Kaupendur yfirleitt með raunhæft mat og vel undirbúnir Lovísa Arnardóttir skrifar 10. ágúst 2026 10:17 Monika segist bjartsýn fyrir komandi mánuðum og stöðu á fasteignamarkaði. Vísir/Lýður Valberg Monika Hjálmtýsdóttir, formaður Félags fasteignasala, segir sumartímann yfirleitt rólegan í fasteignaviðskiptum en það hafi gengið vel í sumar. Hún er bjartsýn fyrir komandi mánuðum þrátt fyrir mögulega riftingu á kjarasamningum og kosningu um Evrópusambandið. Fólk hafi trú á fasteignamarkaðnum og þurfi á honum að halda.
Monika var til viðtals um stöðu fasteignamarkaðarins í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Hún segir að í júlí hafi verið gerðir 850 kaupsamningar og til samanburðar hafi þeir verið 740 í maí. Það hafi því verið meira í júní og júlí. Monika segir sumarmánuði áður hafa verið rólega en eftir Covid hafi sumarmánuðir oft verið fínir. Hún segir birgðatíma um sjö mánuði samkvæmt mælingum Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Þessi tími hafi verið að lengjast. Fjölgun íbúða á skrá og þær eru lengri á skrá. „Þessar keðjur hafa verið erfiðar síðustu misseri,“ segir Monika. Hún segir það stundum einföldun að segja að íbúðir séu verðlagðar of hátt. Ef markaður er virkur og íbúðir seljast vel og einhverjar standa eftir þá sé það líklega verðið en það sé ekki alltaf samt ekki svo einfalt. Hvað varðar keðjurnar segir Monika fólk ekki endilega ekki komast í gegnum greiðslumat, fólk sé yfirleitt vel undirbúið og telji sig yfirleitt ekki geta gert eitthvað sem það getur ekki. „Það sem er að gerast með þessar keðjur er að þær eignir sem fara inn í keðjurnar seljast ekki og á einhverjum tímapunkti ákveður fólk að hætta,“ segir hún og að það sé búið að gefa fresti kannski í nokkra mánuði og fólk hætti á endanum við. „Það þarf rosa margt að ganga upp.“ Hún segir stóru eignirnar yfirleitt koma inn fyrst, einbýlishús og sá sem kaupi það komi kannski úr raðhúsi og sá sem kaupir það kemur úr fjögurra herbergja og svo koll af kolli. Það sem flækir málið er að þau sem ætla að kaupa tveggja herbergja íbúðina er eldra par sem þarf að selja einbýlishús. „Þá er það orðið erfitt og yfirleitt ekki tekið inn.“ Um stöðu ungs fólks segir Monika að þau sjái að ungt fólk fái margt aðstoð frá foreldrum. Tölur HMs sýni að það sé í sjálfu sér ekki erfiðara fyrir ungt fólk á Íslandi að komast inn á markaðinn en í samanburðarlöndum og að aldurshópurinn hafi farið lækkandi. Hún segir unga manneskju þurfa að sýna mikið aðhald til að kaupa fasteign og það hafi alltaf verið þannig. Það séu leiðir og hlutdeildarlánin séu til dæmis góð leið þó að þau séu af skornum skammti. Góð virkni og er bjartsýn Spurð um stöðuna næstu mánuði segir Monika erfitt að spá. Það hafi verið erfitt síðustu mánuði en samt hafi verið góð virkni á fasteignamarkaði og mögulega betri en hefði mátt búast við. „Ég hef það á tilfinningunni að það muni bara halda áfram,“ segir hún og að fólk þurfi alltaf að eiga í fasteignaviðskiptum. Fólk hafi trú á markaðnum og hann hafi verið nokkuð stöðugur síðustu mánuði. Það hafi verið lítil lækkun og fasteignamarkaðurinn þannig staðið þetta vel af sér. „Ég er bara bjartsýn og vona að þetta fari að verða betra,“ segir hún.
Fasteignamarkaður Bítið Húsnæðismál Efnahagsmál Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Kjaramál Tengdar fréttir Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði HMS hefur birt vísitölu íbúðaverðs fyrir júní. Vísitalan hækkaði um 0,09% á milli mánaða eftir að hafa lækkað um 0,44% á milli mánaða í maí og staðið í stað í apríl. 21. júlí 2026 11:48 Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Landmark fasteignamiðlun og Heimili fasteignasala sameinast og tekur ný fasteignasala til starfa í haust. 8. júlí 2026 12:58 Mest lesið Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira
Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði HMS hefur birt vísitölu íbúðaverðs fyrir júní. Vísitalan hækkaði um 0,09% á milli mánaða eftir að hafa lækkað um 0,44% á milli mánaða í maí og staðið í stað í apríl. 21. júlí 2026 11:48
Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Landmark fasteignamiðlun og Heimili fasteignasala sameinast og tekur ný fasteignasala til starfa í haust. 8. júlí 2026 12:58