Baudenbacher úthýst úr hátíðarsal háskólans Jón Þór Stefánsson skrifar 7. ágúst 2026 20:54 Silja Bára er rektor HÍ og Carl Baudenbacher er fyrrverandi forseti EFTA-dómstólsins. Fyrirhuguðum fyrirlestri um hugsanlega aðild Íslands að Evrópusambandinu, sem Carl Baudenbacher fyrrverandi forseti EFTA-dómstólsins á að halda 10. ágúst næstkomandi hefur verið færður úr hátíðarsal Háskóla Íslands. Ástæðan mun vera sú að fyrirlesturinn var álitinn of pólitískur.
Þetta kemur fram á DV, sem hefur upplýsingarnar eftir Silju Báru Ómarsdóttur rektor háskólans. Í heilsíðuauglýsingu fyrir viðburðinn, sem birtist í Morgunblaðinu í gær virðist sem viðburðurinn sé á vegum samtakanna Áfram Ísland, sem berjast fyrir því að landsmenn segi „nei“ í komandi þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi aðildarviðræður við Evrópusambandið. Jafnframt stæði Almenna bókafélagið fyrir viðburðinum, sem og Rannsóknarsetur í stjórnmálum og efnahagsmálum við Félagsvísindastofnun. Þá er Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti lýðveldisins, auglýstur sem fundarstjóri, en hann hefur einnig verið að berjast fyrir „nei-inu“ og hélt meðal annars ræðu á stofnviðburði Áfram Íslands. Í svari Silju Báru til DV sagði hún að háskólinn hefði enga aðkomu að umræddum fyrirlestri. Þá hefði sá sem hafði sótt um að fá salinn til afnota hafi ekki greint frá því að viðburðurinn væri á vegum Áfram Ísland. „Hátíðasalur í Aðalbyggingu er aðeins leigður út fyrir viðburði sem eru á vegum Háskóla Íslands eða tengjast starfsemi hans beint. Háskóli Íslands hefur enga aðkomu að þeim viðburði sem hér um ræðir. Í umsókn um leigu á salnum fyrir viðburðinn kom ekki fram að hann væri á vegum hreyfingarinnar „Áfram Ísland“ og hefði slík umsókn ekki verið samþykkt á grundvelli þeirra almennu sjónarmiða sem um salarleiguna gilda. Unnið er að því að finna annan vettvang fyrir viðburðinn.“ Þá kom fram að háskólinn hafi boðið þeim annan húsakost fyrir viðburðinn. Ekki náðist í Silju Báru Ómarsdóttur rektor við vinnslu fréttarinnar.
Háskólar Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent „Þeir munu hengja mig“ Erlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Fleiri fréttir Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sjá meira