Körfubolti

Fyrsti leikur LeBron með Sixers gegn meisturum Knicks

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Tuttugastaogfjórða tímabil LeBrons James í NBA-deildinni hefst gegn meisturum New York Knicks.
Tuttugastaogfjórða tímabil LeBrons James í NBA-deildinni hefst gegn meisturum New York Knicks. getty/Kevin Mazur

Í fyrsta keppnisleik sínum fyrir Philadelphia 76ers mætir LeBron James meisturum New York Knicks.

Eftir 53 ára bið varð Knicks loks NBA-meistari á síðasta tímabili. Titilvörn Knicks hefst 20. október næstkomandi þegar Sixers kemur í heimsókn í Madison Square Garden.

Leikmannahópur Sixers hefur tekið miklum breytingum í sumar. Hæst ber að félagið fékk LeBron frá Los Angeles Lakers og Jaylen Brown frá Boston Celtics.

Þeir þreyta frumraun sína með Sixers gegn Knicks þriðjudaginn 20. október.

Hinn 41 árs LeBron er að hefja sitt 24. tímabil í NBA. Sixers er fjórða liðið sem hann spilar með í deildinni. LeBron lék í tvígang með Cleveland Cavaliers og hefur einnig spilað með Miami Heat og Lakers.

Knicks og Sixers mættust í undanúrslitum Austurdeildarinnar á síðasta tímabili. Þar hafði New York-liðið betur, 4-0. Eftir að hafa slegið Atlanta Hawks út í átta liða úrslitum Austurdeildarinnar, 4-2, vann Knicks tólf af næstu þrettán leikjum sínum og uppskar fyrsta meistaratitil félagsins í rúmlega hálfa öld.

Andstæðingur Knicks í úrslitaeinvíginu á síðasta tímabili, San Antonio Spurs, mætir Oklahoma City Thunder á upphafskvöldi tímabilsins 2026-27 auk þess sem Boston og Detroit Pistons eigast við.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×