Viðskipti innlent

Bláa lónið festir kaup á Arctic Adventures og stefnir á markað

Eiður Þór Árnason skrifar
Ásgeir Baldurs, forstjóri Arctic Adventures, og Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri Bláa lónsins.
Ásgeir Baldurs, forstjóri Arctic Adventures, og Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri Bláa lónsins. aðsend

Bláa lónið hefur fest kaup á ferðaþjónustufyrirtækinu Arctic Adventures og er stefnt að samruna fyrirtækjanna. Þá hefur Bláa lónið hafið formlegan undirbúning að skráningu félagsins á íslenskan hlutabréfamarkað.

Þetta kemur fram í tilkynningu en kaupin eru gerð með fyrirvara um áreiðanleikakönnun á báðum félögunum, samþykki Samkeppniseftirlitsins og samþykki hluthafafunda félaganna.

Innan við vika er liðin frá því að tilkynnt var að Arctic Adventures hf. hefði slitið viðræðum við Kynnisferðir hf. um mögulegan samruna félaganna. 

Arctic Adventures sérhæfir sig á sviði ævintýra- og afþreyingarferðaþjónustu á Íslandi og rekur meðal annars vinsæla áfangastaði á borð við Fjaðrárgljúfur, Kerið og Raufarhólshelli. Markmið stjórnenda er að úr verði öflugt ferðaþjónustufyrirtæki og „leiðandi afl í rekstri og þróun íslenskrar upplifunar- og vellíðunarferðamennsku.“

Bláa lónið hf. á, auk samnefnds baðlóns og nærliggjandi hótels, húðvörufyrirtæki og hótel við Kerlingarfjöll, í Hrauneyjum og Hoffelli en við það síðastnefnda má einnig finna böð. Þá vinnur fyrirtækið að uppbyggingu hótels í Þjórsárdal og baðstaðs við Hoffellslón í Hornafirði.

Samanlagðar tekjur félaganna voru um 34,3 milljarðar króna á árinu 2025 og samanlagður fjöldi stöðugilda um 1.120, að því er fram kemur í tilkynningu. Heildarfjöldi stöðugilda hjá Bláa lóninu er 780 og 340 hjá Arctic Adventures.

Vill staðsetja Ísland sem einn fremsta upplifunaráfangastað heims

„Það er markmið okkar að Bláa Lónið leiði áfram uppbyggingu og fjárfestingar sem staðsetja Ísland sem einn af fremstu upplifunar og vellíðunar áfangastöðum heims. Kaup á Arctic Adventures er mikilvægt skref í þá átt,“ er haft eftir Sigríði Margréti Oddsdóttur, forstjóra Bláa lónsins í tilkynningu.

„Bláa Lónið hefur byggt upp eitt sterkasta vörumerki Íslands á alþjóðavísu og með sameiginlegum styrk félaganna skapast einstakt tækifæri til áframhaldandi vaxtar og þróunar. Við hlökkum til að taka þátt í þeirri vegferð og styrkja enn frekar stöðu Íslands sem áfangastaðar í harðri samkeppni á alþjóðlegum ferðaþjónustumarkaði,“ segir Ásgeir Baldurs, forstjóri Arctic Adventures. 

Landsbankinn og Fossar fjárfestingarbanki verða umsjónaraðilar hlutafjárútboðs Bláa lónsins hf.

Fréttin hefur verið uppfærð.


Tengdar fréttir

Ferðaþjónusturisar hætta við sam­runa

Ferðaþjónusturisarnir Arctic Adventures hf. og Kynnisferða hf. (Icelandia) hafa ákveðið að slíta viðræðum um mögulegan samruna félaganna.

Uppsagnir hjá Bláa lóninu

Uppsagnir hafa staðið yfir í morgun í Bláa lóninu. 29 stöðugildi verða lögð niður og 55 starfsmenn flytja milli sviða. Forstjóri fyrirtækisins segir markmiðið að skerpa á hlutverki móðurfélags lónsins. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×