Hafi sýnt stjúpdóttur sinni klám til að réttlæta brot sín Jón Þór Stefánsson skrifar 15. júlí 2026 11:38 Héraðsdómur Norðurlands-eystra úrskurðaði í málinu, áður en Landsréttur staðfesti úrskurðinn. Vísir/Vilhelm Lögreglan á Norðurlandi eystra fékk í byrjun sumars heimild til að leita í stafrænu innihaldi síma manns sem grunaður er um að beita barnunga stjúpdóttur sína kynferðisbrotum, og nauðga henni.
Rannsókn umrædds máls hófst fyrr á þessu ári þegar barnavernd fékk nafnlausa ábendingu um málið. Í kjölfarið var stúlkan tekin af heimilinu og upplýsti hún lögreglu um málið. Þetta kemur fram í úrskurði dómstólanna, héraðsdóms og Landsréttar, þar sem lögreglu var veitt umrædd heimild til að skoða farsíma mannsins. Í úrskurðinum hafa ýmsar upplýsingar verið afmáðar, líkt og hvenær meint brot eiga fyrst að hafa átt sér stað, og hversu gömul stúlkan var meðan þau eiga að hafa verið framin. Þó er hægt að lesa úr lýsingum skjalsins að meint brot eigi að hafa verið framin um nokkurra ára skeið. Framið meðan fjölskyldan var ekki heima Stúlkan mun hafa tekið fram að þau hafi í einhver skipti haft samfarir. Í eitt skipti hafi hann gefið henni áfengi þannig að hún muni ekki eftir neinu frá einu kvöldi. Eftir það kvöld hafi hún vaknað í herbergi mannsins. Öll brotin hafi verið framin þegar móðir stúlkunnar, og systkini hennar voru ekki heima. Klám og eftirlitsmyndavélakerfi Þá sagði stúlkan að stjúpfaðirinn hafi sýnt henni klámefni „affólki að stunda kynlíf, þar sem leikararnir þóttust vera með stjúptengsl“. Það hafi hann gert til að sannfæra hana um að slíkar athafnir, kynlíf milli fólks með stjúptengsl, væru í lagi þar sem ekki væru nein blóðtengsl. Í úrskurðinum kemur fram að á heimili þeirra hafi verið eftirlitsmyndavélakerfi, þar sem stjúpfaðirinn var með stjórnandaaðgang. Þegar hann hafi framið brot sín hafi stúlkan slökkt á myndavélunum. Þá hafi móðirin verið með aðgang sem gerði henni kleift að fylgjast með myndavélunum. Lögreglan mun hafa strax í byrjun rannsóknarinnar haldlagt tæki mannsins sem hún vildi skoða, bæði vegna lýsinga um klámið og myndavélakerfið. Hann hafi hins vegar strax verið mótfallinn því að veita lögreglu heimild til þess. Héraðsdómur Norðurlands eystra féllst á beiðni lögreglunnar um að fá að skoða símann. Landsréttur staðfesti svo þann úrskurð. Fréttin hefur verið uppfærð.
Kynferðisofbeldi Dómsmál Lögreglumál Mest lesið Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Innlent Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Innlent Suðaustan stormur og gul viðvörun Veður Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Erlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Fleiri fréttir Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Sjá meira