Innlent

Áttu eitt­hvað van­talað við manninn sem endaði fram af svölunum

Jón Þór Stefánsson og Tómas Arnar Þorláksson skrifa
Manninum var kastað fram af svölum í túnunum. Myndin er úr safni.
Manninum var kastað fram af svölum í túnunum. Myndin er úr safni. Vísir/Anton Brink

Manni sem var kastað fram af svölum blokkar í túnunum í Reykjavík um fjögurleytið í gær hlaut líklega beinbrot en er, samkvæmt upplýsingum lögreglu, útskrifaður af sjúkrahúsi. Málið er rannsakað sem stórfelld líkamsárás.

Þetta segir Heimir Ríkarðsson aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

„Það komu þarna tveir að heimili þessa manns, og töldu sig eiga eitthvað vantalað við hann. Þegar þeim var ekki hleypt inn fara þeir upp á svalir, og þar inn um glugga, og það verða þarna átök sem enda með því að hann fellur niður, íbúinn,“ segir hann í samtali við fréttastofu.

Maðurinn mun hafa fallið um tvo og hálfan til þrjá metra, fram af svölunum sem voru á fyrstu hæð.

Árásarmennirnir tveir, sem eru á fertugsaldri, voru farnir af vettvangi þegar lögreglu bar að garði. Þeir fundust í húsi skammt frá og voru handteknir. Þeir verða yfirheyrðir í dag.

Ekki er vitað hver tengls mannanna eru, nema að árásarmennirnir tveir tengist.

Er þetta talið tengjast uppgjöri í undirheimunum?

„Nei, ég held að þeir hafi talið sig eiga eitthvað vantalað við þennan íbúa, sem ég veit ekki frekar deili á,“ segir Heimir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×