„Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Freyja Þórisdóttir skrifar 3. júlí 2026 17:26 Dolly Parton er hvergi nærri hætt að koma en hún varð áttatíu ára gömul þann 19. janúar síðastliðinn. Getty Kántrísöngkonan Dolly Parton var ein þeirra sem hlutu styrk frá þeim Taylor Swift og Travis Kelce en stjörnuparið hefur verið saman í um þrjú ár. Þrátt fyrir að það hafi að mestu leyti tekist að halda undirbúningi brúðkaups þeirra úr fjölmiðlaumfjöllun hafa sumar bandarískar fréttastofur greint frá því að hátíðarhöldin hafi hafist í gærkvöldi og að parið gifti sig á næstu dögum.
Nú hefur Dolly Parton birt myndband á Facebook-síðu sinni þar sem hún þakkar kærlega fyrir styrk sem hún hlaut og hljóðar upp á tvær milljónir dala eða ríflega tvö hundruð og fimmtíu milljónir íslenskra króna. „Ég er orðlaus og yfir mig glöð af þakklæti,“ segir hún en styrkurinn rennur til bókasafns sem hún heldur úti þar sem ókeypis bækur eru gefnar börnum reglulega frá fæðingu og þar til þau byrja í skóla á þátttökusvæðum. Á fimmtudagskvöldið gáfu hjónin alls 26 milljónir dala til góðgerðarmála í Bandaríkjunum sem standa þeim nærri, þar á meðal samtök í New York, Nashville, þar sem Swift hóf tónlistarferil sinn, og Kansas City, heimabæ NFL-liðs Kelce. Það samsvarar rúmum þremur milljörðum íslenskra króna. Fulltrúar Swift, án þess að minnast á brúðkaupið, sögðu BBC News að gjöfin, sem innihélt matvælabanka, væri fyrir „góðgerðarmál víðs vegar um Bandaríkin“. Vill eignast frumburð stjörnuparsins „Nú er augljóst að þið tvö hafið gert það að gefa til baka að lykilatriði í lífi ykkar. Svo, heyrðu, þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það? Því það verður einstakt barn,“ segir Dolly einnig í myndbandinu sem má sjá hér að neðan. Hún segir markmið Dollywood-stofnunarinnar vera „að láta sig dreyma meira, láta sér þykja vænt um fleira, læra meira og vera meira“. Þá þakkar hún aftur fyrir gjöfina og heitir því að halda áfram sínu hjálparstarfi með það að markmiði „á enn stærri hátt núna, með peningunum ykkar“. Svo segist hún ávallt munu elska þau, líklega með vísun í smellinn „I will always love you“ sem hún sló í gegn með á áttunda áratug síðustu aldar.
Bandaríkin Tímamót Barnalán Hjálparstarf Brúðkaup Mest lesið Sneri vörn í sókn í vinaleysinu Lífið Diljá Mist skikkuð í smá hvíld Lífið Cindy Crawford óhuggandi eftir andlátið Lífið Systkinin kítast: „Mættir alveg mæta meira upp í bústað og vinna“ Lífið „Mjög óraunveruleg og full af ást“ Lífið Hvað veistu um… Djúpavog? Lífið Skvísur í svakalegu stuði á Svikasögum Menning Arnaldur græddi 113 milljónir og Yrsa tuttugu Lífið Ein heitasta leikkona landsins á lausu Lífið Gjörningur til heiðurs pabba sem féll fyrir eigin hendi Lífið Fleiri fréttir Arnaldur græddi 113 milljónir og Yrsa tuttugu Í kossaflensi á listasýningu Sneri vörn í sókn í vinaleysinu Misstu sig þegar sigurinn var í höfn Systkinin kítast: „Mættir alveg mæta meira upp í bústað og vinna“ Diljá Mist skikkuð í smá hvíld Cindy Crawford óhuggandi eftir andlátið „Mjög óraunveruleg og full af ást“ Hvað veistu um… Djúpavog? Gjörningur til heiðurs pabba sem féll fyrir eigin hendi Ein heitasta leikkona landsins á lausu Einstakt einbýli Sigurðar og Láru Stjörnum prýdd fyrsta frumsýning vetrarins Heyrir aftur hljóð sem höfðu verið horfin í mörg ár Sonur Cindy Crawford er látinn Stjörnulífið: „Fer þér ekki vel, þessi drjóli“ Sjóðurinn tómur Var send í megrunarbúðir 11 ára gömul Krakkatía vikunnar: Nýjasti kisinn, rjúpa og vopn „Okkur langar bara til þess að gera þetta allt saman aftur“ Hætta að prenta Walliams eftir ásakanir um kynferðislegt áreiti Örvar og María Elísabet nýtt listapar Segir af sér eftir að hafa beitt mótmælendur ofbeldi „Maður getur varla beðið um meira“ Bakaríið í beinni útsendingu „Fóturinn á mér er ekki bólginn af því að ég missti barnið mitt“ Fréttatía vikunnar: Danir, pósthólf og Louis Vuitton Macklemore svarað Staðgöngumóðir var það Yfir sjöhundruð manns keypt af Guðna í forsölu Sjá meira