Farþegum fækkaði milli ára Sigurgeir Þorkelsson skrifar 6. ágúst 2026 20:37 Endurnýjun á flugflota Icelandair skilar bæði aukinni hagkvæmni í rekstri og minna kolefnisfótspori. Forstjóri fagnar því að sætanýtingarhlutfall hafi haldist milli ára þrátt fyrir samdrátt í flugáætlun. Samsett Farþegum Icelandair fækkaði um tvö prósent milli ára í júlímánuði. Í ár voru fluttir 599 þúsund farþegar en í fyrra, júlí 2025, voru þeir 611 þúsund. Sætanýting var 88 prósent og stendur hún í stað milli ára. Þá var stundvísi 77,1 prósent samkvæmt mælingum félagsins.
Tekjur á hvern sætiskílómetra jukust um tólf prósent á milli ára og voru 11,32 sent. Í tilkynningu segir að þann árangur megi rekja til áherslu félagsins á arðbærustu markaðina á hverjum tíma og markvissrar leiðakerfisstýringar. Seldum blokktímum í leiguflugi fjölgaði um átta prósent milli ára en fraktflutningar, mældir í tonnkílómetrum, drógust saman um níu prósent. Ísland enn vinsælt meðal ferðamanna Félagið segir í tilkynningu að eftirspurn á lykilmörkuðum hafi áfram verið sterk í mánuðinum. Tekist hafi að fjölga farþegum til Íslands um prósent á milli ára og farþegum frá Íslandi um ellefu prósent. Sem fyrr segir flutti Icelandair rétt tæplega sex hundruð þúsund farþega í júlí. Þar af voru 42 prósent á leið til Íslands, 19 prósent frá Íslandi, 35 prósent voru tengifarþegar og fjögur prósent ferðuðust innanlands. Farþegafjöldi í innanlandsflugi jókst um átta prósent milli ára. Á sama tíma dróst fjöldi tengifarþega saman um sextán prósent. Nýjar flugvélar styðja við markmið félagsins Félaginu tókst að minnka kolefnislosun sína um þrjú prósent milli ára. Er nýjum og sparneytnari vélum þar þakkað fyrir, auk áherslu á hagkvæmni í rekstri og góða nýtingu flotans en venjuleg flugvél Icelandair kann að vera allt að tuttugu klukkustundir á sólarhring í loftinu. „Júlí er einn annasamasti mánuður ársins hjá Icelandair. Við fluttum 599 þúsund farþega og náðum 88,8% sætanýtingu á sama tíma og við drógum framboð saman um 5% á milli ára. Það er sérstaklega ánægjulegt að sjá áframhaldandi vöxt á þeim lykilmörkuðum sem við leggjum áherslu á, sem undirstrikar sterka eftirspurn eftir ferðalögum til, frá og innan Íslands sem hafði jákvæð áhrif á tekjumyndun,“ er haft eftir Boga Nils Bogasyni, forstjóra Icelandair, í tilkynningu.
Flug Icelandair Ferðaþjónusta Keflavíkurflugvöllur Efnahagsmál Mest lesið Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira