Borgin skorar á ríkið að bregðast við námsgagnaskorti Lovísa Arnardóttir skrifar 25. júní 2026 06:31 Borgin bendir á að þrátt fyrir skýr ákvæði í lögum sé verulegum skortur á fjölbreyttu námsefni fyrir börn á öllum skólastigum. Vísir/Vilhelm Skóla- og frístundaráð Reykjavíkurborgar skorar á íslenska ríkið að setja í forgang að útbúa námsefni fyrir öll fög og alla bekki í samræmi við endurskoðun á aðalnámskrá grunnskóla sem tók gildi haustið 2024. Jafnframt er skorað á ríkið að tryggja nægt fjármagn til kaupa á námsefni svo að nemendur og kennarar hafi aðgang að vönduðu námsefni.
Stjórn Þróunarsjóðs námsgagna hefur kallað eftir því að fjármagn verði aukið til framleiðslu námsgagna án tafar, að miðlæg námsgagnaveita verði sett á stofn og að staðan á námsgögnum verði kortlögð. Skólastarf eigi verulega undir högg að sækja á öllum skólastigum vegna skorts á námsgögnum. Fjallað var um stöðu námsgagna í svartri skýrslu sjóðsins nýlega og að börn á Íslandi standi ekki jafnfætis börnum á Norðurlöndum og alþjóðlegar mælingar á námsárangri staðfesti það. Mennta- og barnamálaráðuneytið brást við þessu með því að kalla eftir stöðu námsgagna í einu fagi, stærðfræði. Sjóðurinn gagnrýndi það og sagði þau byrja á vitlausum enda með því að greina aðeins stöðuna í einni grein. Þörf væri á að leggja meira fjármagn í námsgagnagerð. Stjórn sjóðsins óttast að með því að greina aðeins eitt fag muni hin sitja eftir og staðan verði óbreytt. Framboð skert þrátt fyrir skýr lagaákvæði Í áskorun skóla- og frístundaráðs segir að lög um námsgögn kveði á um ábyrgð og stuðning ríkisins við þróun, gerð og útgáfu námsgagna fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla, sem og öflun námsgagna fyrir grunnskóla. „Þrátt fyrir skýr lagafyrirmæli um ábyrgð ríkisins er framboð á námsgögnum takmarkað og fjármagn til þróunar og kaupa á námsefni hefur rýrnað um árabil. Um 70% kennara nota námsefni sem útbúið er í skólanum oft eða mjög oft. Það eykur álag á skólakerfið og gerir kennurum erfiðara fyrir að sinna kennslu með þeim verkfærum sem þeir þurfa,“ segir í áskoruninni. Þar er bent á að rannsóknir á áhrifaþáttum í menntun sýni að gæði námsgagna séu ein af grunnstoðum árangursríks skólastarfs, ásamt skýrri aðalnámskrá og sjálfstæðum, fagmenntuðum kennurum. Bitnar á nemendum og kennurum „Alþjóðlegar rannsóknir á starfsaðstæðum kennara benda jafnframt til þess að íslenskir kennarar verji meiri tíma í undirbúning og stjórnsýsluleg verkefni en kennarar í flestum samanburðarlöndum. Þegar lögbundið námsefni er ekki til staðar, eða er orðið úrelt, þurfa kennarar að fylla í eyðurnar sjálfir. Það dregur úr tíma til eiginlegrar kennslu, faglegs undirbúnings og þróunar skólastarfs,“ segir í áskoruninni. Þessi skortur bitni ekki síst á nemendum sem þurfi mest á stuðningi að halda, þar á meðal börnum sem alast upp við félagslega krefjandi aðstæður og börnum með fjölbreyttan menningar- og tungumálabakgrunn. Slíkur skortur getur aukið ójöfnuð milli nemenda og þrýsting á sérkennslu og stoðþjónustu,“ segir að lokum. Neyðarástand í gangi Áheyrnarfulltrúi kennara í grunnskólum bókaði á fundi skóla- og frístundaráðs að jákvætt væri að sjá slíka hvatningu frá ráðinu. „Til að skólakerfið okkar verði í fremstu röð þarf að stórefla framboð á fjölbreyttu námsefni. Allt of miklum og dýrmætum tíma kennara er varið í að útbúa námsefni þar sem vöntunin er mikil. Það myndi hafa mikil og góð áhrif á starfsaðstæður kennara ef boðið yrði upp á fjölbreytt nútímalegt námsefni. Kjörnir fulltrúar eru í lykilstöðu til að hafa áhrif á gang mála og kalla eftir aðgerðum af hálfu mennta- og barnamálaráðuneytisins sem ber ábyrgð á námsefnisútgáfu,“ sagði Kristín Björnsdóttir, áheyrnarfulltrúi kennara í grunnskólum í ráðinu. Bjarni Fritzson, formaður ráðsins, segir í samtali við fréttastofu að þó svo að framleiðsla námsgagna sé á vegum ríkisins verði einnig brugðist við hjá borginni. „Þetta skiptir ótrúlega miklu máli og það er einhvers konar neyðarástand í gangi.“
Reykjavík Skóla- og menntamál Grunnskólar Leikskólar Framhaldsskólar Börn og uppeldi Tengdar fréttir Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ Ný og, því sem næst, svört skýrsla Þróunarsjóðs námsgagna sýnir að fjármagn til námsgagnagerðar hafi rýrnað til muna síðustu tvo áratugi. Formaður sjóðsins segir ósanngjarnt að í umræðunni sé kennurum kennt um lakari námsárangur barna þegar þeir hafi ekki sömu kennslutól og kennarar á hinum Norðurlöndunum 22. maí 2026 20:16 Mest lesið Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Innlent Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Innlent Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Erlent Blóðbað á lestarpalli Erlent Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Innlent Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Innlent Fleiri fréttir Ráðherra feginn að verðbólga stendur í stað og meirihluti mótfallinn þátttöku í Eurovision Til Ilulissat á Airbus með nýjum flugvelli Biðin á Landspítalanum styttist til muna Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Rukka erlenda nemendur um milljónir Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Frumvarp kynnt um afnám æviráðningar Bein útsending: Kynnir aðgerðaáætlun gegn fátækt barna Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Kveiksþætti kippt út tímabundið Söfnuðust saman við sendiráðið og mótmæltu refsiaðgerðum „Séum tilbúin þegar og ef þessi veruleiki birtist okkur“ Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Sveik hundruð þúsunda af vistmanni á Grenilundi Engar vísbendingar og lítið af upplýsingum Íslendingar losa meira en Evrópubúar í langflestu Sýna sögulega þingfestingu í öðrum sal Braut kynferðislega á fatlaðri stjúpdóttur sinni Golfarar reynt að borga sig fram fyrir biðlistana Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Breytir verkefnastofu í ráðuneytisstofnun Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Sjá meira
Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ Ný og, því sem næst, svört skýrsla Þróunarsjóðs námsgagna sýnir að fjármagn til námsgagnagerðar hafi rýrnað til muna síðustu tvo áratugi. Formaður sjóðsins segir ósanngjarnt að í umræðunni sé kennurum kennt um lakari námsárangur barna þegar þeir hafi ekki sömu kennslutól og kennarar á hinum Norðurlöndunum 22. maí 2026 20:16