Ocasio-Cortez á lausu Magnús Jochum Pálsson skrifar 12. ágúst 2026 10:43 Fultrúadeildarþingmaðurinn Alexandria Ocasio-Cortez hefur opnað sig um eggjafrystingu sína og virðist vera að gera það ein síns liðs. EPA Alexandria Ocasio-Cortez, fulltrúadeildarþingmaður Demókrataflokksins, ku vera einhleyp eftir að það slitnaði upp úr sambandi hennar við unnustann Riley Roberts. Parið hafði verið saman í rúman áratug þegar þau trúlofuðu sig árið 2022 en nú hefur komið í ljós að leiðir skildu fyrir um tveimur árum síðan.
Blaðamaðurinn Leigh Ann Caldwell hjá netmiðlinum Puck greindi fyrst frá tíðindunum í gær og sagði um tvö ár síðan parið sleit trúlofuninni og fór hvort sína leið skömmu síðar. Ekki liggur þó fyrir nákvæmlega hvenær það gerðist en þingkonan hefur náð að halda því algjörlega leyndu í allan þennan tíma. Dægurmálamiðillinn TMZ hefur eftir fjölda heimildarmanna að langt sé síðan parið sást saman og síðasta myndin sem náðist af þeim saman opinberlega var á Met-galanu árið 2021. Talsmaður Ocasio-Cortez vildi ekki tjá sig við TMZ um málið þegar leitað var viðbragða við fréttaflutningnum. Nýlega greindi Ocasio-Cortez frá því að hún væri að frysta egg sín og hefur leyft fylgjendum sínum að fylgjast með ferlinu. Hún segist hafa ákveðið að greina frá ákvörðuninni til að opna umræðuna, þrátt fyrir að það feli í sér ákveðna pólitíska áhættu. Unnustinn fyrrverandi hefur hvorki sést í myndböndum Ocasio-Cortez né hún minnst á hann. Þingkonan sagði jafnframt í viðtali við This Week á ABC News að hún útilokaði ekki forsetaframboð en hún hefur oft verið orðuð við forsetaframbið fyrir forsetakosningarnar árið 2028. Þá gaf hún í skyn að hún myndi mögulega sækjast eftir öldungadeildarsæti Chuck Schumer en tók fram að Demókratar ættu að einbeita sér að þingkosningunum í nóvember.
Bandaríkin Ástin og lífið Mest lesið Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Lífið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Keppast um að minnast Stewarts Lífið Skemmtileg leið til að halda minningunni á lífi Menning Stundum gott að fara öruggu leiðina Tíska og hönnun Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið „Ég hef þurft að læra að lifa með því sem ekki verður breytt“ Lífið samstarf Spesíur Elenoru: Jólaklassík sem tekur aðeins 30 mínútur Lífið samstarf Patrick Stewart látinn Lífið Erna Mist og Þorleifur selja Lífið Fleiri fréttir Keppast um að minnast Stewarts Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Sjá meira