Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 24. júlí 2026 14:07 Sandra B. Franks er formaður Sjúkraliðafélags Íslands. Sjúkraliðafélag Íslands segist standa með félagsmanni þeirra sem fékk réttarstöðu sakbornings vegna andláts á hjúkrunarheimilinu Hraunbúðum í Vestmannaeyjum. Slíkt geti haft djúpstæð áhrif á einstakling. „
Málið er afar alvarlegt. Félagsmaður okkar var sviptur frelsi, fékk réttarstöðu sakbornings og bjó um tíma við grun um aðild að einu alvarlegasta broti sem einstaklingur getur verið sakaður um. Slík reynsla getur haft djúpstæð áhrif á heilsu, fjölskyldulíf, starfsferil og mannorð, þótt rannsókn sé síðar hætt,“ segir í yfirlýsingu Sjúkraliðafélags Íslands. Í byrjun febrúar voru tveir starfsmenn Hraunbúða handteknir vegna rannsóknar lögreglunnar á andláti konu á tíðræðisaldri á hjúkrunarheimilinu. Nú í júlí var rannsókn hætt þar sem krufningarskýrslan hafi leitt í ljós að ekki sé grundvöllur fyrir því að halda rannsókn áfram. Félagið hyggst sjá til þess að félagsmaðurinn fái viðeigandi stuðning og ber vinnuveitanda að tryggja vandaða og örugga endurkomu til starfa óski félagsmaðurinn eftir því. „Alvarlegt atvik í heilbrigðisþjónustu verður að rannsaka af festu, fagmennsku, nærgætni og óhlutdrægni. Öryggi sjúklinga skal ávallt vera í fyrirúmi. Rannsóknir verða þó einnig að byggjast á meðalhófi, viðeigandi sérþekkingu og heildstæðu mati á öllum aðstæðum máls, þar á meðal mönnun, vinnuálagi, verkferlum, stjórnun og öðrum kerfislegum þáttum. Hugur hjá aðstandendum Sjúkraliðafélagið segir í yfirlýsingunni, sem er undirrituð af Söndru B. Franks, formanni félagsins, að það muni fylgja fast á eftir því að stjórnvöld ljúki vinnu sinni og krefjast þess að niðurstöður starfshóps um óháða málsmeðferð verði birtar. Þá vill félagið að niðurstöðunum verði fylgt eftir og sérstakt samræmt verklag mótað. „Ekki verður sætt áfram við áframhaldandi óvissu um réttarstöðu heilbrigðisstarfsmanna. Sjúkraliðar verða að geta gengið til ábyrgðarmikilla starfa án þess að óttast að verða persónulega gerðir ábyrgir fyrir alvarlegu atviki áður en faglegt og heildstætt mat hefur farið fram,“ segir í yfirlýsingunni. Hugur félagsins sé hjá aðstandendum hinnar látnu. „Virðing fyrir sorg þeirra og stuðningur við heilbrigðisstarfsmann sem sætti alvarlegri rannsókn fara saman. Enginn sjúkraliði á að standa einn þegar frelsi hans, starfsheiður og framtíð eru undir. Sjúkraliðafélag Íslands stendur með félagsmanni sínum og mun vinna að því að réttaröryggi sjúkraliða verði tryggt.“
Rannsókn á andláti í Hraunbúðum í Eyjum Vestmannaeyjar Stéttarfélög Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Ísland á Ameríkukorti Trumps Erlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Innlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent „Hvar ætla þau þá að spara?“ Innlent Klórar sér í kollinum Innlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent Fær að setja þessar fasteignir á sölu Innlent Fleiri fréttir Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Sjá meira