaði stóra rullu í því að koma Mojtaba Khamenei til valda eftir að faðir hans, Ali Khamenei, var felldur í loftárás. Stríðið gegn Íran hefur reynst verulega óvinsælt í Bandaríkjunum og telja greinendur að óánægjan gæti komið niður á Repúblikönum í þingkosningunum í nóvember. Trump sagði þó að sér liggi ekkert á þegar kemur að því að binda enda á stríðið. „Þeir eru góðir í póker en þeir eru að deyja,“ sagði Trump um leiðtoga Byltingarvarðarins. Þeir leiðtogar eru sagðir mestu harðlínumennirnir í klerkastjórninni. Sjá einnig: Harðar deilur innan klerkastjórnarinnar Þegar kemur að vopnabúrum Bandaríkjamanna sagði Trump nóg til í þeim. Fregnir hafa ítrekað borist af því að Bandaríkjamenn hafi gengið verulega á birgðir sínar af ýmsum mikilvægum vopnum og flugskeytum í loftvarnarkerfi. Í síðasta mánuði gerði Trump hlé á árásum á Íran, eftir að hann fundaði með herforingjum sínum og ráðgjöfum. Á þeim fundi eru margir sagðir hafa lýst yfir áhyggjum af áðurnefndum tómum hillum. Sjá einnig: Sakar lekamenn um landráð vegna „rangra“ frétta Í samtali við fréttamann Fox sagði Trump nóg til af vopnum. „Það sem við erum búnir að nota er bara tittlingaskítur.“ President Trump told Fox News that Iran should "put up the white flag of surrender.""I have no time schedule," Trump added. "I'm not in a hurry...the midterms have nothing to do with my thinking."The President confirmed there is a direct backchannel with IRGC officials.… pic.twitter.com/OAHFVWSQFs— Trey Yingst (@TreyYingst) August 17, 2026 Harðlínumönnum vex ásmegin Eins og áður segir rennur vopnahléið úr gildi í dag en það hefur staðið yfir í sextíu daga. Þann tíma hafa ráðamenn í Íran notað til að búa sig undir frekari átök við Bandaríkjamenn og auka áhrif sín og þrýstinginn á olíumarkaði, og þar af leiðandi á hagkerfi heimsins. Samkvæmt heimildarmönnum Wall Street Journal í bæði Íran og nágrannaríkjum landsins hefur harðlínumönnunum innan Íran vaxið ásmegin. Byltingarvörðurinn hefur tekið meiri stjórn á öllum herafla Íran og Íranir hafa átt í samskiptum við bandamenn sína í Jemen og Írak, um undirbúning fyrir frekari átök við Bandaríkin og leiðir til að hægja á flutningi olíu og auka þrýstinginn á Trump. Embættismenn í nágrannaríkjum Íran segjast hafa upplýsingar um að ráðamenn í Íran séu tilbúnir fyrir frekari átök. Innan klerkastjórnarinnar eru þó menn eins og Masoud Pezeshkian, forseti, sem vara við því að hagkerfi Íran standi höllum fæti og gæti hrunið standi stríðið lengi yfir.
Bandaríkin Donald Trump Íran Óman Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Hernaður Bensín og olía Tengdar fréttir Trump tekur sér stöðu með Norður-Kóreu gegn Suður-Kóreu Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur skipað varnarmálaráðuneyti sínu að draga verulega úr samstarfi Bandaríkjahers við Suður-Kóreu. Hann segir enga ógn stafa af Norður-Kóreu þrátt fyrir vígvæðingu alræðisríkisins. 17. ágúst 2026 08:57 Hafa áhyggjur af geðheilsu þúsunda sjóliða Þúsundir bandarískra sjóliða, flugmanna og hermanna hafa búið um borð í flugmóðurskipinu USS Abraham Lincoln í níu mánuði og ekki stigið á land í um 250 daga. Aðstandendur þeirra, þingmenn og aðrir hafa áhyggjur af því hve aðstæður um borð hafa versnað á þessum tíma. Áhöfnin er sögð hafa þurft að glíma við matarskort, bilaðar skólplagnir, mikið álag og þreytu. 13. ágúst 2026 23:15 Úkraínumenn gáfu Kananum á baukinn Bandarískir hermenn í Þýskalandi héldu í vor æfingu sem úkraínsk drónasveit tók einnig þátt í. Æfingin fór ekki vel fyrir Bandaríkjamenn en Úkraínumennirnir notuðu dróna til að sigra þá, með nokkuð afgerandi hætti. 13. ágúst 2026 22:02 Mest lesið Lúsmýið yrði alltaf verra en moskítóflugan Innlent Hætta sölu til Japan: Hvalkjötið nýtt í framleiðslu fæðubótarefnis Innlent Lögreglumál: Sátu fastir eftir að slökkt var á parísarhjólinu Innlent Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Erlent Aðalmeðferð hefst í Reykholtsmálinu Innlent Viðreisn fjarlægir bænina af Facebook: „Við viljum ekki særa fólk“ Innlent Brotist inn í garnverslun í Árbæ Innlent Evrópuvaktin 2026: Þjóðin gengur að kjörborðinu Innlent Bogi Ísak Nilsson er látinn Innlent Ákafir þátttakendur beggja fylkinga rugli fólk viljandi í ríminu Innlent Fleiri fréttir „Ef Óman þvælist fyrir, sprengjum við þá í tætlur" Réttarhöldin gegn Murdaugh færð, fari þau yfir höfuð fram Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Trump tekur sér stöðu með Norður-Kóreu gegn Suður-Kóreu Hæsta stytta Evrópu af Maríu mey afhjúpuð Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Kushner mættur til Ísrael Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Tugir látnir eftir stóran jarðskjálfta Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Mangione játar sök: „Ég skaut herra Thompson og hann lést“ Biður hæstarétt um grænt ljós á veislusalinn „Óumflýjanlegt“ að sjúkdómar blossi aftur upp vegna aðgerða Bandaríkjanna Í basli með að finna nýjan sendiherra í Washington DC Trump skipar sjóhernum að notast aftur við gufu Gróður brennur beggja vegna Ermarsunds Sektaður fyrir að nota þokulúður til að vekja ísbjörn Búa sig undir annað áhlaup á Ceuta Fara fjallabaksleið til að koma nafni Trump á Kennedy-miðstöðina Farage sigraði en Ruslatunnufés greifi hlaut fjórðung atkvæða Sjá meira
Trump tekur sér stöðu með Norður-Kóreu gegn Suður-Kóreu Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur skipað varnarmálaráðuneyti sínu að draga verulega úr samstarfi Bandaríkjahers við Suður-Kóreu. Hann segir enga ógn stafa af Norður-Kóreu þrátt fyrir vígvæðingu alræðisríkisins. 17. ágúst 2026 08:57
Hafa áhyggjur af geðheilsu þúsunda sjóliða Þúsundir bandarískra sjóliða, flugmanna og hermanna hafa búið um borð í flugmóðurskipinu USS Abraham Lincoln í níu mánuði og ekki stigið á land í um 250 daga. Aðstandendur þeirra, þingmenn og aðrir hafa áhyggjur af því hve aðstæður um borð hafa versnað á þessum tíma. Áhöfnin er sögð hafa þurft að glíma við matarskort, bilaðar skólplagnir, mikið álag og þreytu. 13. ágúst 2026 23:15
Úkraínumenn gáfu Kananum á baukinn Bandarískir hermenn í Þýskalandi héldu í vor æfingu sem úkraínsk drónasveit tók einnig þátt í. Æfingin fór ekki vel fyrir Bandaríkjamenn en Úkraínumennirnir notuðu dróna til að sigra þá, með nokkuð afgerandi hætti. 13. ágúst 2026 22:02