Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Árni Sæberg skrifar 13. ágúst 2026 10:38 Bergþóra Baldursdóttir er hagfræðingur í greiningardeild Íslandsbanka. Visir/Anton Brink Greiningardeild Íslandsbanka spáir því að verðbólga aukist úr 5,3 prósentum í 5,6 prósent í ágúst með 0,15 prósenta hækkun vísitölu neysluverðs. Það yrði mesta verðbólga frá ágúst árið 2024. Landsbankinn spáir einnig aukningu verðbólgu en ívið minni en Íslandsbanki.
Í verðbólguspá á vef Íslandsbanka segir að útsölulok setji svip sinn á mælinguna en einnig hækki reiknuð húsaleiga og háskólagjöld. „Áhugavert verður að sjá hvort aukin aðsókn ferðamanna í tengslum við sólmyrkvann hafi áhrif á verðmælinguna í ágúst. Við spáum minni lækkun flugfargjalda en oft á þessum árstíma auk þess sem verð á veitinga- og gistiþjónustu hækkar. Hagstofan birtir vísitölu neysluverðs 27. ágúst næstkomandi.“ Langt yfir viðmiði Greiningardeildin bendir á að miðað við spána muni verðbólga í ágúst mælast tæpu prósentustigi yfir 4,7 prósenta viðmiði Stöðugleikasamninganna svokölluðu. Við þær aðstæður opnist heimild til að endurskoða samningana og, náist ekki samkomulag um viðbrögð við forsendubresti, segja þeim upp. Ríflega eitt ár sé eftir af gildistíma samninganna, sem renna út í janúar 2028. Óveruleg áhrif af almyrkvanum Þá segir að því hafi að undanförnu verið velt upp hvort almyrkvinn í gær gæti haft áhrif á verðbólgumælingar, þar sem hann hafi átt sér stað á sama tíma og verðmælingavika Hagstofunnar. Samkvæmt mælingum greiningardeildarinnar sé mögulegt að aukin eftirspurn í tengslum við sólmyrkvann hafi ýtt lítilega undir verðhækkanir í tilteknum liðum ferðaþjónustu, einkum gisti- og veitingaþjónustu. „Áhrifin virðast þó ekki veruleg en ferðaþjónusta vegur nú um 6,5% í vísitölu neysluverðs. Mikilvægt er þó að hafa í huga að slík áhrif væru líklega tímabundin. Hafi sólmyrkvinn stuðlað að hækkun verðs í ágúst má ætla að verðþróunin gangi að einhverju leyti til baka í næsta mánuði.“ Þrálát verðbólga út árið Loks segir að greiningardeildin geri ráð fyrir að verðbólga verði á svipuðum slóðum út árið áður en hún taki að hjaðna á fyrstu mánuðum næsta árs. Þróunin næstu mánuði skýrist að nokkru leyti af grunnáhrifum þar sem hagfelldar vísitölumælingar frá síðasta ári detti úr tólf mánaða takti verðbólgunnar. Til hækkunar leggist einnig áhrif af lokum tímabundinnar lækkunar virðisaukaskatts á eldsneyti og hækkun komugjalda í heilsugæslu, sem taki gildi í september. Verðbólguhorfur næstu mánuði séu sem hér segir: September: 0,2% hækkun VNV (5,7% ársverðbólga)– áhrif tímabundinna aðgerða stjórnvalda renni út og virðisaukaskattur á eldsneyti hækki. Hækkun komugjalda í heilsugæslu hafi einnig áhrif til hækkunar. Á móti komi að flugverð lækkar. Október: 0,25% hækkun VNV (5,4% ársverðbólga) – árstíðarbundin áhrif fjari út og flestir liðir leggist á eitt og hækka smávegis. Nóvember: -0,4% lækkun VNV (5,5% ársverðbólga) - Dagur einhleypra lendi í verðsöfnunarvikunni. Flugverð lækki. Þrátt fyrir lækkun VNV í nóvember aukist ársverðbólga lítillega þar sem óvenju hagstæð mæling frá sama mánuði í fyrra falli út úr tólf mánaða samanburðinum. Landsbankinn aðeins bjartsýnni Hagfræðingar Landsbankans gáfu út spá sína fyrir verðbólgumælingu ágústmánaðar nokkrum mínútum eftir að kollegar þeirra í Íslandsbanka birtu sína. Þeir eru aðeins bjartsýnni og reikna með því að verðbólga mælist 5,5 prósent í ágúst. „Við spáum því að vísitala neysluverðs hækki um 0,10% á milli mánaða í ágúst og að ársverðbólga verði 5,5%. Hagstofan birtir ágústmælingu vísitölunnar fimmtudaginn 27. ágúst. Meiri óvissa en venjulega ríkir um ágústspána, einkum vegna tímabundinna verðáhrifa sólmyrkvans, sem erfitt er að meta nákvæmlega. Hækkun skráningargjalda við opinbera háskóla mun einnig hafa áhrif til hækkunar í mánuðinum,“ segir á vef Landsbankans. Spá bankans til næstu mánaða sé að vísitala neysluverðs hækki um 0,10 prósent í ágúst, 0,20 prósent í september, 0,12 prósent í október og lækki um 0,46 prósent í nóvember. Gangi spáin eftir muni verðbólga mælast 5,5 prósent í ágúst, 5,6 prósent í september, 5,2 prósent í október og 5,3 prósent í nóvember. „Spáin er hærri en síðasta spá okkar, sem birt var eftir júlímælingu Hagstofunnar. Munurinn skýrist af hærra eldsneytisverði í ágúst en við gerðum ráð fyrir þá.“
Verðlag Efnahagsmál Íslandsbanki Landsbankinn Fjármálafyrirtæki Mest lesið Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Gervigreindin: „Ég hef bara aldrei upplifað aðra eins breytingu“ Atvinnulíf Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Sjá meira