Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 24. júlí 2026 22:12 Hafsteinn Einarsson dósent í tölvunarfræði er hugsi yfir hraðri þróun gervigreindar. Vísir/Ívar Fannar Ekki þarf að örvænta alveg strax þó bandarísk gervigreind hafi tekið upp á því hjá sjálfu sér að gera netárás á annað fyrirtæki að sögn íslensks sérfræðings sem segir íslensk stjórnvöld þó þurfa að fylgjast með málinu.
Greint var frá því í vikunni að nýtt gervigreindarlíkan bandaríska fyrirtækisins OpenAI hefði framkvæmt netárás gegn sprotafyrirtæki eftir að starfsmenn misstu stjórn á líkaninu í öryggisprófun. Forsvarsmenn fyrirtækisins segja um fordæmalaust atvik að ræða sem verði rannsakað til hlýtar, íslenskur sérfræðingur segir tíðindin ekki koma á óvart. „Eftir því sem þessi gervigreindarlíkön verða betri þá öðlast þau hæfileika sem þessa og það er áhyggjuefni ef líkönin sjálf taka upp á því að gera eitthvað svona, en það sem er kannski meira áhyggjuefni ef fólk sjálft fer að misnota líkönin til að finna öryggisgalla.“ Geta gervigreindar og ógnarhröð þróun kalli á margar spurningar um framtíðina en veröld líkt og í Terminator kvikmyndunum þar sem gervigreindarkerfið Skynet rís upp og tortímir mannkyninu sé þó enn langt undan. „Jafnvel þó Skynet sé kannski ekki eitthvað sem við erum að fara að sjá í dag eða á morgun eða þess háttar þá er þetta bara að gerast það hratt að það er bara mjög heilbrigt að vera aðeins hugsi yfir þessu, því núna er það að brjótast inn í tölvukerfi, hvað mun það geta gert næst?“ Hafsteinn segir að á sama tíma beri að hafa í huga að bandarísku gervigreindarfyrirtækin hafi fjárhagslega hagsmuni á því að vekja athygli á getu tækninnar. „Ég myndi samt ekki endilega túlka þetta þannig að þetta sé einhver leið til þess að fá athygli, þetta eru raunverulegir hæfileikar sem eru að myndast í þessum líkönum og við sem þjóð þurfum að vera tilbúin fyrir einhverjar svona tölvuárásir í framtíðinni sem alfarið byggjast á gervigreind og stjórnvöld þurfa líka að hugsa um það að fara í samstarf við stærri þjóðir um að fá aðgang að svona líkönum bara til að geta verndað okkar innviði.“
Gervigreind Tækni Mest lesið Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Styður Repúblikana með tugum milljarða Erlent Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Innlent Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Innlent Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Erlent Skuldar ekkert Innlent Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Erlent Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Innlent Fleiri fréttir Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Bandero leitar skjóls í Reykjavík Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása Húta Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar? Salmonella greindist í kryddi Kokku Frumvarp um Ríkisútvarp gagnrýnt harðlega í samráðsgátt Stjórnarandstaðan segir „forfallavírus“ ganga meðal ráðherra Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Pawel tekur við af Sigmari sem þingflokksformaður Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Leita ökumanns sem ók á dreng á reiðhjóli „Þá tökum við auðvitað tillit til þess og hlustum“ Mögulegar rafmagnstruflanir í stórhríðinni Lægðin hefur alla burði til að verða söguleg Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Synjað um heimilisuppbót vegna sameiginlegrar þvottavélar og snyrtingar Vona að ágreiningur liti ekki þing ASÍ Háskólarnir verði betur tengdir með breyttri strætóleið Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Ákveðið álag sem maður sé undir án þess að fatta það Undirmönnun hjúkrunarfræðinga tengist dánartíðni sjúklinga Sjá meira