Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Lovísa Arnardóttir skrifar 11. ágúst 2026 11:32 Heiðrún Lind segir SFS ekki á móti aðildarviðræðum séu samningsmarkmið skýr. Vísir/Ívar Fannar Heiðrún Lind Marteinsdóttir framkvæmdastjóri SFS segir samtökin vilja skýrari samningsmarkmið og að rauð lína verði lögð um eignarhald á fiskveiðiauðlind áður en haldið er í samningsviðræður við Evrópusambandið. Sé það gert setji SFS og sjávarútvegsgrein sig ekki á móti því að það verði haldið áfram með viðræður.
Heiðrún Lind og Úlfar Hauksson, sjómaður, vélfræðingur og stjórnmálafræðingur, skiptust á skoðunum um ESB og sjávarútveg í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Heiðrún Lind segir að ef horft er til reynslunnar, samninga sem hafa verið gerðir og löggjafar Evrópusambandsins sé hátt miðað. 95 prósent Íslendinga vilja halda fullum afnotum af auðlindum sínum, sama hvað þær heita, og sjávarútvegur þar með talinn. „Við heyrum ekki annað en að það sé fullur vilji til að fara fram á að við höldum yfirráðum yfir sjávarauðlindinni, sem þýðir í raun að við ætlum að standa utan sameiginlegrar sjávarútvegsstefnu Evrópusambandsins, sem er í raun ein af þeim stefnum sem Evrópusambandið hefur mestar valdheimildir gagnvart aðildarríkjunum,“ segir Heiðrún Lind og að ríki innan sambandsins hafi framselt vald hvað varðveislu sjávarauðlinda varðar. Heiðrún segir Ísland einstakt að mörgu leyti en það breyti því ekki að það séu ekki fordæmi fyrir því að ríki hafi staðið utan þessarar stefnu. Mörg ríki hafi farið fram á ýmis konar lausnir hvað sjávarútveg snertir og ekki fengið varanlegar undanþágur frá sameiginlegu sjávarútvegsstefnunni. Hún segir dæmi um sérlausnir en þær séu oft og tíðum þannig að það sé ekki hægt að fella þær undir varanleika því það sé hægt að breyta þeim með reglugerðum Evrópusambandsins og samþykki meirihluta í ráðherraráðinu. „Þannig við erum að fara fram á nokkuð mikið.“ Hún segir Evrópusambandið ganga út á tvennt, að aðildarríki geti ekki valið hvað hentar þeim við aðild og jafnræði. „Þannig það er nokkrum vandkvæðum bundið ef það á að fara fram á varanlegar undanþágur. Það þarf þá samþykki þessara 27 aðildarríkja.“ Tryggja þurfi hagsmuni greinarinnar fyrir viðræður Heiðrún segir að ef þetta er skýrt samningsmarkmið og rauð lína þá setji SFS sig ekki á móti því að farið verði áfram. „Það er afstaða atvinnugreinarinnar. Þannig að það verði búið að tryggja hagsmuni sjávarútvegs, þá er þetta í höndum þjóðarinnar,“ segir Heiðrún. Úlfar er já-maður og segist þegar búinn að greiða sitt atkvæði. Hann sé á leið út á sjó og verði líklega ekki heima. Hann sé búinn að liggja fyrir Evrópumálum í um þrjá áratugi og hafi rannsakað Evrópusambandið og sjávarútveg í kringum aldamótin. Hann segist sjá ýmis tækifæri í aðild og að sjávarútvegurinn sé að stóru leyti kominn inn í Evrópusambandið. Heiðrún Lind segist ekki taka undir það. Ísland standi utan við sjávarútvegsmál Evrópusambandsins samkvæmt EES. Þau eigi mikil viðskipti og geri samninga, of fáa að hennar mati, við Evrópusambandið. En hún tekur samt ekki undir með Úlfari. Heiðrún Lind segir fullvinnslu afurða á Íslandi og verðmætasköpun skipta miklu máli. Þannig fáist á Íslandi hálaunastörf, byggðafesta, skatttekjur og þjónustugreinar sem hafi tekjur af sjávarútvegi. Með inngöngu geti opnast á fjárfestingar erlendra aðila og erlendir aðilar fengið yfirráð yfir íslenskum sjávarútvegsauðlindum og það geti þýtt að verðmæti færist úr landi og fiskurinn verði unninn annars staðar. Þá tapist störf, skatttekjur og mikil verðmæti. Fjárfestingar erlendra aðila ekki endilega slæmar Úlfar segir að hvað varðar fjárfestingar erlendra aðila verði samið um þær og farið verði fram á sérlausnir. Hann segist ekki hafa sömu áhyggjur og Heiðrún Lind af þessu. Það sé mikill ágóði af vinnslunni hér og það væri ekki endilega hagur þeirra að færa vinnsluna. Úlfar bendir sömuleiðis á að með inngöngu gætu allir tollar fallið niður og þá sé mikill hagur að vinnslan sé á Íslandi og það sé frekar að hún myndi aukast á Íslandi við inngöngu til að flytja til Frakklands og Belgíu. Heiðrún segir engan hafa fengið varanlegar undanþágur, þær hafi verið tímabundnar. Það séu gerðar sérlausnir sem séu ekki endilega varanlegar. Hún segir þurfa skýrari samningsmarkmið og rauða línu áður en þjóðin veitir umboð. Heiðrún og Úlfar héldu áfram að ræða stöðu Íslands, aðild að Evrópusambandinu, EES-samninginn og stöðu hans, fiskveiðistjórnun og ýmis önnur atriði. Viðtalið er um hálftími og er hægt að hlusta á það að ofan.
Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Sjávarútvegur Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Viðskipti innlent Nokkrir tilbúnir að greiða Trump fyrir innherjaupplýsingar Viðskipti erlent Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Viðskipti innlent Paellu-gerðarmenn kveðja Templarasund Viðskipti innlent Breytingar á fyrsta farrými Neytendur Sólmyrkvagleraugun víða uppseld Viðskipti innlent Hreyfing: Ekki lengur þörf á að greiða tugi þúsunda yfir mánuðinn Atvinnulíf Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Viðskipti innlent Kaupendur yfirleitt með raunhæft mat og vel undirbúnir Viðskipti innlent Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Paellu-gerðarmenn kveðja Templarasund Sólmyrkvagleraugun víða uppseld Kaupendur yfirleitt með raunhæft mat og vel undirbúnir Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Ingibjörg og Tómas taka við af Þórunni hjá Úrval Útsýn Rikka hætt hjá Ólafi Ragnari Eykur strandveiðikvótann um 964 tonn Þórunn stígur til hliðar hjá Úrvali Útsýn Gistinóttum á hótelum fækkaði milli ára Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Oculis tekur kipp í örviðskiptum eftir tilkynningu Fyrrverandi forstjóri Play í landeldið Framkvæmdastjórinn heldur frídag verslunarmanna heilagan Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Tvírukkaðar færslur leiðréttar Niceair horfir til Evrópu eftir brösuga byrjun Ekki erfitt að skila hagnaði í gósentíð hávaxtaumhverfis Sjá meira