Annar árekstur á sama vegkafla með klukkustundar millibili og einn fluttur með sjúkrabíl Freyja Þórisdóttir skrifar 3. ágúst 2026 18:26 Tildrög slyssins voru framúrakstur samkvæmt lögreglunni á Norðurlandi vestra. Vísir Einn var fluttur undir læknishendur eftir að tveir bílar rákust á í kjölfar framúraksturs á Hrútafjarðarhálsi á Norðvesturlandi á sjöunda tímanum í kvöld. Þrír voru í bílunum en sá sem var fluttur með sjúkrabíl er ekki alvarlega slasaður. Lögreglan biðlar til fólks að sýna þolinmæði en tvö keimlík slys hafa orðið á Norðvesturlandi í kvöld.
Bílaröð myndaðist á ný á vegkafla við Hrútafjarðarheiði en slysið varð skammt þaðan sem harður árekstur varð á sjötta tímanum, eða um klukkustund fyrr. Fólk sem sat í bílum sínum rauk út til aðstoðar þeim sem höfðu lent út af veginum en Höskuldur B. Erlingsson aðalvarðstjóri Lögreglunnar á Norðurlandi vestra staðfestir þetta í samtali við fréttastofu. Það voru alls þrír í bílunum tveimur en einn slasaðist í árekstrinum og var sá fluttur á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi til aðhlynningar og athugunar. Þetta staðfestir Höskuldur en hann segir ekki um lífshættulega áverka að ræða heldur sé einstaklingur lemstraður eftir slysið. Svipuð slys á sama vegkafla Tildrög slyssins voru að sögn Höskuldar framúrakstur, rétt eins og þess sem varð um klukkustund áður á svipuðum stað. Bílarnir tveir voru báðir á akstri í suðurátt og er talið að þeir hafi rekist saman þegar þeir tóku báðir fram úr bílalestinni sem hefur verið á Hringveginum í mestallan dag. Höskuldur biðlar til vegfarenda sem lentu aftur í töfum á sama vegkafla að sýna stillingu og ítrekar mikilvægi þess að sýna þolinmæði í umferðinni. Það borgi sig ekkert að taka fram úr enda sé umferðin eins þung og hún gerist og ökumenn endi alltaf aftur í bílalestinni sem er á leið í bæinn. Fréttin hefur verið uppfærð. Fjöldi fólks þaut af stað í átt að bílunum tveimur að sögn sjónarvotta.Vísir Sjónarvottar lýsa því að löng bílaröð hafi myndast í annað skiptið þetta kvöld á vegkaflanum.Vísir
Lögreglumál Húnabyggð Húnaþing vestra Umferð Umferðaröryggi Mest lesið Annar árekstur á sama vegkafla með klukkustundar millibili og einn fluttur með sjúkrabíl Innlent Harður árekstur á Norðvesturlandi tilkominn vegna framúraksturs Innlent Bolafjallsvegi verður lokað 12. ágúst Innlent Þrjú börn látin eftir drónaárás á baðströnd Erlent Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Innlent Vopnin reyndust vera „nákvæmar eftirlíkingar“ Innlent Sparkað í lögreglumann og sjúkraflutningamaður sleginn Innlent Einn þeirra handteknu sautján ára Innlent Einn handtekinn vegna grófrar líkamsárásar Innlent Skoða stækkun á öryggismyndavélaneti Innlent Fleiri fréttir Annar árekstur á sama vegkafla með klukkustundar millibili og einn fluttur með sjúkrabíl Harður árekstur á Norðvesturlandi tilkominn vegna framúraksturs Einn þeirra handteknu sautján ára Skoða stækkun á öryggismyndavélaneti Sparkað í lögreglumann og sjúkraflutningamaður sleginn Vopnin reyndust vera „nákvæmar eftirlíkingar“ Einn handtekinn vegna grófrar líkamsárásar Grunaður um að hafa ráðist á dyraverði Bolafjallsvegi verður lokað 12. ágúst Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Meirihluti hlynntur samfélagsmiðlabanni unglinga Knapi datt af baki Miðaði byssu á annan mann Tveir lagðir við gangstéttina Enn brotist inn í miðbænum „Þetta voru þrjátíu til sextíu sekúndur og allt húsið var að brenna“ Fundu byssur í bílum og handtóku fimm Greinir á við kjósendur sína Maður á sjötugsaldri kýldi konu til blóðs í miðbænum Þrír handteknir eftir átök í heimahúsi Sexan millilendir aftur í Reykjavík Siggi stormur sár en dregur ekki í land Sveitarstjóri hefur miklar áhyggjur af ástandi Vestfjarðavegar Grunaður um sölu fíkniefna á Þjóðhátíð Efnahags- og Evrópumál, hvalveiðar og laxeldi á landi á Sprengisandi Handtóku níu og nutu liðsinnis sérsveitar vegna staks eggvopns Sárt að geta ekki sagt ömmu sinni frá sakleysi sínu Myndir: Heimilisfólk komst út heilt á húfi Sumarhús við Þingvallavatn eyðilagðist í eldsvoða Tap vegna ótímabærra veðurspáa hlaupi á milljónum Sjá meira