Opna nýtt hjúkrunarheimili með 90 rýmum í Reykjanesbæ Lovísa Arnardóttir skrifar 23. júní 2026 15:58 Hægt verður að njóta útiveru. Stjórnarráðið Nýtt hjúkrunarheimili fyrir 90 íbúa verður opnað við Keilisbraut í Reykjanesbæ. Ráðist verður í gagngerar breytingar og endurbætur á húsnæði við Keilisbraut 753 og 754 og eru aðgerðir vegna uppbyggingarinnar þegar hafnar. Áætlað er að nýja hjúkrunarheimilið verði tekið í notkun vorið 2028.
Í tilkynningu frá stjórnarráðinu kemur fram að Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS) muni annast rekstur hjúkrunarheimilisins en ríkið leigi húsið með leigusamningi til 25 ára af Icelandic Home ehf. Heimilið verður ríflega 6.500 fermetrar og öll herbergin einbýli með baðherbergjum. Við undirritun samningsins. Stjórnarráðið „Við höfum sett málefni eldra fólks í forgang og látum verkin tala. Stjórnvöld eru í stórsókn í uppbyggingu hjúkrunarheimila vítt og breitt um landið og nýja hjúkrunarheimilið við Keilisbraut verður mikilvægt framfaraskref fyrir eldra fólk á Suðurnesjum og fjölskyldur þess. Með þessu fjölgar hjúkrunarrýmum verulega á svæðinu og fleiri fá þá þjónustu og það öryggi sem þeir eiga skilið,“ segir Inga Sæland, sem fer fyrir uppbyggingu hjúkrunarheimila, í tilkynningunni. Þar kemur einnig fram að nýlega hafi annað hjúkrunarheimili verið opnað í Reykjanesbæ við Nesvelli og þegar þau verði bæði komin í gagnið muni hjúkrunarrýmum á Suðurnesjum hafa fjölgað um tæp 80 prósent frá því í janúar. Hringtorg og bílastæði. Stjórnarráðið Til viðbótar munu 24 skammtímahjúkrunarrými bætast við í bænum í haust þegar hjúkrunarheimilið Hlévangur verður opnað á nýjan leik og verða þau starfrækt fram að opnun hjúkrunarheimilisins við Keilisbraut. „Heilbrigðisstofnun Suðurnesja fagnar mjög þessum áfanga í þjónustu við aldraða á Suðurnesjum. Aðstaðan á Keilisbraut býður upp á marga möguleika til að mynda fallega umgjörð fyrir íbúa heimilisins og móta þar fyrirmyndarsamfélag. Með opnun nýja hjúkrunarheimilisins á Keilisbraut skapast einstakt tækifæri til að efla sjúkrahússtarfsemi HSS enn frekar og mun það hafa víðtæk áhrif á heilbrigðisþjónustu til framtíðar,“ segir Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir forstjóri HSS í tilkynningunni. Herbergin verða öll með salerni. Stjórnarráðið Hjúkrunarheimilið við Keilisbraut er hluti af framkvæmdaáætlun um uppbyggingu hjúkrunarheimila fyrir árin 2026–2030 en þar er gert ráð fyrir að ríflega 1.500 hjúkrunarrými verði tekin í notkun á tímabili áætlunarinnar. Í dag eru alls 160 hjúkrunarrými í Reykjanesbæ en með nýja hjúkrunarheimilinu verða þau orðin 250. Nánar er farið yfir áfanga í samkomulagi ríkis og sveitarfélaga frá því í mars í fyrra um uppbyggingu hjúkrunarheimila víða um land.
Eldri borgarar Hjúkrunarheimili Heilbrigðismál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Tengdar fréttir Tilboð Reita í uppbyggingu hjúkrunarheimilis valið Tilboð Reita í uppbyggingu á nýju hjúkrunarheimili á Akureyri var valið af Framkvæmdasýslunni – Ríkiseignum í útboði sem lauk nýlega. Hjúkrunarheimilið mun rísa við Þursaholt sex og rúma 140 íbúa. 15. júní 2026 18:20 Enginn verði á biðlista eftir hjúkrunarrými eftir þrjú ár Enginn verður á biðlista eftir hjúkrunarrými árið 2029 samkvæmt nýrri framkvæmdaáætlun félags- og húsnæðismálaráðuneytisins um uppbyggingu hjúkrunarheimila. Barna- og menntamálaráðherra segir áætlunina marka þáttaskil í þjóðarátaki ríkisstjórnarinnar. 16. mars 2026 11:16 Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Innlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Fleiri fréttir Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Sjá meira
Tilboð Reita í uppbyggingu hjúkrunarheimilis valið Tilboð Reita í uppbyggingu á nýju hjúkrunarheimili á Akureyri var valið af Framkvæmdasýslunni – Ríkiseignum í útboði sem lauk nýlega. Hjúkrunarheimilið mun rísa við Þursaholt sex og rúma 140 íbúa. 15. júní 2026 18:20
Enginn verði á biðlista eftir hjúkrunarrými eftir þrjú ár Enginn verður á biðlista eftir hjúkrunarrými árið 2029 samkvæmt nýrri framkvæmdaáætlun félags- og húsnæðismálaráðuneytisins um uppbyggingu hjúkrunarheimila. Barna- og menntamálaráðherra segir áætlunina marka þáttaskil í þjóðarátaki ríkisstjórnarinnar. 16. mars 2026 11:16