Hvað er vitað um manndrápið á Kársnesi? Jón Þór Stefánsson skrifar 10. ágúst 2026 11:56 Mynd frá vettvangi. Vísir Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu verst allra fregna vegna rannsóknar á manndrápi sem mun hafa verið framið í heimahúsi á Kársnesi í Kópavogi í gær. Nokkrir hafa verið handteknir vegna málsins, en ekki liggur fyrir hversu margir þeir eru, og hvort farið verði fram á gæsluvarðhald á hendur þeim, eða einhverjum þeirra. Um þrjúleytið síðdegis í gær barst lögreglu tilkynning um líkamsárás í heimahúsi við Vallargerði í Kópavogi. Skömmu síðar var einn handtekinn vegna málsins. Maðurinn sem varð fyrir árásinni lést á Landspítalanum síðdegis í gær. Ertu með ábendingu eða veistu meira um málið? Sendu okkur fréttaskot hérna. Fullum trúnaði er heitið. Samkvæmt heimildum fréttastofu sáu nágrannar tvo menn hlaupa frá húsinu þar sem meintur glæpur mun hafa verið framinn. Einhverjir munu hafa séð dularfullan rauðan bíl, sem hafi um tíma numið staðar í miðri götunni fyrir framan húsið, og þá hafi einhverjir lýst því að mennirnir hafi hlaupið í átt að bílnum. Jafnframt lýsa nágrannar því að hafa heyrt hróp og köll. Það var síðan um tveimur tímum síðar þegar lögreglan réðst í aðgerðir í íbúð sem er í verslunarkjarna við Gnoðavog í Reykjavík. Þar voru minnst tveir handteknir. Mikill viðbúnaður lögreglu var á vettvangi, þar voru að minnsta kosti sex lögreglubílar og einn sérsveitarmaður. Þar sáust lögreglumenn leita í rusli og í runnum, en ekki liggur fyrir hverju þeir voru að leita að. Þá hefur fréttastofa fengið ábendingu um sérsveitaraðgerð sem mun hafa farið fram milli Garðabæjar og Kópavogs um hálf fjögurleytið. Ekkert liggur fyrir um hvort sú aðgerð tengist málinu með neinum hætti. Helena Rós Sturludóttir, upplýsingafulltrúi hjá Ríkislögreglustjóra, segir í samtali við Vísi að sérsveitin hafi hjálpað lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu á því svæði, rétt hjá Kauptúni þar sem margar stórar verslanir eru. Hún gat þó ekki veitt frekari upplýsingar um málið. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu væri í forsvari. Frá handtökunni milli Garðabæjar og Hafnafjarðar. Líkt og áður segir má gera ráð fyrir að ef lögreglan fari fram á að einhverjir verði úrskurðaðir í gæsluvarðhald verði það í dag. En lögreglan hefur heimild til þess að hafa menn í haldi í sólarhring áður en dómstólar þurfa að veita þeim heimild til að hneppa í gæsluvarðhald. Lögreglumál Kópavogur Reykjavík Manndráp í Vallargerði á Kársnesi Mest lesið Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Innlent Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Innlent Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Innlent Suðaustan stormur og gul viðvörun Veður Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Erlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Fleiri fréttir Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Sjá meira
Um þrjúleytið síðdegis í gær barst lögreglu tilkynning um líkamsárás í heimahúsi við Vallargerði í Kópavogi. Skömmu síðar var einn handtekinn vegna málsins. Maðurinn sem varð fyrir árásinni lést á Landspítalanum síðdegis í gær. Ertu með ábendingu eða veistu meira um málið? Sendu okkur fréttaskot hérna. Fullum trúnaði er heitið. Samkvæmt heimildum fréttastofu sáu nágrannar tvo menn hlaupa frá húsinu þar sem meintur glæpur mun hafa verið framinn. Einhverjir munu hafa séð dularfullan rauðan bíl, sem hafi um tíma numið staðar í miðri götunni fyrir framan húsið, og þá hafi einhverjir lýst því að mennirnir hafi hlaupið í átt að bílnum. Jafnframt lýsa nágrannar því að hafa heyrt hróp og köll. Það var síðan um tveimur tímum síðar þegar lögreglan réðst í aðgerðir í íbúð sem er í verslunarkjarna við Gnoðavog í Reykjavík. Þar voru minnst tveir handteknir. Mikill viðbúnaður lögreglu var á vettvangi, þar voru að minnsta kosti sex lögreglubílar og einn sérsveitarmaður. Þar sáust lögreglumenn leita í rusli og í runnum, en ekki liggur fyrir hverju þeir voru að leita að. Þá hefur fréttastofa fengið ábendingu um sérsveitaraðgerð sem mun hafa farið fram milli Garðabæjar og Kópavogs um hálf fjögurleytið. Ekkert liggur fyrir um hvort sú aðgerð tengist málinu með neinum hætti. Helena Rós Sturludóttir, upplýsingafulltrúi hjá Ríkislögreglustjóra, segir í samtali við Vísi að sérsveitin hafi hjálpað lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu á því svæði, rétt hjá Kauptúni þar sem margar stórar verslanir eru. Hún gat þó ekki veitt frekari upplýsingar um málið. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu væri í forsvari. Frá handtökunni milli Garðabæjar og Hafnafjarðar. Líkt og áður segir má gera ráð fyrir að ef lögreglan fari fram á að einhverjir verði úrskurðaðir í gæsluvarðhald verði það í dag. En lögreglan hefur heimild til þess að hafa menn í haldi í sólarhring áður en dómstólar þurfa að veita þeim heimild til að hneppa í gæsluvarðhald.
Ertu með ábendingu eða veistu meira um málið? Sendu okkur fréttaskot hérna. Fullum trúnaði er heitið.
Lögreglumál Kópavogur Reykjavík Manndráp í Vallargerði á Kársnesi Mest lesið Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Innlent Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Innlent Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Innlent Suðaustan stormur og gul viðvörun Veður Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Erlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Fleiri fréttir Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Sjá meira