Kólumbísk fjölskylda hefur verið týnd á Íslandi í tæpa viku Freyja Þórisdóttir skrifar 3. ágúst 2026 21:52 Fjölskyldumeðlimir þeirra Estefaníu, Jeovvany og Elisabeth vonast eftir því að fá vísbendingar um hvar þremenningarnir eru niðurkomnir. Aðsend Þrír kólumbískir ferðalangar hafa verið týndir á Íslandi í rétt um viku en þau höfðu verið á ferðalagi um Evrópu þegar þeir lentu á Íslandi þriðjudaginn 28. júlí. Síðan þá hefur fjölskylda þeirra ekkert heyrt frá þeim. Þau áttu bókaða gistingu á Center Hotels Plaza í Reykjavík og voru við það að leggja af stað þangað frá Keflavíkurflugvelli síðast þegar frænka þeirra talaði við þau. Kemur þetta fram í tilkynningu frá fjölskyldumeðlimum þeirra en þau týndu eru hin 34 ára Estefanía Arboleda Herrera, hinn 54 ára gamli Jeovvany Martínez Quinchía og eiginkona hans Elisabeth Martínez Quinchia sem er 57 ára gömul. Skiluðu sér ekki á hótelið Þau eru frá Medellín í Kólumbíu en fjölskylda þeirra segir í tilkynningu frá því að síðustu daga hafi virst sem slökkt væri á farsímum þeirra, sem þyki mjög óvanalegt. Þau hafi sem fyrr segir átt bókaða hótelgistingu í Reykjavík en ekki skilað sér þangað. Þau Jeovvany Martínez Quinchía, 54 ára, og Elisabeth Martínez Quinchía, 57 ára, höfðu síðast samband við fjölskyldu þriðjudaginn 28. júlí.Aðsend „Ef einhver hefur séð þau, haft samband við þau, veit hvar þau gætu verið eða þekkir til yfirvalda, samtaka eða hópa á Íslandi sem gætu aðstoðað við leitina, vinsamlegast látið okkur vita tafarlaust,“ segir í tilkynningu. Þar er ítrekað að allar upplýsingar, sama hversu smávægilegar þær kunni að virðast, gætu leitt til þess að þau finnist. Í Facebook-hópnum Latinos en Islandia hafa fjölskyldumeðlimir ferðafólksins birt færslur reglulega síðustu daga en nú er liðin tæp vika frá því að heyrðist frá þeim síðast. Hægt er að hafa samband við fölskyldumeðlimi ferðafólksins í síma: (+57) 300 706 4464 (+57) 300 575 4899 (+57) 320 729 6733 Ekki liggur fyrir hvort fjölskylda fólksins hafi haft samband við lögregluna hérlendis en málið er í það minnsta ekki komið inn á borð rannsóknardeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Þetta staðfestir E. Agnes Eide Kristínardóttir yfirlögregluþjónn í samtali við blaðamann Vísis. Af ummælum undir Facebook-færslunum að dæma ætluðu ferðalangarnir einungis að dvelja á Íslandi í um tvo sólarhringa, því næst færu þau aftur til Spánar. Ertu með ábendingu varðandi þetta mál eða veistu hvar þau eru niðurkomin? Sendu okkur fréttaskot hérna. Ferðalög Lögreglumál Keflavíkurflugvöllur Mest lesið Annar árekstur á sama vegkafla og einn fluttur með sjúkrabíl Innlent Lögreglan lýsti eftir manni en hann er fundinn Innlent Uppgefinn einyrki við Hverfisgötu kveður Innlent Þrjú börn látin eftir drónaárás á baðströnd Erlent Harður árekstur á Norðvesturlandi tilkominn vegna framúraksturs Innlent Bolafjallsvegi verður lokað 12. ágúst Innlent Kólumbísk fjölskylda hefur verið týnd á Íslandi í tæpa viku Innlent Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Innlent Vopnin reyndust vera „nákvæmar eftirlíkingar“ Innlent Sparkað í lögreglumann og sjúkraflutningamaður sleginn Innlent Fleiri fréttir Kólumbísk fjölskylda hefur verið týnd á Íslandi í tæpa viku Uppgefinn einyrki við Hverfisgötu kveður Lögreglan lýsti eftir manni en hann er fundinn Annar árekstur á sama vegkafla og einn fluttur með sjúkrabíl Harður árekstur á Norðvesturlandi tilkominn vegna framúraksturs Einn þeirra handteknu sautján ára Skoða stækkun á öryggismyndavélaneti Sparkað í lögreglumann og sjúkraflutningamaður sleginn Vopnin reyndust vera „nákvæmar eftirlíkingar“ Einn handtekinn vegna grófrar líkamsárásar Grunaður um að hafa ráðist á dyraverði Bolafjallsvegi verður lokað 12. ágúst Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Meirihluti hlynntur samfélagsmiðlabanni unglinga Knapi datt af baki Miðaði byssu á annan mann Tveir lagðir við gangstéttina Enn brotist inn í miðbænum „Þetta voru þrjátíu til sextíu sekúndur og allt húsið var að brenna“ Fundu byssur í bílum og handtóku fimm Greinir á við kjósendur sína Maður á sjötugsaldri kýldi konu til blóðs í miðbænum Þrír handteknir eftir átök í heimahúsi Sexan millilendir aftur í Reykjavík Siggi stormur sár en dregur ekki í land Sveitarstjóri hefur miklar áhyggjur af ástandi Vestfjarðavegar Grunaður um sölu fíkniefna á Þjóðhátíð Efnahags- og Evrópumál, hvalveiðar og laxeldi á landi á Sprengisandi Handtóku níu og nutu liðsinnis sérsveitar vegna staks eggvopns Sárt að geta ekki sagt ömmu sinni frá sakleysi sínu Sjá meira
Kemur þetta fram í tilkynningu frá fjölskyldumeðlimum þeirra en þau týndu eru hin 34 ára Estefanía Arboleda Herrera, hinn 54 ára gamli Jeovvany Martínez Quinchía og eiginkona hans Elisabeth Martínez Quinchia sem er 57 ára gömul. Skiluðu sér ekki á hótelið Þau eru frá Medellín í Kólumbíu en fjölskylda þeirra segir í tilkynningu frá því að síðustu daga hafi virst sem slökkt væri á farsímum þeirra, sem þyki mjög óvanalegt. Þau hafi sem fyrr segir átt bókaða hótelgistingu í Reykjavík en ekki skilað sér þangað. Þau Jeovvany Martínez Quinchía, 54 ára, og Elisabeth Martínez Quinchía, 57 ára, höfðu síðast samband við fjölskyldu þriðjudaginn 28. júlí.Aðsend „Ef einhver hefur séð þau, haft samband við þau, veit hvar þau gætu verið eða þekkir til yfirvalda, samtaka eða hópa á Íslandi sem gætu aðstoðað við leitina, vinsamlegast látið okkur vita tafarlaust,“ segir í tilkynningu. Þar er ítrekað að allar upplýsingar, sama hversu smávægilegar þær kunni að virðast, gætu leitt til þess að þau finnist. Í Facebook-hópnum Latinos en Islandia hafa fjölskyldumeðlimir ferðafólksins birt færslur reglulega síðustu daga en nú er liðin tæp vika frá því að heyrðist frá þeim síðast. Hægt er að hafa samband við fölskyldumeðlimi ferðafólksins í síma: (+57) 300 706 4464 (+57) 300 575 4899 (+57) 320 729 6733 Ekki liggur fyrir hvort fjölskylda fólksins hafi haft samband við lögregluna hérlendis en málið er í það minnsta ekki komið inn á borð rannsóknardeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Þetta staðfestir E. Agnes Eide Kristínardóttir yfirlögregluþjónn í samtali við blaðamann Vísis. Af ummælum undir Facebook-færslunum að dæma ætluðu ferðalangarnir einungis að dvelja á Íslandi í um tvo sólarhringa, því næst færu þau aftur til Spánar. Ertu með ábendingu varðandi þetta mál eða veistu hvar þau eru niðurkomin? Sendu okkur fréttaskot hérna.
Hægt er að hafa samband við fölskyldumeðlimi ferðafólksins í síma: (+57) 300 706 4464 (+57) 300 575 4899 (+57) 320 729 6733
Ertu með ábendingu varðandi þetta mál eða veistu hvar þau eru niðurkomin? Sendu okkur fréttaskot hérna.
Ferðalög Lögreglumál Keflavíkurflugvöllur Mest lesið Annar árekstur á sama vegkafla og einn fluttur með sjúkrabíl Innlent Lögreglan lýsti eftir manni en hann er fundinn Innlent Uppgefinn einyrki við Hverfisgötu kveður Innlent Þrjú börn látin eftir drónaárás á baðströnd Erlent Harður árekstur á Norðvesturlandi tilkominn vegna framúraksturs Innlent Bolafjallsvegi verður lokað 12. ágúst Innlent Kólumbísk fjölskylda hefur verið týnd á Íslandi í tæpa viku Innlent Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Innlent Vopnin reyndust vera „nákvæmar eftirlíkingar“ Innlent Sparkað í lögreglumann og sjúkraflutningamaður sleginn Innlent Fleiri fréttir Kólumbísk fjölskylda hefur verið týnd á Íslandi í tæpa viku Uppgefinn einyrki við Hverfisgötu kveður Lögreglan lýsti eftir manni en hann er fundinn Annar árekstur á sama vegkafla og einn fluttur með sjúkrabíl Harður árekstur á Norðvesturlandi tilkominn vegna framúraksturs Einn þeirra handteknu sautján ára Skoða stækkun á öryggismyndavélaneti Sparkað í lögreglumann og sjúkraflutningamaður sleginn Vopnin reyndust vera „nákvæmar eftirlíkingar“ Einn handtekinn vegna grófrar líkamsárásar Grunaður um að hafa ráðist á dyraverði Bolafjallsvegi verður lokað 12. ágúst Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Meirihluti hlynntur samfélagsmiðlabanni unglinga Knapi datt af baki Miðaði byssu á annan mann Tveir lagðir við gangstéttina Enn brotist inn í miðbænum „Þetta voru þrjátíu til sextíu sekúndur og allt húsið var að brenna“ Fundu byssur í bílum og handtóku fimm Greinir á við kjósendur sína Maður á sjötugsaldri kýldi konu til blóðs í miðbænum Þrír handteknir eftir átök í heimahúsi Sexan millilendir aftur í Reykjavík Siggi stormur sár en dregur ekki í land Sveitarstjóri hefur miklar áhyggjur af ástandi Vestfjarðavegar Grunaður um sölu fíkniefna á Þjóðhátíð Efnahags- og Evrópumál, hvalveiðar og laxeldi á landi á Sprengisandi Handtóku níu og nutu liðsinnis sérsveitar vegna staks eggvopns Sárt að geta ekki sagt ömmu sinni frá sakleysi sínu Sjá meira