Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Sigurgeir Þorkelsson skrifar 13. ágúst 2026 11:59 Ármann Þorvaldsson, forstjóri Kvika Aðsend Kvika banki hagnaðist um 1545 milljónir króna á öðrum ársfjórðungi. Hagnaður sama tímabils í fyrra, árið 2025, var rúmir tveir milljarðar og lækkar hagnaður um 24 prósent milli ára.
Mestu munar um samdrátt í hreinum þóknanatekjum sem dragast saman um tæp 27 prósent milli ára og fara úr rúmum 1,9 milljörðum í rúmlega 1,4 milljarða. Arðsemi efnislegs eiginfjár (RoTE) lækkar milli ára og fer úr 18,5 prósentum í 15,1 prósent. Rekstrarkostnaður lækkaði um 1,1 prósent milli ára og nam 2,95 milljörðum á ársfjórðungnum. Fyrri helmingur árs þó sterkur Myndin breytist þó þegar horft er á fyrri helming árs og borið saman við fyrri helming árs í fyrra en hagnaður á tímabilinu eykst um 40 prósent milli ára. Kvika banki hagnaðist um tæpa 2,3 milljarða á fyrri helmingi árs en hagnaðurinn í fyrra var rúmir 1,6 milljarðar. Hagnaður fyrir skatta var 3,35 milljarðar. Nokkur vöxtur er í innlánum frá viðskiptavinum á árinu sem nema nú 201 milljarði króna, samanborið við 173 milljarða í lok árs 2025. Nemur vöxturinn því 16,5 prósentum á tímabilinu. Einnig er vöxtur í útlánum Kviku banka á tímabilinu. Þau nema nú 223 milljörðum króna og hafa aukist um 7,6 prósent á fyrri helmingi ársins. Kvika banki átti fyrr á árinu í viðræðum við Arion banka um sameiningu. Vísir/Lýður Þá dregst eigið fé saman, úr 69 milljörðum í 58 milljarða króna, og nemur eiginfjárhlutfall nú 23,0 prósentum. Bankinn greiddi tíu milljarða arðgreiðslu út til eigenda sinna í júní. Athygli vekur að eignir í stýringu lækka úr 469 milljörðum í 449 milljarða króna. Prýðilegur fjórðungur samkvæmt forstjóranum Í tilkynningu fagnar Ármann Þorvaldsson, forstjóri Kviku, því að rekstrarkostnaður dragist saman á sama tíma og verðbólga geisar. Ármann skýrir samdrátt í þóknanatekjum með því að þær hafi verið óvenju háar á öðrum ársfjórðungi 2025 vegna útboðs á hlut ríkisins í Íslandsbanka og erfiðra aðstæðna á íslenskum hlutabréfamarkaði. Áfram sé unnið að hagræðingu innan bankans, sem réðst meðal annars í uppsagnir í júní, og stefnt sé á að selja dótturfélag hans, Straum. „Rekstur bankans á öðrum fjórðungi gekk prýðilega og mörg stór skref voru stigin í þá átt að auka arðsemi bankans til framtíðar. Fyrri árshelmingur var í heild sinni mjög góður og umtalsverð hagnaðaraukning milli ára,“ er haft eftir Ármanni í tilkynningu.
Uppgjör og ársreikningar Kvika banki Efnahagsmál Mest lesið Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Gervigreindin: „Ég hef bara aldrei upplifað aðra eins breytingu“ Atvinnulíf Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Sjá meira