„Við látum ekki fæla okkur aftur inn í skápinn“ Freyja Þórisdóttir skrifar 4. ágúst 2026 14:42 Inga Auðbjörg, listrænn stjórnandi opnunarhátíðarinnar, sér fram á frábæra Hinsegin daga í ár. Aðsend/Sunna Ben Hinsegin dagar standa nú yfir og er fjöldi viðburða á dagskrá næstu daga, svo sem glansverkstæði, hýr húslestur, trans kirkja og hinsegin hraðstefnumót. Listrænn stjórnandi opnunarhátíðarinnar segir bakslag í samfélaginu augljóst en að hinsegin fólk sé óhrætt við að ögra. Í ár sé sérstaklega kappkostað að gera ungu hinsegin fólki hátt undir höfði og er lag hátíðarinnar samið og flutt af hinum átján ára gamla Guðjóni Þorgils Kristjánssyni.
Undirbúningurinn hefur gengið ótrúlega vel í ár að sögn Ingu Auðbjargar Straumland, listræns stjórnanda opnunarhátíðar Hinsegin daga, en hópur sjálfboðaliða hefur tekið höndum saman og skipulagt hátt í hundrað viðburði. „Það er hinsegin fólk sem að setur þetta sjónarspil og þennan kraft og dýpt í þessa hátíð sem að innifelur náttúrulega ýmsa viðburði,“ segir hún í samtali við blaðamann Vísis en hápunktur vikunnar er svo Gleðigangan sem fer fram á laugardaginn, þann 8. ágúst. Snúið vörn í sókn Opnunarhóf verður haldið í Sjálfstæðissalnum, gamla NASA, á Parliament Hotel á Austurvelli í kvöld, þriðjudaginn 4. ágúst, en þar verður svokallað sirkúsþema. Opnunarhátíðin er klukkan átta í kvöld á Parliament Hotel en meðal þeirra sem fram koma eru tónlistarmaðurinn Álfgrímur.Aðsend/Sunna Ben „Sirkusinn hefur hérna einhvern veginn frá örófi alda samanstaðið af fólki sem er hæðst að og gert grín að af því að það er öðruvísi en í staðinn fyrir að fara í felur hafa þeir nýtt sér sérstöðu sína og búið til sjónarspil og töfra úr því,“ segir Inga en því þótti þemað viðeigandi fyrir viðburðinn. „Okkur finnst sirkusinn og hinsegin samfélagið, sem er náttúrulega nátengt, eiga margt sameiginlegt. Við ætlum að vera með loftfimleika- og sirkusatriði og geggjaða stemningu yfir þessu öllu saman.“ Það sé svo einstakt við sirkusinn að þar geri fólk hluti sem séu hættulegir og áhorfendur standi á öndinni opinmynntir yfir því að fólk skuli þora að vera þau sjálf. Skeina sér í hinsegin fánann En Inga segist hafa tekið, líkt og margir, eftir ákveðnu bakslagi í samfélaginu. Nýskeður atburður í Berlín sé dæmi um það. „Þar var hinsegin fólk að koma saman í mestu makindum og var ekki fyrir neinum og það var ráðist að því. En við hættum ekki við að koma saman þrátt fyrir það,“ segir Inga og ítrekar „við látum ekki fæla okkur aftur inn í skápinn.“ Þá tekur hún undir með skipuleggjendum Druslugöngunnar sem sögðu frá því fyrr í sumar að hún fyndi sérstaklega fyrir mótbyr frá ungu fólki á Íslandi í dag. Hún segir orðið alltof algengt að fólk leyfi sér að hella sér yfir hinsegin fólk einfaldlega fyrir að vera til. „Það er allt í einu orðið normalíserað að fara við hverja einustu mynd á samfélagsmiðlum af einhverjum bæjarfélögum að mála götur í regnbogafánalitum, að þá er alltaf komið bara fullt af ælukörlum og einhverjum hreyfimyndum af fólki að skeina sér í fánann.“ Ungt hinsegin fólk í fyrirrúmi í ár Fyrir áratug, eða jafnvel fimm árum, hafi raunin verið allt önnur. Skipuleggjendur Hinsegin daga í ár hafa kappkostað að gera ungu kynslóðinni hátt undir höfði en hinn átján ára gamli Guðjón Þorgils Kristjánsson flytur lag Hinsegin daga í ár. Lagið „Fram á við“ er komið á allar helstu streymisveitur og er áminning til þeirra sem hafa ratað af réttri braut um að aldrei sé of seint að snúa við og láta hjartað ráða för. Hann samdi það ásamt Axel Inga Árnasyni og Ingu Auðbjörgu K. Straumland. „Hann er bara átján ára og gaman að fá innsýn inn í hans hugarheim og náttúrulega bara óviðjafnanlegt að fá að njóta hans sviðshjarma og látúnsbarka,“ segir Inga en einnig mun fimmtán ára gamall söngvari flytja lag á dögunum. „Hann var að æfa sig í gær með hljómsveitinni og ég fór að skæla. Þannig að hérna, fólk verður bara að búa sig undir það,“ segir Inga en til að skapa mótvægi við ungu tónlistarmennina verður Kristín Ómarsdóttir ljóðskáld með ræðurnar en „hún var einu sinni ung“. Slagorðið í ár er „Sameinumst undir regnboganum“ en Inga segist sjá fram á að þátttakan verði með besta móti. Á dagskránni séu nýir viðburðir í bland við aðra sem fólk gæti verið farið að kannast við svo sem húslesturinn. „Þetta er svo skapandi samfélag,“ segir hún en viðburðir líkt og fyrsta messa Trans kirkjunnar á sunnudaginn, þann 9. ágúst, hefur vakið mikla athygli. „Já já, við erum óhrædd við að ögra. Ég meina Hinsegin dagar eru mótmæli og svo er fjölskylduhátíð í dagskránni, en fyrst og fremst erum við þarna mætt til þess að vera með andóf gegn ríkjandi normum.“
Hinsegin Reykjavík Þýskaland Tónleikar á Íslandi Mest lesið Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Innlent Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Innlent Fleiri fréttir „Mér finnst það alvarlegt“ Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Kveiksþætti kippt út tímabundið Söfnuðust saman við sendiráðið og mótmæltu refsiaðgerðum „Séum tilbúin þegar og ef þessi veruleiki birtist okkur“ Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Sveik hundruð þúsunda af vistmanni á Grenilundi Engar vísbendingar og lítið af upplýsingum Íslendingar losa meira en Evrópubúar í langflestu Sýna sögulega þingfestingu í öðrum sal Braut kynferðislega á fatlaðri stjúpdóttur sinni Golfarar reynt að borga sig fram fyrir biðlistana Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Breytir verkefnastofu í ráðuneytisstofnun Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Heimsending sögð ógn við lýðheilsu en þjónusta þegar ríkið á í hlut Gefa út öryggisviðvörun vegna mótmæla Grunuðum ofbeldismönnum vísað frá landinu og lestarslys á Spáni Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Löggæsluáætlun næstu fimm ára kynnt á löggæsluþingi Bein útsending: Loftslagsdagurinn 2026 - Loftslagsbreytingar og öryggi Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Sjá meira