„Í fyrsta skipti sá ég fólk grátandi á götum Lundúna“ Tómas Arnar Þorláksson skrifar 24. júní 2026 13:02 Þóra Helgadóttir Frost hagfræðingur. ap/vísir Þóra Helgadóttir sem hefur verið búsett í Lundúnum í nær 20 ár segir skýran mun á lífinu í stórborginni fyrir og eftir Brexit. Í gær voru tíu ár liðin frá þjóðaratkvæðagreiðslu um Brexit en spár hagfræðinga um neikvæð efnahagsleg áhrif hafa raungerst á síðustu árum að sögn Þóru.
Í gær voru tíu ár liðin frá því að meirihluti Breta samþykkti í þjóðaratkvæðagreiðslu að ganga úr Evrópusambandinu en útgangan tók formlega gildi um 31. janúar árið 2021. Þeir sem voru helst í fararbroddi fyrir Brexit eins og Nigel Farage sem er nú í fyrirsvari fyrir Reform-flokkinn þar austanhafs, töldu að úrsögn úr ESB myndi tryggja fullveldi þjóðarinnar. Þá var einnig mikið rætt um efnahagslegt sjálfstæði og að vinna gegn bákni sambandsins og þreytandi skriffinsku. Þóra Helgadóttir Frost, hagfræðingur og fyrrverandi ríkishagfræðingur hjá hinu opinbera í Bretlandi, hefur verið búsett í Lundúnum frá 2007 og man því tímana tvenna, fyrir og eftir Brexit. Hún varð ekki vör við mikla umræðu í borginni í gær við þessi tímamót og segir það merki um að Bretar séu búnir að venjast þessum nýja raunveruleika. „Í fyrsta lagi er hitabylgja í London, svo að fólk er svolítið að halda sig heima. Þannig varð ég svo sem ekki mikið vör við einhver svona viðbrögð við þessu tíu ára afmæli. Kannski að einhverju leyti er það út af því að það eru talsverð umskipti í stjórnmálum þessa dagana í Bretlandi. Það er nú ekki skortur á því að þetta hafi verið rætt síðustu tíu árin. Almennt er fólk búið að sætta sig við það að þetta sé staðan. Í upphafi fyrir tíu árum síðan þá man ég eftir því þegar ég vaknaði og þá sem sagt áttaði ég mig á stöðunni. Í fyrsta skipti sá ég fólk grátandi á götum Lundúna. Fólk er búið að sætta sig við þetta og þá snýr hugsunin meira að því hvað sé hægt að gera til að gera stöðuna betri. Það er ekki verið að hugsa um að snúa þessu við.“ Hún segir að spár hagfræðinga um slæm efnahagsleg áhrif fyrir ríkið hafi ræst að mestu leyti. „Það hefur haft áhrif á hagvöxt, fjárfestingar og svo alþjóðaviðskipti sérstaklega. Ég held að það hafi haft stærstu áhrifin á alþjóðleg viðskipti og svo framleiðni. Þetta hafði kannski ekki áhrif strax daginn eftir, þetta tók smá tíma. Þetta hefur til að mynda haft töluverð áhrif á vinnumarkaðinn og almennt á hagvöxt í landinu. Þannig að Bretland var aðeins á eftir öðrum þjóðum út af þessu áfalli.“ Þóra tekur fram að hún nemi töluverðan mun á lífinu í London fyrir og eftir Brexit. „Nú er náttúrulega miklu erfiðara fyrir innflytjendur úr Evrópu að koma til Bretlands. Það hafði áhrif á kannski getu fyrirtækja í kringum mig þar sem ég bý að fá vinnuafl. Svo hafði það áhrif á mína fjölskyldu. Við vorum nýbúin að samþykkja sölu á fasteign þegar atkvæðagreiðslan um Brexit fór fram. Við þurftum að gefa afslátt af söluverðinu eftir Brexit. Það voru kannski beinustu áhrifin. Maður sá það bara beint að það var alveg ljóst að um leið og þessi kosning fór í gegn að það sáu allir að þetta væri neikvætt.“
Brexit Bretland Efnahagsmál Mest lesið „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent „Burt með bölvað ofstækið“ Innlent Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Innlent Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Innlent „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Innlent „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent Ætla að brenna rusl og skapa orku Innlent Fleiri fréttir „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Sjá meira