Þúsundir Úkraínumanna mótmæla hrókeringum Selenskís Agnar Már Másson skrifar 16. júlí 2026 11:48 Hrókeringar hafa orðið í úkraínska ráðherraliðinu. AP Þúsundir Úkraínumanna hafa í dag mótmælt í borgum víða í heimalandinu í kjölfar þess að Volodimír Selenskí Úkraínuforseti lét varnarmálaráðherrann Mykhailo Fedorov óvænt taka pokann sinn í gær. Fedorov hafði verið ráðherra í hálft ár og ekki liggur fyrir hvers vegna hann var látinn fara.
Í Kænugarði, höfuðborg Úkraínu, komu þúsundir saman til þess að mótmæla brottrekstri Fedorovs og kröfðust þess að hann tæki aftur við starfinu, að sögn Kyiv Independent, en Selenskí hefur ekki útskýrt ákvörðunina sína. Miklar hrókeringar hafa orðið í ríkisstjórn Úkraínu undanfarna daga. Yulia Svyrydenko sagði nýlega af sér sem forsætisráðherra og Selenskí tilkynnti þá að breytingar yrðu í ráðherraliðinu. Úkraínumenn safnast saman í Kænugarði til að mótmæla brottrekstri Mykhaílo Fedorov, sem hefur gegnt starfi varnarmálaráðherra í sex mánuði.AP Serhíj Koretskjí, forstjóri orkufyrirtækis úkraínska ríkisins, tekur við sem forsætisráðherra eftir að Úkraínuþing samþykkti tillögu þess efnis í vikunni. Fedorov sagði í yfirlýsingu að hann væri stoltur af starfi sínu í varnarmálaráðuneytinu og það hafi verið heiður að leiða ríkisstjórnina „á einu erfiðasta tímabili í nútímasögu Úkraínu“. Hann sagði að boltinn væri hjá Selenskí. Frá mótmælum í dag.AP Innviðaráðherrann Ihor Klymenkó hefur verið tilnefndur sem næsti varnarmálaráðherra, að sögn Kyiv Independent. Miðillinn hefur eftir ónafngreindum þingmanni úr flokki Selenskís að Klymenko geti ekki gengið að því vísu að hann fái næg atkvæði á þinginu. Í yfirlýsingu sinni nefndi ráðherrann að varnarmálayfirvöldum hefði undir hans stjórn tekist að rjúfa tenginu Rússlands við netkerfi Starlink og tekist að koma í gegn „gríðarlega óvinsælum, en mikilvægum“ breytingum á hernum. Frá mótmælunum í Kænugarði.AP „Þetta snýst ekki einu sinni um Fedorov,“ heldur þingmaðurinn áfram, sem vill meina að Selenskí endurhugsi nú ákvörðun sína. „Gremja og þreyta hafa safnast upp hjá fólki og brottrekstur Fedorov gæti valdið frekari óreiðu í samfélaginu.“ Kosningar hafa ekki verið haldnar í Úkraínu síðustu fjögur ár þar sem herlög hafa verið í gildi frá því að allsherjarinnrás Rússa hófst árið 2022.
Úkraína Innrás Rússa í Úkraínu Mest lesið Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Innlent Gekk á milli bíla og braut rúður Innlent Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Innlent Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Innlent „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Innlent Fjölmenni í héraðsdómi Innlent Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Innlent „Svívirðileg svik“ Erlent Fleiri fréttir „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Vilja leyfa eldri borgurum að ráða sér au pair Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Flestir neita sök og umfangsmikil réttarhöld í vændum Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Manndrápsmál, eltihrellir og söguleg kaup Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Gekk á milli bíla og braut rúður Fjölmenni í héraðsdómi Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Hreyfingar mælast og aukin vöktun Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Sjá meira