Ósamræmi einkunna: „Við verðum að horfast í augu við það“ Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 5. júlí 2026 15:36 Jón Pétur Zimsen segir námskrána vera vandamálið. Vísir/Vilhelm Erfitt væri að raða nemendum í framhaldsskóla út frá öðrum þáttum en lokaeinkunnum að mati skólameistara Kvennaskólans. Þingmaður Sjálfstæðisflokksins telur að námsskrá vera grunnvandann. Missamræmi í einkunnagjöf grunnskóla var tekið fyrir í Sprengisandi í morgun
Lokaeinkunnir nemenda úr grunnskóla gefa til kynna að ósamræmi sé í einkunnagjöf milli skóla þar sem í einum skóla fékk helmingur nemenda A í lokaeinkunn en enginn í öðrum. Inga Sæland, barna- og menntamálaráðherra, sagði í viðtali á Bylgjunni í vikunni að slíkt ósamræmi byggi til falskt öryggi útskriftarnema sem væri svo mismunað við inntöku í framhaldsskóla. Kolfinna Jóhannesdóttir, skólameistari Kvennaskólans, segir framhaldsskóla ekki hafa neina aðra leið en að taka inn eftir einkunnum. „Við finnum fyrir því þegar við erum að taka inn, af því við erum skóli sem er með fleiri umsóknir en pláss, að foreldrar eru að koma og segja að þessi grunnskóli gefi frekar A heldur en þessi, en við höfum ekkert fyrir okkur í því og það verður að ríkja traust um námsmat,“ segir hún. „Ég held við færum ekki að taka upp einhverja handahófskennda leið. En ég held við þurfum að ræða þetta, því að þetta má ekki vera samt ástæðan fyrir því að við kollvörpum einhverju einkunnakerfi.“ Kolfinna Jóhannesdóttir er skólameistari Kvennaskólans.stjórnarráðið Hún bendir á að nágrannaþjóðir Íslands hafi reynt aðrar leiðir, svo sem Danir sem um tíma röðuðu nemendum eftir efnahagslegum bakgrunni, en horfið hafi verið frá þeim áformum. Í staðinn hafi verið farin sú leið að setja nemendur í forgang sem velji viðkomandi skóla í fyrsta vali og ef með þarf þá er litið til ferðatíma eða fjarlægðar til skóla. „Ef við lítum á aðalnámskrá grunnskóla þá er auðvitað löng og greinargóð lýsing á því hvað A þýðir og B þýðir og C. Það eru hæfniviðmið þar undir en það getur kannski verið að það séu einhver túlkunaratriði og það var kannski hugmyndin með A, B og C að það væri svolítil breidd í þessu,“ segir Kolfinna. Námskráin ekki nógu góð Jón Pétur Zimsen, þingmaður og fyrrverandi grunnskólakennari, segir einkunnirnar gefnar út frá því hversu vel nemandanum hefur gengið að tileinka sér viðmið aðalnámskrár. Hann bendir á að mikill munur sé á niðurstöðum grunnskólabarna í samræmdu PISA-könnuninni og lokaeinkunn. „Við erum með kerfi sem annaðhvort ofmetur nemendur verulega og ég held að mjög margir framhaldsskólar séu í ákveðnum vanda því að þeir viti ekki hvað bókstafurinn þýði úr þessum skóla. Þeir hafa kannski reynslu af því að nemendur sem koma með B-ið úr þessum skóla standi sig alltaf vel á meðan aðrir geri það síður og ég held að þeir myndu ekki þora fyrir sitt litla líf að tala um það upphátt,“ segir Jón Pétur. Hann segir námskrána eiga að vera á þann máta að foreldrar, nemendur, kennarar og skólastjórnendur geti auðveldlega lesið og nýtt sér. „Sú námskrá sem er í gangi núna er ekkert af þessu og núna síðast hafa menn sem hafa verið harðir námskrárarmenn talað um að hún sé óljós og flókin. Við verðum að horfast í augu við það. Þarna er líka grunnvandinn í kerfinu, námskráin er ekki nógu góð. Okkur vantar samræmdar alvörumælingar sem taka öll viðmiðin í námskránni undir og við þurfum að gera róttækar breytingar á kennaranáminu,“ segir Jón Pétur.
Skóla- og menntamál Grunnskólar Sprengisandur Bylgjan Mest lesið Eftirförin endaði með hvelli Innlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent Bein útsending: Hvert renna peningar ríkisins á næsta ári? Innlent Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Erlent Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Erlent Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Innlent Útlit fyrir fyrstu fjarhægristjórnina frá endalokum nasismans Erlent Halla boðar til ríkisráðsfundar Innlent Ýmislegt bendi til stjórnarskipta í Svíþjóð Erlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent Fleiri fréttir „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Bein útsending: Hvert renna peningar ríkisins á næsta ári? Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Handtökur vegna líkamsárásar og ölvunar á Ljósanótt Eins og að vera kippt aftur á sjötta áratuginn Tíðindi í Kænugarði og fortíðarkennt fjölmiðlaumhverfi Snert á stöðu ferðaþjónustu og fjölmiðla í Sprengisandi Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ Sjá meira