Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Agnar Már Másson skrifar 25. júní 2026 21:39 Ingólfur ferðaþjónn rekur fyrirtæki víða um land undir vörumerkinu Tröll, en félagið selur alls konar ferðir víða um land. Auk þess rekur hann hótel á Suðurlandi og Vestfjörðum. Samsett Mynd Félag ferðaþjónsins Ingólfs Ragnars Axelssonar, sem rekur Tröll ferðaþjónustu, hyggst kaupa Ísbúð Vesturbæjar af Beru, móðurfélagi Ölgerðarinnar, á 215 milljónir króna. Kaupin eru háð samþykki frá Samkeppniseftirlitinu.
Í afkomutilkynningu sem Bera birti í dag segir að dótturfélagið Kjarnavörur ehf., sem er allt í eigu Beru, hafi þann 8. júní selt allt hlutafé í Ísbúð Vesturbæjar ehf. til móðurfélags Trölls ferðaþjónustu ehf., en téð móðurfélag nefnist BlágrýtiOI og er í 100 prósenta eigu Ingólfs Ragnars. Heildarvirði Ísbúðarinnar í viðskiptunum var 215 milljónir króna en kaupin eru háð samþykki Samkeppniseftirlitsins, að því er fram kemur í afkomutilkynningunni fyrir fyrsta ársfjórðung. Tröll ferðaþjónusta velti 3,2 milljörðum króna árið 2024 en skilaði þó 25 milljóna króna tapi það ár, samkvæmt ársreikningi. Ársreikningur fyrir 2025 hefur ekki verið birtur. Ísbúðin velti um 582 milljónum króna árið 2024 og skilaði þá 12 milljóna króna hagnaði. Rúmlega ár er liðið frá því að Ölgerðin keypti Kjarnavörur í febrúar 2025 en þá fylgdi með 100 prósenta eignarhlutur í Ísbúð Vesturbæjar. Auk Trölls ferðaþjónustu á BlágrýtiOI hundrað prósenta hlut í félögunum Tröll tækjum, Rhýólít, Tröll Vík, Hvalvörðugilslæk ehf., Um Hverfis Jörðina, Hótel Hrífunes, Vík Tröll Hóteli, Drangshlíð Hóteli og Tröllahóteli. Einnig er greint frá því í tilkynningunni að Kjarnavörur hafi þann 8. maí keypt alla útistandandi hluti í Innbak og eigi nú félagið að fullu, en fyrir áttu Kjarnavörur 68% hlut. Kaupverðið var 89 milljónir króna og var greitt í reiðufé, samkvæmt tilkynningunni.
Ís Ölgerðin Ferðaþjónusta Reykjavík Kaup og sala fyrirtækja Verslun Mest lesið Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira